Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Síða 35
Verzlunarskýrslur 1950
33»
viðbótar aðflutningsgjöldum af benzíni, eins og þau eru talin í töflu
VIII. Síðan lög nr. 68/1949 voru sett vorið 1949, hefur gjald þetta numið
31 eyri á hvern benzínlitra. Tekjur ríkissjóðs 1950 af gjaldi þessu námu
11 300 þús. lu\, en þar af fóru lögum samkvæmt 1841 þús. kr. í brúa-
sjóð, þannig að á rekstrarreikning ríkissjóðs koma ekki nema 9 459
þús. kr. af gjaldi þessu. í verzlunarskýrslum 1949, bls. 27*, er greint
nánar frá innflutningsgjaldi þessu.
í 9. yfirliti er samanburður á vörumagnstolltekjum ríkissjóðs
af liinum gömlu tollvörum 5 síðustu árin og fjögur 5 ára tímabil þar
áður, og jafnframt eru tilgreindar þar vörumagnstolltekjur af öðrum
vörum og lieildarupphæð verðtollsins þessi sömu ár.
Hér fer á eftir yfirlit um hundraðshluta tolltekna ríkis-
sjóðs af heildarverðmæti innflutningsins. 1 því sambandi
verður að hafa í huga, að innflutningsgjaldið af benzini ásamt viðbótar-
gjöldum á innflutningsleyfi, svo og söluskattur á innfluttum vörum, er
hér ekki meðtalið í tolltekjunum, eins og fyrr var getið.
1931—35 meðaltal 13,4 % 1946 17,2 %
1936—40 — 16,2 — 1947 18,5 —
1941—45 — 18,6 — 1948 17,7 —
1946—50 — 17,4 — 1949 1950 19,3 — 14,7 —
1 1. kafla inngangsins er greint frá hinum ýmsu gjöldum á út-
f I u tning s vö r um, sem voru í gildi á árinu 1950. Eins og þar kemur
fram eru gjöld þessi, að útflutningsleyfisgjaldinu fráteknu, innheimt af
rikissjóði fyrir aðra aðila samkvæmt lagaákvæðum þar að lútandi. Tekjur
ríkissjóðs af útflutningsleyfisgjaldinu 1950 námu 411 þús. kr.
9. Tala fastra verzlana.
Number of Commevcial Establishments.
Skýrsla um tölu fastra verzlana árið 1950 i hverju lögsagnarumdæmi
á landinu er i töflu IX (bls. 110—111). Siðan 1943 er skýrsla þessi tölu-
vert meira sundurliðuð heldur en áður, þar sem reynt hefur verið að
skipta smásöluverzlununum eftir því, með hvaða vörur þær verzla. Tald-
ar eru hér með verzlunum fisk-, brauð- og mjólkurbúðir, þótt ekki þurfi
verzlunarleyfi til að reka þær, en þær hafa ekki verið taldar með áður
en forminu var breytt 1943. Útibú og aðskildar verzlunardeildir eru
taldar hver i sínu lagi sem sérstakar verzlanir.