Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Qupperneq 21
Verzlunarskýrslur 1950
19'
brenndir drykkir eru taldir með vínanda, þannig að lítratala þeirra
drykkja er helminguð, þar eð þeir liafa um það bil hálfan styrkleika
á við hreinan vínanda. Eru tveir lítrar af brenndum drykkjum þannig
látnir samsvara einum lítra af vínanda. Mannfjöldatalan, sem notuð er
til þess að finna neyzluna á mann, er meðaltal fólksfjöldans í árslok
1949 og 1950, þ. e. 142 668.
Hluti kaffibætis af kaffineyzlunni samkvæmt yfirlitinu var sem hér
segir síðustu fimm árin (100 kg): 1946: 2445, 1947: 2635, 1948: 2148,
1949 : 2272, 1950 : 2588.
4. yfirlit sýnir v e r ð m æ t i i n n f 1 u 11 r a r v ö r u e f t i r m á n u ð u m
og vöruf 1 okkum. I kaflanum um gengisbreytinguna 1950 og um
vísitölur innflutnings og útflutnings hefur verið gerð grein fyrir áhrif-
um gengisbreytingarinnar á tölur verzlunarskýrzlnanna 1950 og vísast
til þess. Tölur þær, sem þar eru gefnar upp um innflulningsverðmætið
fyrstu mánuðina umreiknað samkvæmt nýja genginu, eru ekki fyrir hendi
að því er tekur til einstakra vöruflokka. — Skip eru eins og fyrr
greinir tekin á skýrslu hálfsárslega, með innflutningi mánaðanna júni
og desember. Af skipunum, sein talin eru á bls. 17*, eru hin tvö fyrst
nefndu með innflutningi júnímánaðar, en það síðast nefnda með desem-
her, enda er verð þess, eins og það er tekið á skýrslu, miðað við nýja
gengið.
5. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu IV B (bls. 68—73) er skýrt frá útflutningi á hverri
einstakri vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörurnar þar
flokkaðar eftir skyldleika á sama hátt sem innfluttu vörurnar, og eru
yfirlit yfir þá flokkaskiptingu í töflu I og II (bls. 1—3).
Eins og greint var frá i 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í
verzlunarskýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um
horð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fara fyrst frá, samkvæmt sölu-
reikningi útflytjanda. Þessi regla getur ekki átt við í s f i s k, sem íslenzk
skip selja í erlendum höfnum, og gilda því um verðákvörðun hans í
verzlunarskýrslum sérstakar reglur, er nú skal gerð grein fyrir. Frá
brúttósöluverði ísfisksins samkvæmt upplýsingum Fiskifélagsins dregst
sölukostnaður erlendis ásamt innflutningstolli, samtals 20% að því er
snertir ísfisk til Bretlands, þar af ca. 9,1% innflutningstollur. Að öðru
leyti er hér um að ræða löndunarkostnað, svo sem uppskipun fisksins,
hafnargjöld, þóknun til umboðsmanna skipanna o. fl. Áður nefnd 20%
eru áætlun, sem látin er gilda jafnt fyrir öll skip, þó að sölukostnaður
þeirra sé að sjálfsögðu all mismunandi. Af söluverði ísfisksins lil Þýzka-
lands nam frádrátturinn vegna löndunarkostnaðar 5% fram til október-
loka 1950, en frá og með nóvember s. á. hefur hann verið 10% líka þar.