Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1939, Síða 31
Vcrslunarskýrslur 1937
29‘
Innflutt Útflutt Samtals
Reykjavik 4U.9 °/o 54.8 °/o
Siglufjörður 5.2 — 19.7 — 12.8 —
Akureyri 8.4 2.o — 5.1 —
Vestmannaeyjar 5.i — 3.9
Reykjarfjörður 1.0 — 3.7 — 2.4 —
Hafnarfjörður 2.o — 1.6 1.8 —
Krossanes ... O.o — 3.2 — 1.7 —
ísafjörður 2.2 — 1.1 — 1.8 —
Hjalteyri 1.1 — 2.2 — 1.6
Scvðisfjörður . . . . 0.7 — 1.8 1 .3
Onnur kauptún 13.1 — 12.7 — 13.o —
Samtals 100.o°/o 100.o°/o 100.o°/o
í töflu VII er tilgreint, hve mikiö af innflutningi hvers staðar hei'ur
farið gegnum póst, en póstflutnings gætir mjög lítið i útflutningi. Samkv.
skýrslu þessari hefur innflutningur i pósti árið 1937 numið ().» milj. kr.
eða l.o% af öllum innflutningnum (1936: O.o milj. kr. eða 2.o%, 1935:
l.s niilj. kr. eða 2.8%).
í töflu VIII (bls. 132—136) er yfirlit um vörumagn innfluttra og út-
fluttra tollvara og hvernig það skiftist á einstök tollumdæmi. Vörumagnið
kemur hér ekki alveg heim við það, sein talið er í töflu II (bls. 2—36),
enda stafa tölurnar frá mismunandi skýrslum, í töflu II frá verslunar-
skýrslum, en í töflu VIII frá tollskýrslum.
6. Tollarnir.
Droits de douane.
Á bls. 137—138 er yfirlit yfir tolltekjur ríkissjóðs árið 1937 og er
þar sýnt, hve mikill tollur hefur komið á hvern einstakan tolllið. 10. yfirlit
(bls. 30*) sýnir tollupphæðirnar í heild sinni og hvernig þær skiftast á
aðaltollana að meðaltali árlega á hverjum 5 árum síðan um aldamót og
á hverju ári síðustu árin. Tollupphæðirnar eru taldar hér eins og þær
eru lagðar á vörurnar, en innheimtulaun (meðan þau voru greidd sér-
staklega) ekki dregin frá. Heldur er ekki tekið tillit til þess, þó eitt-
hvað af tollinum hafi verið endurborgað aftur. Tollupphæðirnar koma
því ekki fyllilega heim við tollupphæðirnar í landsreikningunum. Vöru-
tollur af póstbögglum er ekki talinn hér með fyr en árið 1920, því að
áður var ekki gerð sérstök skilagrein fyrir honum, heldur var hann inni-
falinn í pósttekjunum. Með vörutolli eru taldir í 10. yfirliti nokkrir aðrir
tollar, er gilt hafa um skemmri tíma, svo sem tollur af síldartunnum og
efni í þær, er aðeins gilti 1919, og salttollur (frá ágúst 1919 til mars-
íoka 1922) og kolatollur (1920—22), er báðir voru lagðir á til þess að
vinna upp þann lialla, sem orðið hafði á salt- og kolakaupum lands-
stjórnarinnar vegna styrjaldarinnar. Með vörutolli er líka talinn auka-