Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1980, Blaðsíða 19
Verslunarskýrslur 1979
17*
Á árinu 1979 voru fluttar inn 25 flugvélar að verðmæti alls 777 477 þús. kr.
Með innflutningi júnímánaðar er talin 1 sviffluga frá Danmörku að verðmæti
2 131 þús. kr., 1 flugvél frá Noregi að verðmæti 40 220 þús. kr., 2 flugvélar frá
Svíþjóð að verðmæti 13 958 þús. kr. og 9 flugvélar frá Bandaríkjunum að verð-
mæti 248 540 þús. kr. Með innflutningi desembermánaðar eru taldar 2 flugvélar
frá Danmörku að verðmæti 58 817 þús. kr., 1 flugvél frá Svíþjóð að verðmæti
14 529 þús. kr., 2 flugvélar frá Frakklandi að verðmæti 353 579 þús. kr., 2
svifflugur frá V-Þýskalandi að verðmæti 15 384 þús. kr., 4 flugvélar frá Banda-
ríkjunum að verðmæti 29 308 þús. kr. og 1 ósamsett flugvél frá Kanada að
verðmæti 1 011 þús. kr.
í 3. yfirliti er sýnd árleg neysla nokkurra vara á hverju 5 ára skeiði, síðan um
1880 og á hverju ári síðustu árin, bæði í heild og á hvern einstakling. Að því er
snertir kaffi, sykur og tóbak er miðað við innflutt magn og talið, að það jafngildi
neyslunni. Sama er að segjaum ölframan af þessu tímabili, en eftir að komið vará
fót reglulegri ölframleiðslu í landinu hefur hér verið miðað við innlent fram-
leiðslumagn. Síðan árið 1972 hefur innflutningur á öli (í tollskrárnr. 22.03) verið
talsverður (356 tonn 1979), og er það innflutta magn talið með í tölum um
ölneysluna síðan 1972. Ö1 innflutt af áhöfnumskipa ogflugvéla kemur ekki fram í
innflutningstölum. — Vert er að hafa það í huga, að innflutt vörumagn segir ekki
rétt til um neyslumagn, nema birgðir séu hinar sömu við byrjun og lok viðkomandi
árs, en þar getur munað miklu.
Tölurnar, er sýna áfengisneysluna, þarfnast sérstakra skýringa. Árin
1881—1935 er miðað við innflutt áfengismagn og talið, að það jafngildi neysl-
unni. Þá er og allur innfluttur vínandi talinn áfengisneysla, þó að hluti hans hafi
farið til annarra nota. Upplýsingar eru ekki fyrir hendi um, hve stór sá hluti hefur
verið, en hins vegar má gera ráð fyrir, að meginhluti vínandans hafi á þessu
tímabili farið til drykkjar. — Frá árinu 1935 er miðað við sölu Áfengisverslunar
ríkisins á sterkum drykkjum og léttum vínum og hún talin jafngilda neyslunni, en
vínandainnflutningurinn er ekki meðtalinn, enda er sá hluti hans, sem farið hefir
til framleiðslu sterkra drykkja hjá Áfengisversluninni, talinn í sölu hennar á
brenndum drykkjum. Pó að eitthvað af vínandainnflutningi hennar kunni að hafa
farið til neyslu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í töflunni, þar sem ógerlegt er
að áætla, hversu mikið það magn muni vera. Hins vegar má gera ráð fyrir, að það
sé mjög lítið hlutfallslega. — Innflutningur vínanda síðan 1935 er sýndur í
töflunni, en hafður í sviga, þar sem hann er ekki með í neyslunni. — Það skal tekið
fram, að áfengi (þar með áfengt öl), sem áhafnir skipa og flugvéla og farþegar frá
útlöndum taka með sér inn í landið, er ekki talið í þeim tölum, sem hér eru birtar,
en þar mun vera um að ræða mikið magn. Þetta ásamt öðru, sem hér kemur til
greina, gerir það að verkum, að tölur 3. yfirlits um áfengisneysluna eru ótraustar,
einkum seinni árin. — Mannfjöldatalan, sem notuð er til þess að finna neysluna á
mann hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjun og árslok. Fólkstala fyrir 1979,
sem við er miðað, er 225 700.
Hluti kaffibætis af kaffineyslunni samkvæmt yfirlitinu var sem hér segir síðustu
árin (100 kg); 1975: 126, 1976: 110, 1977: 90, 1978: 103, 1979: 62.
4. yfirlit sýnir verðmœti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vörudeildum. Fyrr í
þessum kafla er gerð grein fyrir skiptingu innflutnings skipa og flugvéla á júní og
desember, en hann er eins og áður segir aðeins tekinn á skýrslu tvisvar á ári.
í 5. yfirliti er sýnd sérstök skipting innflutnings 1979 eftir notkun vara og
landaflokkum. Breytt skipan vöruflokkunar og Iandssvæðaskiptingar, sem tekin
2
L