Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Side 9
Verzlunarskýrslur 1950
7*
beitusíld hefur hins vegar, samkvæmt ákvæðum gengisskráningarlaganna,
verið greitt 8% útflutningsgjald, auk kr. 1,70 verðjöfnunargjalds á kg,
sem lagt var á frá og með 7. ágúst 1950.
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti ísfisks í verzlunar-
skýrslum gilda sérstakar reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum
um útfluttar vörur síðar í inngangi þessum.
Nokkuð kveður að því, að útflutningsverðmæti sé áætlað í skýrsl-
unum, þ. e. að reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutn-
ingsleyfi viðskiptadeildar utanríkisráðuneytisins. Er farið þannig að,
þegar látið er uppi af hálfu útflytjanda, að varan sé flutt út óseld.
Eru ekki tök á að lagfæra þetta síðar, og er hér uin að ræða óná-
kvæmni, sem getur munað miklu.
Þyngd vöru í verzlunarskýrslunum er nettóþyngd hennar, þ. e.
án ytri umbúða.
Það segir sig sjálft, að í verzlunarskýrslurnar koma aðeins vörur,
sem afgreiddar eru af tollyfirvöldunum á venjulegan hátt. Kaup ís-
lenzkra skipa (farskipa og togara) erlendis á vörum til eigin nota koma
að sjálfsögðu ekki í verzlunarskýrslum, og ef slíkar vörur eru fluttar
inn í landið, koma þær ekki á skýrslu, nema að svo mildu leyti sem
þær kunna að vera teknar til tollmeðferðar.
2. Gengisbreytingin í marz 1950.
The Devaluation of tlxe Króna in March 1950.
Með lögum nr. 22, 19. marz 1950, um gengisskráningu, launabreyt-
ingar, stóreignaskalt, framleiðslugjöld o. fl„ var ákveðið, að gengi ís-
lenzku krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar skyldi vera: $1 = krónur
16,2857, í stað krónur 9,34125 (miðgengi), er verið hafði í gildi síðan 21.
sept. 1949. Fól þetta i sér 42,6% læklcun á gengi krónunnar, sem
er sama sem að erlenda gjaldeyrisgengið sé hækkað um 74,3%. Hið
skráða sölugengi Landsbankans á erlendum gjaldeyri var sem hér segir
íyrir og eftir þessa breytingu, en nýja gengið lcom til framkvæmda
mánudaginn 20. marz 1950:
Frá og
Fyrir 20. með 20.
marz 1950 marz 1950
kr. kr.
1 sterlingspund 26,22 45,70
1 bandaríkjadollar 9,365 16,32
1 canadadollar 8,5135 14,84
100 danskar krónur 135,57 236,30
100 norskar krónur 131,10 228,50