Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1964, Síða 11
Verzlunarskýrslur 1963
9*
árinu 1962, og er gerð grein fyrir þeim á bls. 7* i Verzlunarskýrsl-
uin 1962.
Við ákvörðun á útflutiiingsverðmæti isfisks í verzlunarskýrslum
gilda sérstakar reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar
vörur síðar í inngangi þessum.
Allmikið er um það, að úflutningsverðmæti sé áætlað í skýrslunum,
þ. e. að reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutningsleyfi
útflutningsdeildar viðskiptamálaráðuneytisins. Fer svo, þegar látið er
uppi af hálfu útflytjanda, að varan sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að
lagfæra þetta síðar, og er hér um að ræða ónákvæmni, sem getur mun-
að miklu.
Það segir sig sjálft, að í verzlunarskýrslur koma aðeins vörur, sem
afgreiddar eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup íslenzkra skipa
og flugvéla erlendis á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í
verzlunarskýrslum, og ef slíkar vörur eru fluttar inn í landið, koma þær
ekki á skýrslu, nema að svo miklu leyti sem þær kunna að vera teknar
til tollmeðferðar.
Þgngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó í verzlunar-
skýrslur. Innfluttar vörur voru taldar netló fram að 1951, en frá og með
því ári voru þær taldar brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Ástæða þessarar
breytingar var aðallega sú, að illa gekk að fá nettóþyngdina upp gefna
í tollskýrslum, þar sem hún skipti ekki máli við tollafgreiðslu. Hins
vegar var brúttóþyngd yfirleitt tilgreind í tollskýrslu, vegna þess að vöru-
magnstollur var miðaður við hana. Með nýjum tollskrárlögum, sem komu
til framkvæmda 1. maí 1963, var vörumagnstollur felldur niður á öllum
vörum, nema á salti og eldsneyti, þar sem þýðingarlaus vörumagnstollur
var látinn haldast óbreyttur, og á kartöflur og á lýstar og framkallaðar
kvikmyndafilmur var lagður vörumagnstollur í stað verðtolls. — vegna
ýmissa annmarka á að miða innflutning við brúttóþyngd, var ákveðið að
reikna þgngd hans nettó frá og með 1. maí 1963, er nýja tollskráin kom
til framkvæmda. í því sambandi er rétt að geta þess, að í verzlunarskýrsl-
um flestra landa er innflutningur miðaður við nettóþyngd. — Því miður
voru ekki föng á að umreikna þyngd innflutnings fjögra fyrstu mánað-
anna 1963 til nettóþyngdar, og eru því þyngdartölur innfluttrar vöru 1963
sambland brúttó- og nettóþyngdar.
Hinn 20. september 1963 voru farmgjöld Eimskipafélags íslands felld
undan hámarksákvæðum Verðlagsnefndar, og ákvað félagið þá 24,6%
hækkun á stgkkjavörufarmgjöldum, þó var hækkunin á vörum fluttum
frá Rússlandi heldur minni, eða tæpl. 20%. Hækkun þessi tók ekki til
kornvöru og fóðurvöru í sekkjum og ekki heldur til sykurs í sekkjum né
til smjörlíkisolíu. Hins vegar varð sama hækkun á farmgjaldi kaffis og
á öðrum vörum almennt. Rétt eftir að þessi hækkun var ákveðin, var
farmgjöldum fjölda vara breytt, bæði til hækkunar og lækkunar, þó meir
b