Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1936, Síða 20
18*
Verslunarskýrslur 1934
4. Viðskifti við einstök lönd.
L’échange avcc lcs pays étrangers.
5. yfirlit (hls. 19*) sýnir, hvernig verðupphæð innfluttu og útfluttu
varanna hefur skiíst 4 síðustu árin eftir löndunum, þar sem vörurnar
hafa verið keyptar eða seldar. Síðari hluti töflunnar sýnir, hvern þátt
löndin hafa tekið hlutfallslega i versluninni við ísland samkvæmt íslensku
verslunarskýrslunum.
Langmestur hluti innfluttu vörunnar kemur frá Danmörku og Bret-
landi, eða meir en helmingur alls innflutningsins. Áður var Danmörk
hærri en Bretland, en siðustu árin hefur Bretland verið töluvert hærra.
Næst þessum Iöndum gengur Þýskaland og Noregur, hvort með 12%
af öllum innflutningnum 1934. Því næst kemur Svíþjóð með 5%, Spánn
með 3%, og Ítalía, Holland, Bandarikin og Belgía með 2% hvert.
Af verðmagni útflutningsins árið 1934 hefur rúinlega Vs komið á
Spán og Portúgal. Áður hefur Spánn verið langhæstur af útflutnings-
löndunum, en 1934 var Portúgal heldur hærri, enda var útflutningur
til Spánar miklu lægri heldur en áður vegna innflutningshamla þar.
Þá tók Bretland við 13% af útflutningnum, ítalia við 12%, Þýskaland
og Noregur við 9%, þar næst kom Danmörk með 7%, Svíþjóð með
6% og Bandaríkin með 5% af útflutningnum.
Á 5. yfirliti sést, að miklu meira er flutt út frá Islandi til Spánar,
ítalíu og Portúgals heldur en innflutt er frá þessum löndum, en aftur á
móti er miklu meira innflutt frá Danmörku og Bretlandi heldur en lit-
flutt er þangað. Venjulega er meira flutt inn frá Noregi heldur en út
þangað, og meira flutt út lil Svíþjóðar heldur en inn þaðan, en munur-
inn er þar minni, og 1933 hefur verið jöfnuður að þvi er Sviþjóð snerli.
Árið 1934 hækkaði innflutningur töluvert frá flestum löndum. Þó
hefur hann lækkað frá Spáni, Bretlandi og Þýskalandi. En tiltölulega
mest hefur hækkunin verið frá Ítalíu.
Árið 1934 hefur útflutningsupphæðin lækkað stórlega til Spánar,
einnig töluvert til Italíu og nokkuð til Þýskalands, en hækkað til flestra
annara landa.
I töflu I\ A og B (bls. 40—93) eru taldar upp allar helstu innfluttar
og útfluttar vörutegundir og sýnt hvernig inn- og útflutningsmagn
hverrar vöru skiftist eftir löndum. í töflu III (bls. 36—39) er verðmæti
innflutningsins frá hverju landi og útflutningsins til þess skift eftir vöru-
flokkum. Og loks er i töflu V (bls. 94—111) taldar upp með magni og
verði helstu vörutegundirnar í innflutningnum frá hverju landi og i lit-
flutningnum til þess.