Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1946, Page 15
Verzlunarsliýrslui li)45
13
vara var einnig lireinn vinandi, en hann telst lil 3. ílokks í 2. yfirliti (vör-
ur tit iðnaðar). 3. yfirlit (bls. 12*) sýnir árlega neyzlu af helztu munaðar-
vörunum á hverju 5 ára skeiði síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5
árin, hæði í heild sinni og samanborið við mannfjölda. Var fyrst ein-
göngu um innfluttar vörur að ræða, þar til að við hættist innlend fram-
leiðsla á öli og kaffibæti. Af innfluttu vörunum hefur innflutningur árs-
ins verið látinn jafngilda neyzlunni. Brennivin er lalið með vínanda,
þannig að lítratala brennivínsins er helminguð, þar eð það hefur hérum-
hil hálfan styrkleika á við hreinan vínanda, svo að tveir lítrar af brenni-
víni samsvara einum litra af vínanda. Sama regla hefur verið látin gilda
um aðra eimda drykki.
Á yfirlitinu sést, að árið 1945 hefur neyzlan aukizt af öllum þeim vör-
um, sem hér er um að ræða, nema sykri.
Sykurneyzla (að meðtöldu þvi, sem fer til iðnaðar) liefur verið yfir
40 kg á mann flest síðustu árin og jafnvel rúml. 48 kg árið 1939. Er það
mikið samanborið við önnur lönd. Árið 1938 var sykurneyzla minni en
það í flestum löndum Norðurálfunnar, nema Danmörku (51 kg). Á Nýja-
Sjálandi var lnin lika meiri (51 kg). Árið 1945 var sykurinnflutningur
hingað lil lands aðeins um helmingur þess, sem venjulega hefur verið,
eða um 22 kg á iriann.
Nevzla af kaffi og kaffibæli var um mörg ár fyrir striðið um 6V2 kg
á mann að meðaltali, en á stríðsárunum hefur hún gengið nokkuð upp
og niður, en þó að jafnaði verið lölnvert meiri en áður. 1945 var kaffi-
neyzlan rúml. 8% kg á mann. Kaffiinnflutningur og innlend framleiðsía
á kaffibæti, að viðhættnm innflutningi, en frádregnum útflutningi, hefur
verið svo sem hér segir árin 1941—1945.
Kaffi óbrennt Kaffi brennt Kaffibætir Samlals
1941 ...... 6 232 hdr. kg » lidr. Iig 2 926 hdr. kg 9 158hdr.kg
1942 ........ 2 538 — — 2 — — 3 212 — — 5 752 — —
1943 ....... 13 737 — 3 — - 1 927 — — 15 667 — —
1944 ........ 8 658 — 7 — — 1 351 — — 10 016 — —
1945 ........ 8 665 — — » — — 2 429 — — 11 094 — —
Innflutningur á kaffibæti var alveg horfinn, en innlend framleiðsla
komin í staðinn. Tvö síðustu árin hefur þó aftur verið nokkur innflutn-
ingur á kaffibæti. Líka hefur innlend kaffibrennsla næstum alveg tekið
fyrir innflutning á brenndu kaffi.
Innflutningur á tóbaki hefur verið með mesta móti árið 1945. Annars
liefur hann lítið vaxið á undanförnum árum, og samanborið við mann-
f'jölda hefur tóbaksneyzla lengi hér um bil staðið í stað.
Innflutningur á öli er fyrir löngu alveg horfinn, en í staðinn komin
innlend framleiðsla. Var hún í nokkur ár um 3000 hl. á ári, en hækkaði
svo 1940 upp í rúml. 7800 hl., og síðan 1941 hefur hún verið 16—17 þús.
hl. Hæst hefur hún komizt 17 400 bl. árið 1945. Þar af voru tæpl. 2200
hl. áfengt öl, sem aðeins var bruggað fyrir hið erlenda setulið. En aulm-
ingin á óáfenga ölinu mun einnig að miklu leyti slafa af hérveru selu-
liðsins.