Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Page 32
30'
Vcrzlunarskýrslur 1950
Það hefur verið regla í íslenzkum verzlunarskýrslum að miða við-
skiptin við innkaupsland og söluland, hvaðan vörurnar eru
keyptar og hvert þær eru seldar. Én margar innfluttar vörur eru keyptar
í öðrum löndum en þar, sem þær eru framleiddar, og eins er um ýmsar
útfluttar vörur, að þær eru notaðar í öðrum löndum en þeim, sem fyrst
kaupa þær. Innkaups- og sölulöndin gefa því ekki rétta hugmynd uin
liin eiginlegu vöruskipti milli framleiðenda og neytenda varanna. Ýmis
lönd hafa því breytt verzlunarskýrslum sínum viðvíkjandi viðskiptalönd-
um í það horf, að þær veita upplýsingar um upprunaland og neyzluland.
Til þess að fá upplýsingar um þetta viðvíkjandi innflutningi til íslands,
er á innflutningsskýrslueyðublöðunum dálkur fyrir upprunaland var-
anna, auk innkaupslandsins, en sá dálkur hefur mjög sjaldan verið út-
fylltur. Hefur því ekki þótt tiltækilegt að gera yfirlit um það. Þó hefur
verið breytt til um nokkrar vörur, þar sem augljóst hefur þótt, hvert
upprunalandið var. Á þelta einkum við um sumar þungavörur, svo sem
kol, olíur, henzín, salt o. fl.
7. Viðskipti við útlönd eftir tollafgreiðslustöðum.
External Trade bij Customs Areas.
Töflu VII á bls. 107 er ætlað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar
vöru eftir tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram,
að tölur þessarar töflu eru að ýmsu leyti óáreiðanlegar vegna annmarka,
sem erfitt er að bæta úr. T. d. kveður talsvert að því, að farmar og ein-
stakar vörusendingar séu tollafgreiddar — og þar með taldar fluttar inn
— í öðru tollumdæmi en þar, sem innflytjandi er búsettur. Eins og vænla
má, er það aðallega í Reykjavík, sem tollafgreiddar eru vörur, sem fluttar
eru inn af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna hugmynd um
skiptingu útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið
á reiki, hvaðan útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af
því, að sölusambönd, sem hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og
útflutning á sumum helztu útflutningsvörunum, þannig að útflutnings-
vörur utan af landi eru afgreiddar í Reykjavík og oft ekki tilkynntar
Hagstofunni sem útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Tafla VII sýnir verðmæti innflutnings i pósti, en tilsvarandi skýrslur
um útflulning í pósti eru ekki fyrir hendi, enda hefur verið lítið um,
að verzlunarvörur væru sendar út í pósti. — Póstbögglar, sem sendir
e.ru að gjöf, hvort heldur hingað til lands eða héðan frá einstaklingum,
cru ekki teknir með í verzlunarskýrslurnar.