Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1945, Side 15
Verzlunarskýrslur 1944
13
þannig að lítratala brennivínsins er helminguð, þar eð það hefur hérum-
bil hálfan styrkleika á við hreinan vínanda, svo að tveir litrar af brenni-
víni samsvara einum litra af vinanda. Sama regla hefur verið látin gilda
um aðra eimda drykki.
Á yfirlitinu sést, að árið 1944 hefur neyzlan aukizt af sterkum drykkj-
um, vínföngum og öli. Hi’ns vegar hafa tölurnar lækkað fvrir kaffi, lóbak
og sykur.
Sykurneyzla (að meðtöldu þvi, sem fer til iðnaðar) hefur verið yfir
40 kg á mann siðustu árin og jafnvel rúml. 48 kg árið 1939. Er það mikið
samanborið við önnur lönd. Árið 1938 var sykurneyzla minni en það i
flestum löndum Norðurálfunnar, nema Danmörku (51 kg). Á Nýja-Sjá-
landi var hún lika .meiri (51 kg). Árið 1944 var sykurinnflutningur hingað
til lands heldur minni en næsta ár á undan, en þó 46j/2 kg á mann.
Neyzla af kaffi og kaffibæti var um mörg ár fyrir stríðið um 6% kg
á mann að meðaltali, en á stríðsárunum hefur innflutningurinn gengið
nokkuð upp og niður. 1944 var kaffineyzlan rúml. 7 kg á mann. Kaffiinn-
flutningur og innlend framleiðsla á kaffibæti að viðbættum innflutningi,
en frádregnum útflutningi, hefur verið svo sem hér segir árin 1940—1944:
Kafíi óbrcnnl Kaffi brcnnt Kaffibælir Samtals
1940 ... 4 828 hdr. kg » lidr. kg 2 164 hdr. kg 6 992 hdr. kg
1941 .... 6 232 — — )) 2 926 — — 9 158 — —
1942 .... 2 538 — — 2 — — 3 212 — 5 752 — —
1943 .... 3 — — 1 927 — — 15 667 -
1944 .... 8 658 — 7 — — 1 351 — — 10 016 — —
Innflutningur á kaffibæti var alveg horfinn, en innlend framleiðsla
kominn i staðinn. Tvö síðustu árin hefur þó aftur verið nokkur innfluln-
ingur á kaffibæti. Líka hefur innlend kaffibrennsla næstum alveg tekið
fyrir innflutning á l)renndu kaffi.
Innflutningur á tóbaki hefur lítið vaxið á undanförnum árum, og
samanborið við mannfjölda hefur tóbaksneyzla hér um bil staðið í stað.
Innflutningur á öli er fyrir löngu alveg horfinn, en í staðinn komin
innlend framleiðsla. Var hún í nokkur ár um 3000 hl. á ári, en hækkaði
svo 1940 upp í rúml. 7800 hl. og aftur 1941 upp í 15 800 lil og 1942 upp í
17 000 hl. Síðan lækkaði hún aftur og var 16 800 hl. árið 1944. Þar af voru
rúml. 2400 hl. áfengt öl, sem aðeins er bruggað fyrir hið erlenda setulið.
En aukningin á óáfenga ölinu mun einnig að miklu leyti stafa af hérveru
setuliðsins.
Vínandi og vinföng eru einungis flutt inn af Áfengisverzlun rikisins.
Var þessi innflutningur mjög lítill fyrst eftir að aðflutningsbannið komst
á, en síðan jókst hann töluvert. Hækkun á vínfangainnflutningnum
1922 og árin þar á eftir stafar af undanþágunni, sem veitt var frá bann-
lögunum fyrir létt vín (Spánarvín). Hinsvegar stafar hækkunin á sterku
vínunum árið 1935 frá afnámi bannlaganna frá byrjun þess árs, en inn-
flutningur léttra vína minnkar þá aftur á móti mikið. Árið 1944 var inn-