Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1972, Síða 9
Vcrzlunarakýrslur 1970
T
Innflutningstölur verzlunarskýrslna eru afleiðing umreiknings i ís-
lenzka mynt á sölugengi, en útflutningstölur eru aftur á móti miðaðar
við kaupgengi.
Innflutningsskýrsliirnar eru gerðar eftir tollskvrslum innflytjenda,
sem Hagstofan fær samrit af. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar
eru til Iandsins, er þó öðru vísi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær
Hagstofan yfirleitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur heint frá hlutað-
eigandi innflytjendum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða
kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutn-
ingskostnaður og kernur þá fram verðmætið, sem tekið er í verzlunar-
skýrslur. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið tek-
inn á skýrslu hálfsárslega, þ. e. með innflutningi júnímánaðar og des-
embermánaðar, nema þegar sérstök ástæða hefur verið til annars, í sam-
bandi við gengisbreytingar. Sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainn-
flutninginn. — I kaflanum um innfluttar vörur síðar í innganginum er
gerð nánari grein fyrir innflutningi flugvéla og skipa 1970. — Útflutt
skip hafa að jafnaði verið tekin á skýrslu hálfsárslega. í kaflanum um
útfluttar vörur siðar í innganginum er gerð grein fyrir sölu skipa úr
landi 1970.
Útflutningurinn er í verzlunarskýrslum talinn á söluverði afurða
með umbúðum, fluttra um borð i skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst
fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflyt j-
anda. Sé um að ræða greiðslu umboðslauna til erlends aðila og það heimil-
að i útflutningsleyfinu, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að hreint fob-
verð komi fram. — Fob-verð vöru, sem seld er úr Iandi með cif-skilmálum,
er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutningskostnað og trygg-
ingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. — Nettóverðið til útflytjand-
ans er fob-verðið samkvæmt verzlunarskýrslum að frádregnum gjöldum á
útflutningi. í kjölfar gengisbreytingar i nóv. 1968 var útflutningsgjaldi
af sjávarafurðum breytt l'rá og með ársbyrjun 1969, sjá II. kafla laga nr.
79/1968, um ráðstafanir i sjávarútvegi vegna breytingar gengis islenzkrar
krónu. Gjaldi þessu var enn breytt með bráðabirgðalögum nr. 73 1. júní
1970. Vísast til beggja þessara laga. Auk hins almenna útflutningsgjalds á
sjávarafurðum, greiða útflytjendur þeirra gjald af fob-verði í Aflatrygg-
ingasjóð sjávarútvegsins, þó ekki af afurðum frá hvalveiðum og selveiðum,
sbr. lög nr. 77/1962. Gjald þetta var frá og með 19. febrúar 1969 hækkað úr
1 Vi°/o i 2y<i% með lögum nr. 74/1969, um breyting á lögum nr. 77/1962,
og enn frekar í 2%% 1. júní 1970, með bráðabirgðalögum nr. 23/1970.
Þá skal greiða 0,15% af fob-verði sjávarafurða til ferslcfiskeftirlits,
sbr. lög nr. 42/1960. Loks er innheimt sérstakt gjald af útfluttum sild-
arafurðum, sjá lög nr. 40/1966, einnig síldarmatsgjald og síldarsölu-
gjald. — Engin gjöld eru á útfluttum landbúnaðarafurðum og iðnaðar-
vörum.
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti isfisks i verzlunarskýrslum