Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Qupperneq 10
8*
Veralunarskýrslur 1973
það. Gjaldið til Fiskveiðasjóðs (sbr. lög nr. 55/1973) nemur 1% af
fob-verði og er innheimt frá og með í. júlí 1973. Þá skal greiða 0,15%
af fob-verði sjávarafurða til ferskfiskeftirlits, sbr. lög nr. 42/1960 og
lög nr. 55/1968. Loks er innheimt sérstakt gjald af útfluttum síldar-
afurðum, sjá lög nr. 40/1966, einnig síldarmatsgjald og síldarsölugjald.
— Engin gjöld eru á útfluttuin landbúnaðarafurðum og iðnaðarvörum.
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti isfisks í verslunarskýrslum
gilda sérstakar reglur, sem gerð er grein fyrir i kaflanum um útfluttar
vörur síðar i inngangi þessum.
Allmikið er um það, að útfliitningsuerðmæti sé áætlað i skýrslunum,
]). e. að reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutningsleyfi
útflutningsdeildar viðskiptaráðuneytisins. Fer svo, þegar látið er uppi
af hálfu útflytjanda, að varan sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að lag-
færa þetta siðar, og er hér um að ræða ónákvæmni, sem getur munað
miklu.
Það segir sig sjálft, að í verslunarskýrslur koma aðeins vörur, sem
afgreiddar eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup íslenskra skipa
og flugvéla erlendis á vörum til eigin nota lcoma að sjálfsögðu ekki í
verslunarskýrslum, og ef slíkar vörur eru fluttar inn í landið, koma þær
ekki á skýrslu, nema að svo miklu leyti sem þær kunna að vera teknar
til tollmeðferðar.
I}gngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó í verslunar-
skýrslur. Innfluttar vörur voru taldar nettó fram að 1951, en frá og með
því ári voru þær taldar brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Ástæða þessarar
breytingar var aðallega sú, að illa gekk að fá nettóþyngdina upp gefna
í tollskýrslum, þar sem hún skipti ekki máli við tollafgreiðslu. Hins
vegar var brúttóþyngd yfirleitt tilgreind i tollskýrslu, vegna þess að vöru-
magnstollur var iniðaður við hana. Með nýjum tollskrárlögum, sem komu
til framkvæinda 1. maí 1963, var vörumagnstollur felldur niður á öllum
vörum, nema á salti og eldsneyti, þar sem þýðingarlaus vörumagnstollur
var látinn haldast óbreyttur, og á kartöflur og á lýstar og framkallaðar
kvikmyndafilmur var lagður vörumagnstollur í slað verðtolls. — Vegna
ýmissa annmarka á að miða innflutning við brúttóþyngd, var ákveðið að
reikna þyngd hans nettó frá og með 1. maí 1963, er nýja tollskráin kom
lil framkvæmda. í því sambandi er rétt að geta þess, að í verslunarskýrsl-
um flestra landa er innflutningur iniðaður við nettóþyngd.
Farmgjöld á vörum í innflutningi og útflutningi hækkuðu veru-
lega á árinu 1973. Stykkjavörufarmgjöld innflutnings hækkuðu 15%
1. febrúar 1973. Vegna gengisfalls dollars var svo, í mars 1973, farið
að verðskrá stykkjavörufarmgjöld frá Póllandi, Rússlandi og Finnlandi
i norskum krónum, og fylgdi því þá þegar 11,5% farmgjaldahækkun
vöru frá þessum löndum, reiknað i krónum. Frá 5. des. 1973 hækkuðu
allir fanngjaldataxtar innflutnings um 15%. — Taxtar stórflutnings
(timbur, tilbúinn áburður o. fl.) eru öðrum lögmálum háðir en stykkja-