Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Page 8
6*
Verslunarskýrslur 1973
í annarri skránni ætti sér „mótnúmer“ með nákvæmlega sama innihaldi
í hinni. Dró þetta úr notagildi skrárinnar og hagskýrslugerð á þessu sviði
torveldaðist, en þetta ATar lagfært, með því að bælt var áður nefndum
rúmlega 200 undirliðum við Brússel-skrána, jafnframt því sem ýmsar
breytingar voru gerðar á tölfræðilegu vöruskránni. Ivomust þessar tvær
skrár þar með í fullt samræiui hvor við aðra.
í Brússel-skránni eru á 14. hundrað vörunúmer að meðtöldum áður
nefndum 200 undirliðum. í hinni endurskoðuðu tölfræðilegu skrá (Stand-
ard International Trade Classification, Revised), sem gefin var út af
Sameinuðu þjóðunum, New York 1901, voru 1312 vörunúmer. í islensku
tollskránni eru nú um 2100 vörunúmer, eða um 800 fleiri en í Brússel-
skránni. Þessi viðbót stafar af skiptingu á sumum númerum alþjóðlegu
skrárinnar.
Hin endurskoðaða vöruskrá hagstofu Sameinuðn þjóðanna er þannig
uppbjTggð: í 625 undirflokkum („subgroups“, táknaðir xxx.x) á hver vara
i millirikjaviðskiptum sinn stað. Af þessum undirflokkum eru 278 skiptir
þannig að 944 númer („subsidiary headings“, táknuð xxx.xx) bætast við
625-^-278 númer, og verður heildartala vörunúmera þá 1312, eins og
áður segir. Hinir 625 undirflokkar skiptast á 177 vöruflokka („groups“,
táknaðir xxx), og þeir ganga upp i 56 vörudeildir („divisions", táknaðar
xx), sem að lokum mynda vörubálka („sections“, táknaðir x).
Verslunarskýrslur fyrir árið 1973 eru með sömu tilhögun og versl-
unarskýrslur undanfarinna ára.
Aðaltafla innflutnings, tafla IV, er í tollskrárröð. Aðaltafla útflutn-
ings, tafla V, var frá og með Verslunarskýrslum 1970 sett í röð nýrrar
vöruskrár Hagstofunnar fyrir útflutning, sem telcin var í notkun i ársbyrj-
un 1970. Töflu III var breytt til samræmis AÚð þetta, og eru því útfluttar
vörur í henni í sömu röð og í töflu V, en saman dregnar, þannig að
verðmætistölur svara til 2ja fyrstu stafa hinnar 6 stafa tákntölu hvers
vöruliðs i vöruskrá útflutnings. Hér visast að öðru leyti til liðs 3 i skýr-
ingum við töflu V, á bls. 192. - - Að öðru leyti eru aðaltöflur að mestu
óbreyttar frá því, sem verið hefur.
Varðandi forin og uppsetningu á aðaltöflum innflutnings (IV) og
útflutnings (V) visast að öðru leyti til skýringa i upphafi hvorrar töflu.
Einkum er vísað til liða 3—5 i skýringum við töflu IV.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að 1951 var innflutningurinn í versl-
unarskýrslum eingöngu talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru i útflutnings-
landinu (fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er
affermd á ákvörðunarstað. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og
vátryggingu. Síðan í Verslunarskýrslum 1951 liefur innflutningurinn
einnig verið gefinn upp á fob-verði i nokkrum töflum. Svo er nú i töfl-
um I og IV og i 2. yfirliti i inngangi. — t þeim kafla inngangsins, sem
fjallar sérstaklega um innfluttar vörur, verður vikið nánar að fob-verð-
mæti innflutningsins og mismun þess og cif-verðinætisins.