Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Síða 13
Verzlunarskýrsíur 1950
11*
Heildarupphæð inn- og útflutnings er ekki aðeins komin undir
vörumagninu, heldur einnig því, hvort vöruverð er hátt eða lágt. Eftir-
farandi vísitölur sýna hreytingar verðsins og vöru-
magnsins síðan 1935 (verð- og vörumagn 1935 = 100). Eru allar
vörur, sem taldar eru í verzlunarskýrslunum, einnig reiknaðar með
verðinu fyrir árið á undan, og þau hlutföll, sem fást með því, notuð
lil þess að tengja árið við vísitölu undangengins árs. Nánari vitneskja
i'æst um vísitölur þessar með því að fletta upp í verzlunarskýrslum
1924, bls. 7*, og verzlunarskýrslum 1936, bls. 6*.
Verðvísitölur Vörumagnsvísitölur
indices of prices indices of quantum
Innflutt Útflutt Innflutt Útflutt
imp. cxp. imp. exp.
1935 100 100 100 100
1936 102 97 93 107
1937 113 110 103 112
1938 109 103 102 119
1939 126 133 112 111
1940 185 219 88 127
1941 209 310 138 127
1942 258 329 211 127
1943 297 282 186 177
1944 291 289 187 188
1945 269 294 261 194
1946 273 332 357 187
1947 308 362 370 172
1948 346 370 291 228
1949 345 345 271 180
1950 574 511 208 173
Tveir aftari dálkarnir í yfirlitinu sýna breytingar á inn- og
ú t f 1 u t n i n g s m a g n i. Árið 1949 nam innflutningurinn 425 696 þús.
kr. og útflutningurinn 290 044 þús. kr., en með óbreyttu verðlagi hefðu
tölurnar fyrir 1950 orðið sem hér segir: Innflutningur 327 075 þús. og
útflutningur 286 798 þús. kr. Verðmunurinn stafar af breyttu vörumagni
og hefur þvi innflutningsvörumagnið, frá 1949 til 1950, minnkað um
23,2%, og útflutningsvörumagnið um 3,5%.
Tveir fremri dálkar töflunnar hér að ofan sýna verðbreyt-
i n g a r. Hefur, eins og vænta má, orðið mikil hækkun á þessum verð-
vísitölum frá 1949 til 1950, vegna gengislækkunar krónunnar í marz
1951, sem hafði beinlínis í för með sér 74% hækkun fob-verðs innfluttrar
og útfluttrar vöru frá þeim tíma, er gengisbreytingin varð. Reiknað með
verðinu 1949 hefði innflutningurinn 1950, eins og áður segir, numið
327 075 þús. kr., en útflutningurinn 286 798 þús. kr. En verðmæti inn-
flutningsins varð (samkvæmt töflunni hér að framan) 543 251 þús., en
útflutningsins 421870 þús. kr. Frá 1949 til 1950 hefur því orðið 66%
verðhækkun á innflutningsvörunum, en 48% verðhækkun á útflutnings-
vörunum.
Hækkun þessi á verði innflutningsvaranna og útflutningsvaranna er
minni en hækkun erlenda gengisins, er nam 74,3%, enda hlýtur svo að