Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Blaðsíða 9
Verslunarskýrslur 1973
7
Innflutningstölur verslunarskýrslna eru afleiðing umreiknings í ís-
lenska mynt á sölugengi, en útflutningstölur eru aftur á móti miðaðar
við kaupgengi.
Innflutningsskýrslurnar eru gerðar eftir tollskýrslum innflytjenda,
sem Hagstofan fær samrit af. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar
eru til landsins, er þó öðru vísi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær
Hagstofan yfirleitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur beint frá hlutað-
eigandi innflytjendum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða
kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaðui' heiinflutn-
ingskostnaðar og kemur þá fram verðmætið, sem tekið er i verslunar-
skýrslur. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið tek-
inn á skýrslu hálfsárslega, þ. e. með innflutningi júnímánaðar og des-
embermánaðar, nema þegar sérstök ástæða hefur verið til annars, í sam-
bandi við gengisbreytingar. Sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainn-
flutninginn. — I kaflanum um innfluttar vörur siðar í innganginum er
gerð nánari grein fyrir innflutningi flugvéla og skipa 1973. — Útflutt
skip hafa að jafnaði verið tekin á skýrslu hálfsárslega. 1 kaflanum um
útfluttar vörur siðar í innganginum er gerð grein fj'rir sölu skipa lir
landi 1973.
Útflutningurinn er í verslunarskýrslum talinn á söluverði afurða
með umbúðum, fluttra um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst
fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflvtj-
anda. Sé um að ræða greiðslu umboðslauna til erlends aðila og það heimil-
að í útflutningsleyfinu, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að lireint fob-
verð komi fram. — Fob-verð vöru, sem seld er úr landi með cif-skilmálum,
er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutningskostnað og trygg-
ingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. — Nettóverðið til útflytjand-
ans er fob-verðið samkvæmt verslunarskýrslum að frádregnum gjöldum á
útflutningi. I kjölfar gengisbreytingar i nóv. 1968 var útflutningsgjaldi
af sjávarafurðum breytt frá og með ársbyrjun 1969, sjá II. kafla laga nr.
79/1968, um ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis islenskrar
krónu. Gjaldi þessu var enn breytt með bráðabirgðalögum nr. 73 1. júní
1970, með lögum nr. 4/1971, með lögum nr. 17/1972 og með lögum
nr. 19/1973. Vísast til þessara laga. Auk hins almenna útflutnings-
gjalds á sjávarafurðum, greiða útflytjendur þeirra gjöld af fob-verði
i Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins og i Fiskveiðasjóð íslands, þó ekki
af afurðum frá hvalveiðum, selveiðum og hrognkelsaveiðum. Gjaldið til
Aflatryggingasjóðs Csbr. lög nr. 77/1962 og lög nr. 80/1971) var hækk-
að frá og með 19. fehr. 1969 úr 1%% í 2%%, með lögum nr. 74/1969,
um breyting á lögum nr. 77/1962, og enn frekar i 2%% 1. júní 1970,
ineð hráðabirgðalögum nr. 23/1970. Með lögum nr. 5 5. april 1971 var
veitt heimild til að lækka gjald af niðurlögðum og niðursoðnum sjávar-
afurðum i Aflatryggingasjóð úr 2,75% i 0.92%. Þessi heimild var notuð
og látin gilda frá 1. júlí 1970. Var gjaldið endurgreitl til samræmis við