Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1982, Page 19
Verslunarskýrslur 1981
17*
þungavöru hleypir þyngdinni miklu meira fram heldur en stórmikil aukning á
dýrum vörum, svo sem vefnaðarvöru. Skýringin á þessum mun er því sú, að
þungavörunnar gætir miklu minna á móts við hinar dýrari í innflutningnum nú
heldur en áður. í útflutningnum er aftur á móti minni munur á vörumagnsvísitölu
og þyngdarvísitölu.
1. yfirlit sýnir innflutning og útflutning í hverjum mánuði 1979—1981 sam-
kvæmt verslunarskýrslum, en síðar í innganginum er yfirlit um mánaðarlega
skiptingu innflutnings (3. kafli) og útflutnings (4. kafli).
3. Innfluttar vörur.
Imports.
Tafla IV (bls. 28—234) sýnir innflutning 1981 í hverju númeri tollskrárinnar og
skiptingu hans á lönd. Sýnd er þyngd í tonnum (auk þess stykkja- eða rúmmetra-
tala nokkurra vörutegunda), fob-verð og cif-verð. Taflan er í tollskrárnúmeraröð
og vísast í því sambandi til skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu IV
á bls. 28.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti innflutningsins fob og cif eftir
vörudeildum núgildandi vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna. í töflu II á bls.
4—19 er sýnt verðmæti innflutningsins eftir vöruflokkum sömu skrár með skipt-
ingu á lönd.
í sambandi við fob-verðstölur innflutnings skal þetta tekið fram: Mismunur
cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar frá útflutningsstaðnum
ásamt vátryggingaiðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem hér um ræðir, er ekki
einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá erlendri útflutningshöfn til
íslands, heldur er í sumum tilfellum líka um að ræða farmgjöld með járnbrautum
eða skipum frá sölustað til þeirrar útflutningshafnar, þar sem vöru er síðast
útskipað á leið til íslands. Kemur þá líka til umhleðslukostnaður o. fl. Fer þetta
eftir því, við hvaða stað eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað kveður
að því, að vörur séu seldar cif íslenska innflutningshöfn. í slíkum tilfellum er
tilsvarandi fob-verð áætlað af tollyfirvöldum.
Frá og með Verslunarskýrslum 1981 þarf innflutningur frá landi að nema
minnst 10 þús. kr., til þess að hann sé tilgreindur sérstaklega í töflu IV — nema um
sé að ræða eitt land, sem svo er ástatt um.
2. yfirlit sýnir verðmœti innflutningsvaranna bœði cifog fob eftir vörudeildum.
Ef skip og flugvélar er undanskilið nemur fob-verðmæti innflutnings 1981 alls
6 416 512 þús. kr., en cif-verðið 7 198 304 þús. kr. Fob-verðmæti innflutnings
1981 að undanskildumskipum ogflugvélum varþannig89,l% af cif-verðmætinu.
— Ef litið er á einstaka flokka, sést, að hlutfallið milli fob-verðs og cif-verðs er
mjög mismunandi, og enn meiri verða frávikin til beggja handa, ef litið er á
einstakar vörutegundir.
Til þess að fá vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs skiptist á
vátryggingu og flutningskostnað, er tryggingaiðgjald áætlað 1% af cif-verði
flestra vara, nema á sekkjavöru í vörudeildum 04, 06, 08, og 56, þar er trygg-
ingaiðgjald reiknað 0,83% af cif-verði. Svo er einnig á kolum (32). Trygginga-
iðgjald á timbri í vörudeildum 24 og 63 er reiknað 0,70% af cif-verði, á salti (í 27.
vörudeild) 0,55%, og á olíum og bensíni (í 33. vörudeild) 0,55%. Á bifreiðum í
78. vörudeild er tryggingaiðgjald reiknað 2,50% af cif-verði. — Að svo miklu
2