Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1972, Side 47
Verzlunarskýrslur 1970
45*
aðallega í Reykjavík, sem tollafgreiddar eru vörur, sem fluttar eru inn
af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna hugmynd um
skiptingu útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið
á reiki, hvaðan útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af því,
að sölusambönd, sem hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning
á sumum helztu útflutningsvörunum, þannig að útflutningsvörur utan af
landi eru afgreiddar í Reykjavík og oft ekki tilkvnntar Hagstofunni sem
útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Eigin afli fiskiskipa, seldur af þeim sjálfum í erlendri höfn (aðal-
lega ísuð síld og annar ísvarinn fiskur) hefur hingað til í töflu VI verið
talinn fluttur út frá Reykjavík. Á þessu eru augljósir annmarkar, sem
aukast með vaxandi ísfiskútflutningi, og því er þessu brejdt frá og með
Verzlunarskýrslum 1970. Þessi útflutningur er nú í sérstökum lið í
töflu VI.
Tafla VI sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um út-
flutning í pósti og því nær eingöngu frá Reykjavík. — Póstbögglar, sem
sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað til lands eða héðan frá einstakling-
um, eru ekki teknir með í verzlunarskýrslur.
í töflu VI kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvöru-
geyinsluna í Reykjavík. Tollvörugeymslan h.f., sem fékk heimild ráð-
herra til að reka almenna tollvörugeymslu í Reykjavik (sbr. lög nr.
47/1960 og reglugerð nr. 56/1961), hóf starfsemi í ágúst 1964. Aðalhlut-
verk hennar er að skapa innflytjcndum aðstöðu til að fá, að vissu marki,
einstakar vörusendingar tollafgreiddar smám saman eftir hentugleikum.
Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega fyrirferðarlitlar vörur, og vörur
með háum tolli, sem færðar eru í tollvörugeymslu. — Það skal tekið fram,
að Hagstofan telur allar vörur i vörusendingu fluttar inn, þegar þær eru
færðar i tollvörugeymslu eftir komu þeirra til landsins í farmrými skips
eða flugvélar, eða i pósti, — en ekki þegar einstakir hlutar vörusendingar
eru endanlega tollafgreiddir og afhentir innflytjanda.
7. Tollamir.
Customs duties.
Hér skal gerð grein fyrir þeim gjöldum, sem voru á innfluttum
vörum á árinu 1970.
Hið sérstaka innflutningsgjald á benzini samkvæmt vegalögum hélzt
óbreytt i kr. 5,67 á lítra. Sama er að segja um gjald af hjólbörðum og
gúmmislöngum, kr. 36,00 á kg.
Gjald af fob-verði bifreiða og bifhjóla (sbr. 16. og 35. gr. laga nr.
4/1960, um efnahagsmál, og reglugerð nr. 71/1969) var fellt niður frá
1. marz 1970, sjá augl. nr. 333 31. des. 1969. Þá var og heimiluð endur-
greiðsla á gjaldi þessu, greiddu vegna bifreiða, sem tollafgreiddar voru