Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Side 12
10*
Verzlunarskýrslur 1950
árið 1950 fæst: innflutningsverðmæti 610 milj. og útflutningsverðmæti
472 milj. kr., sbr. yfirlitið hér að ofan.
Ástæða er til að geta þess, að vikur og jafnvel mánuði fyrir og
eftir gengisbreytingu kveður mikið að því, að gengið, sem inn-
fluttar og útfluttar vörur eru raunverulega greiddar
eftir, komi ekki heim við það gengi, sem reiknað er með við tollaf-
greiðslu og þar með í verzlunarskýrslum. Vörur, sem koma til landsins
eftir gengisbreytingu, liafa oft verið greiddar áður en hún átti sér stað,
á því gengi, sem þá gilti, og sömuleiðis er erlent andvirði iitflutnings,
sem átti sér stað vikurnar fyrir gengisbreytingu, venjulega ekki greitt
fyrr en eftir hana, og kaupa bankarnir þá gjaldeyrinn á nýja genginu.
Við gengisbreytinguna í marz 1950 fylgdu og bankarnir enn þeirri gömlu
venju, að láta innflytjendur greiða vöruábyrgðir, sem stofnaðar höfðu
verið fyrir gengisbreytinguna, á eldra genginu. Hefur þar verið um að
ræða miklar upphæðir innflutnings, sem í hagskýrslum eru allar reikn-
aðar á nýja genginu. Fleira kemur hér til greina og gerir það að verk-
um, að nokkurn tima fyrir og eftir gengisbreylingu er ekki fyrir hendi
samræmi milli verðs í verzlunarskýrslum og raunverulegs greiðsluverðs.
3. Utanríkisviðskiptin í heild sinni og vísitölur innflutnings
og útflutnings.
Total External Trade and Indices for Imports and Exports.
Eftirfarandi i til 1950: yfirlit sýnir verðmæti Innflutt imporlR 1000 kr. innflutnings og Útflutt Snmtals exporls total 1000 kr. 1000 kr. útflutnings Útflutt umfrnm innflutt exp.—imp. 1000 kr.
1896—1900 meðaltal 5 966 7 014 12 980 1 048
1901—1905 — 8 497 10 424 18 921 1 927
1906—1910 — 11 531 13 707 25 238 2 176
1911—1915 — 18 112 22 368 40 480 4 256
1916—1920 — 53 709 48 453 102 162 — 5 256
1921—1925 — 56 562 64 212 120 774 7 650
1926—1930 — 64 853 66 104 130 957 1 251
1931—1935 — 46 406 48 651 95 057 2 245
1936—1940 — 57 043 74 161 131 204 17 118
1941—1945 — 239 493 228 855 468 348 — 10 638
1946—1950 — 478 924 337 951 816 875 — 140 973
1946 448 703i) 291 368 740 071 — 157 335
1947 519 014 290 776 809 790 — 228 238
1948 457 956 395 699 853 655 — 62 257
1949 425 696 290 044 715 740 — 135 652
1950 543 2512) 421870 965121 — 121 381
1) I>ur af 6 020 þús. kr. i'yrir vörur keyptar af erlendu setuliðunum á íslnndi.
2) Hér cru ckki meðtaldar vörur að uppliæð 1 817 þús. kr., sem keyptar voru af sctu-
liðunum á árunimi 1945—1947, sjá viðauka við töflu IV A á bls. 07.