Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1946, Qupperneq 28
2(5
Verzhi narslíýrslur 1045
(5. Tollarnir.
Droils de donane.
í byrjun febrúar 1940 gekk tollskráin i gildi. Var þá hælt að reikna með
lollflokkum þeiiu, sem gert hafði verið áður (vínfangatolli, tóbakstolli,
kaffi- og sykurtolli, Ie- og súkkulaðstolli og vörutolli, auk verðtolls),
og öllum tollunum aðeins skift i Ivo aðalflokka, vörumagnstoll og verð-
loll, og er aðeins aðalupphæð þeirra hvors um sig tilfærð í ríkisréikn-
ingnum. Hins vegar er í tollskránni talinn upp aragrúi af einstökum
vörulegundum og tilgreint, hvaða tollgjald heri að greiða af hverri. Ef
vitað er um innflutningsmagnið og innflutningsverðið, má sjá, hve
mikill tollur fæst af hverri vörutegund. Innflutningsverðið sést í verzl-
unarskýrslunum, þvi að verðtollur samkvæmt tollskránni er miðaður
við innkaupsverð að viðbættum flutningskostnaði lil landsins. I>ó hefur
verið gerð sú breyting, að síðan 16. apríl 1942 hefur ekki verið reiknaður
neinn verðtollur af farmgjaldi á sykri, og 50% hækkun á farmgjöldum frá
Ameríku, sem var í gildi frá 8. maí 1943 til 1. júlí 1944, var heldur ekki
tekin með við tollálagningu. Af gömlu tollvörunum (áfengi, tóbaki, kaffi
og sykri, tei og kakaó) er vörumagnstollurinn miðaður við nettómagn,
og má líka sjá það í verzlunarskýrslunum. Af öðrum vörum miðast vöru-
magnstollurinn aftur á móti við brúttómagn, og sést það ekki i verzlunar-
skýrslunum. Verður því.ekki unnt að reikna út eftir verzlunarskýrslun-
um og tollskránni, live mikill vörumagnstollur fæst af þeim vöruin, nema
með því að bæta fyrst við vörumagn verzlunarskýrslnanna áætlaðri upp-
liæð fyrir umbúðaþyngdinni.
í töflu IX (bls. 105- 106) hefur verið reiknaður út ])yngdartollurinn
árið 1945 af vörum gömlu tollflokkanna (áfengi, tóbaki, kaffi og sykri, tci
og kakaó) eftir innflutningsmagni þeirra i verzlunarskýrslunum. Má af
því fá samanburð við þessa tolla undanfarin ár. Slíkur samanburður er
í 9. yfirliti, sem nær yfir 5 síðustu árin og þrjú 5 ára tímabil. Er þar einnig
tekin heildaruppliæð vörumagnstollsins af öðrum vörum og verðtollurinn.
Arið 1945 hefur vörumagnstollurinn alls hækkað um 2% millj. kr. eða
rúml. 22% frá árinu á undan, en verðtollurinn hefur hækkað um 12%
millj. kr. eða um 35%. Alls hafa innflutningstollarnir liækkað úr 46.3 millj.
kr. árið 1944, upp í 61.3 millj. kr. árið 1945 eða um 32%.
í töflu IX hefur einnig verið reiknaður út tollur af nokkrum vörum
öðrum heldur en gömlu tollvörunum. Eru það vörur, þar sem umbúða
gætir lítið eða ekkert í innflutningnum, svo sem trjáviður, kol, stein-
olía, salt og sement.
í lögum um Fiskveiðasjóð frá 1943 var svo ákveðið, að frá byrjun
aprílmánaðar það ár skyldi allt hið almenna útflutningsgjald (samkv. 1.
frá 1935) renna í Eiskveiðasjóð, en áður hal'ði meginhluti þess runnið i
ríkissjóð, en aðeins lítill hluti af því i Fiskveiðasjóð. Hið sérstaka útflutn-
ingsgjald af isfiski (10%) rann hinsvegar allt í ríkissjóð, og var það í