Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1946, Page 148
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar itarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út i
sjálfstæðum heftum, og fásl þau keypt einstök. Menn geta líka
gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint
til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 12 ltrónur um árið.
Á hverju ári kemur út eitt hefti af verzlimarskýrslum, bún-
aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innílutning og útílutning, framfærsluvisitölu og ýmislégt Ileira,
sem ekki þykir taka að birta i sérstöku hefti afí Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma
um itarlegri skýrslur. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim töl-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töílur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930.
IV. Manntal á íslandi árið 1703, tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vidalín. Komin eru út 16 liefti, og er í þeim allt
manntalið frá 1703, en í viðauka er birt manntal í 3 sýslum frá
árinu 1729, og er enn eftir nokkur hluti luins.