Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Page 30
28*
Vcrslunarskýrslur 1973
Innflutningur til framkvæmda Landsvirkjunar og til íslenska ál-
félagsins h.f. Innflutningur 1973 til i'ramkvæmda Landsvirkjunar nam
alls 43,3 millj. kr., og er liann meðtalinn í ölium töflum verslunar-
skýrslna, eins og verið hefur. Af þessari fjárhæð eru 26,8 millj. kr.
vegna hinnar nýju stórvirltjunar, sigölduvirkjunar, en að öðru leyti
er hér um að ræða kerfirástölvu, sem keypt var til landsins vegna alls
orkukerfis Landsvirkjunar. — Samkvæmt lögum nr. 59/1965, um Lands-
virkjun, með síðari breytingum, skal fella niður aðflutningsgjöld og
söluskatt af efni, tækjum og vélum til viðkomandi framkvæmda, þó ekki
af vinnuvélum. Frá og með sigölduvirkjun eru greidd full gjöld af
vinnuvélum við innflutning, en ríkissjóður endurgreiðir þau síðar eftir
ákveðnum reglum (þó ekki að fullu í raun).
Bygging álbræðslu í Straumsvík hófst á árinu 1967. Samkvæmt 14.
gr. samnings rikisstjórnarinnar og Swiss Aluminium Limited frá 28.
marz 1966, sem fékk lagagildi með lögum nr. 76/1966, er mestallt, sem
með þarf til byggingar álbræðslunnar, undanþegið aðflutningsgjöldum og
söluskatti. Þar eð hér er um að ræða erlenda fjárfestingu og mikinn inn-
flutning af sérstökum uppruna, var sá háttur hafður á 1967 og 1968, að
þessi innflutningur var ekki hafður með í árlegum innflutningstölum
Verslunarskýrslna. Hins vegar liefur hann frá og með 1968 verið meðtal-
inn í mánaðarlegum innflutningstölum, birtum í Hagtíðindum, sjá nánar
athugasemd neðst á bls. 69 í aprílblaði Hagtíðinda 1968. Að því er varð-
ar birtingu í Verslunarskýrslum er hins vegar, frá og með árinu 1969,
rekstrarvöruinnflutningur íslenska álfélagsins h.f. talinn með öðrum
innflutningi, enda er útflutningur áls, sem hófst á hausti 1969, tekinn
með öðrum útflutningi. Innflutningi til fjárfestingar er á hinn bóg-
inn eftir sem áður sleppt í öllum almennuni töflum Verslunarskýrslna. í
inngangi Verslunarskýrslna 1967 og 1968 voru birtar sérupplýsingar um
innflutning til Islenska álfélagsins h.f., sem á þeim árum var einvörðungu
vegna byggingar álbræðslu. í inngangi Verslunarskýrslna hvert ár 1969—
1972 er birt sams konar yfirlit um innflutning þess fyrirtækis til fjárfest-
ingar, en auk þess er birt sérskýrsla með upplýsingum um rekstrarvöru-
innflutning til álbræðslu, en hann kom fyrst til sögunnar 1969. Þær tölur
eru, eins og áður segir, taldar með almennum innflutningi. Þess skal getið,
að svo nefndar „verktakavörur“ innfluttar af Isl. álfélaginu eru ekki
teknar á skýrslu og því ekki meðtaldar i skýrslu þeirri, sem hér fer á
eftir. Er hér um að ræða tæki (þar með áhöld og verkfæri, svo og fylgi-
og varahlutir) til mannvirkjagerðar o. fl., sem ísl. álfélagið hyggst
flytja úr landi, þegar þar að kemur. Ef slikar vörur eru síðar seldar eða
afhentar til innlends aðila, eru þær teknar i innflutningsskýrslur, en þá
ekki sem innflutningur íslenska álfélagsins h.f.
Hér fer á eflir skýrsla um innflutning 1973 til framkv. Landsvirkjunar
og til fjárfestingar ísl. álfélagsins, og er hann greindur á vörudeildir
og á lönd innan þeirra. Fyrst er, fyrir hvorn aðilann um sig, tilgreind
nettóþyngd innflutnings í tonnum, síðan fob-verðmæti og loks cif-verð-