Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Page 16
14'
Verzlunarskýrslur 1950
vegur meira í vörumagninu heldur en sami þungi af þungavöru (með
lágu meðalverði á kg), svo sem kolum og salti. Vörumagnið getur því
aukizt, þótt þyngdin vaxi ekki, ef magn dýru vörunnar vex, en þunga-
vörunnar minnkar. Lítil aukning á þungavöru hleypir þyngdinni miklu
meira fram heldur en stórmikil aukning á dýrum vörum, svo sem vefn-
aðarvöru. Skýringin á þessu ósamræmi er þvi sú, að þungavörunnar
gætir miklu minna á móts við hinar dýrari í innflutningnum nú heldur
en áður. í útflutningnum er aftur á móti minni munur á vörumagns-
vísitölu og þyngdarvísitölu.
1. yfirlit sýnir innflutning og útflutning í hverjum
mánuði 1948—1950 samkvæmt verzlunarskýrslum, en síðar i inngang-
inum er yfirlit um mánaðarlega skiptingu innflutnings (4. kafli) og út-
flutnings (5. kafli) eftir vöruflokkum. — Innflutnings- og útflutnings-
tölurnar fyrir 3 fyrstu mánuðina 1950 eru ekki sambærilegar við töl-
urnar eftir að gengisbreytingin kom til, eins og vikið var nánar að í
!i. kafla inngangsins.
4. Innfluttar vörur.
lmports.
Tafla IV A (bls. 12—67) sýnir, live mikið hefur flutzt til landsins
af liverri vörutegund. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir liinni alþjóðlegu
vöruskrá Þjóðabandalagsins gamla, sem var fyrst lögð til grundvallar í
verzlunarskýrslunum fyrir 1938. Þar sem þessi vöruskrá er lágmarkslisti
til samanburðar við önnur lönd, þá er sundurliðunin í verzlunarskýrsl-
unum gerð allmiklu ýtarlegri með því að skipta númerum vöruskrár-
innar í undirliði. Síðan 1947 hefur þessi sundurliðun verið það ýtarleg,
að hvert einstakt tollnúmer er gert að sérstökum lið, þar sem um nokk-
urn teljandi innflutning er að ræða. Jafnframt er tilfært tollskrárnúmer
við hvern lið. Þar sem verzlunarskýrsluliður nær yfir fleiri en eitt toll-
skrárnúmer, er þyngd og verð liðarins í heild tilgreint með ahnennu
lctri, en þar á eftir með smáletri innflutningur hvers tollskrárliðar, sem
fellur undir þann verzlunarskýrslulið.
Öllum vörutegundum í vöruskránni er skipt í 49 vöruflokka, og
þeim aftur skipt í stærri vörubálka. Yfirlit um þessar skiptingar
eru í töflu I og II (bls. 1—3). í töflu IV (bls. 12—67) sést, livernig ein-
stökum vörutegundum er niðurraðað í verzlunarskýrslunum. Er sú nið-
urröðun mjög frábrugðin þeirri niðurröðun, sem notuð er i tollskránni.
En í viðaukatöflu aftan við inngang verzlunarskýrslnanna (bls. 35*) er
skrá, sem raðað er eftir tollskrárnúmerum, og tilgreint, undir hvaða
verzlunarskýrslunúmer hvert þeirra fellur. Má því nota slcrá þessa sem
lykil til þess að fá vitneskju um, hvar í verzlunarskýrslunum ákveðið
tollskrárnúmer er að finna.