Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1964, Side 10
8*
Verzlunarskýrslur 1963
kvæmt upphaflegri vöruskrá hennar. Tafla I í eldri Verzlunarskýrslum
hefur verið felld niður. Er ekki eftirsjá í henni, þar sem hún er aðeins
samdráttur næstu töflu á eftir.
Inngangur Verzlunarskýrslna 1963 er að formi og innihaldi til að
mestu óbreyttur frá því, sem verið hefur.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að 1951 var innflutningurinn í Verzl-
unarskýrslum eingöngu talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutnings-
landinu (fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er
affermd á ákvörðunarstað. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og
vátryggingu. Síðan í Verzlunarskýrslum 1951 hefur innflutningurinn
einnig verið gefinn upp á fob-verði i nokkrum töflum. Svo er i töflum I
og IV í Verzlunarskýrslum 1963 og í 2. yfirliti í inngangi. — í þeim
kafla inngangsins, sem fjallar sérstaklega um innfluttar vörur, verður
vikið nánar að fob-verðmæti innflutningsins og mismun þess og cif-
verðmætisins.
Innflutmiigsskýrslurnar eru gerðar eftir tollskýrslum innflytjenda,
sem Hagstofan fær samrit af. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar
eru til landsins, er þó öðru vísi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær
Hagstofan yfirleitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur beint frá lilutað-
eigandi innflytjendum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða
kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutn-
ingskostnaður og kemur þá fram verðmætið, sem tekið er í verzlunar-
skýrslur. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið tekinn
á skýrslu liálfsárslega, þ. e. með innflutningi júnímánaðar og desember-
mánaðar, og sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainnflutninginn. Þó
var skipainnflutningurinn í janúar og febrúar 1960 talinn með innflutn-
ingi febrúarmánaðar, þar sem rétt þótti að reikna hann á því gengi, sem
gilti fyrir 22. febr. 1960, enda voru allar tölur verzlunarskýrslna frá 1. marz
1960 miðaðar við það gengi, sem kom til framkvæmda 22. febrúar. — í
kaflanum um innfluttar vörur síðar í innganginum er gerð nánari grein
fyrir skipainnflutningnum á árinu 1963. — Útflutt skip hafa að jafnaði
verið tekin á skýrslu liálfsárslega. í kaflanum um útfluttar vörur síðar
í innganginum er gerð grein fyrir sölu skipa úr landi 1963.
Útflutningurinn er í verzlunarskýrslum talinn á söluverði afurða
með umbúðum, fluttra um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst
fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi út-
flytjanda. Sé um að ræða greiðslu umboðslauna til erlends aðila og það
heimilað í útflutningsleyfinu, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að
hreint fob-verð komi fram. — Fob-verð vöru, sem seld er úr landi með
cif-skilmálum, er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutnings-
kostnað og tryggingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. — Nettóverðið
til útflytjandans er fob-verðið samkvæmt verzlunarskýrslum að frádregn-
um gjöldum á útflutningi. Héldust þau óbreytt frá því, sem var á