Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1982, Qupperneq 30
28*
Verslunarskýrslur 1981
starfrækt frá janúarlokum til júníbyrjunar, og aftur frá júlílokum og árið út, með
6—7 MW afli. Síðan með 6 MW afli eða minna til miðs árs 1980, með 9-10 MW
afli fram á haust, og eftir það með 11,5 M W meðalafli til áramóta. Á árinu 1981
fékkst afl sem hér segir: 12 MW þar til seint í maí, síðan 6 MW til júlíloka. í ágúst
var vélin ekki starfrækt vegna hreinsunar og viðgerðar á henni. en frá sept-
emberbyrjun og til ársloka fór aflið smáhækkandi úr 12 MW í 16 MW. Vegna
gufuskorts hafði þegar á árinu 1976 verið ákveðið að hætta við uppsetningu
annarrar vélasamstæðu að svo stöddu. Frá ársbyrjun 1979 tóku Rafmagnsveitur
ríkisins við rekstri Kröfluvirkjunar af Kröflunefnd. — Innflutningur til Kröflu-
virkjunar nam 9,2 millj. kr. 1981. Sömu eða svipaðar reglur hafa gilt um niður-
fellingu gjalda á innflutningi til Kröfluvirkjunar og gilda um það, sem flutt er inn
til Sigölduvirkjunar.
Bygging álbræðslu íStraumsvík hófst á árinu 1967. Samkvæmt 14. gr. samnings
ríkisstjórnarinnar og Swiss Aluminium Limited frá 28. mars 1966, sem fékk
lagagildi með lögum nr. 76/1966, er mestallt, sem með þarf til byggingar
álbræðslunnar, undanþegið aðflutningsgjöldum og söluskatti. Þar eð hér var um
að ræða erlenda fjárfestingu og mikinn innflutning af sérstökum uppruna, var sá
háttur hafður á 1967 og 1968, að þessi innflutningur var ekki hafður með í
árlegum innflutningstölum Verslunarskýrslna. Hins vegar var hann frá og með
1968 meðtalinn í mánaðarlegum innflutningstölum, birtum í Hagtíðindum, sjá
nánar athugasemd neðst á bls. 69 í aprílblaði Hagtíðinda 1968. Til ársloka 1977
var innflutningur fslenska álfélagsins á fjárfestingarvörum tilgreindur sérstaklega
í Hagtíðindum mánaðarlega, en því var hætt frá ársbyrjun 1978. Að því er varðar
birtingu í Verslunarskýrslum var rekstrarvöruinnflutningur íslenska álfélagsins
frá upphafi talinn með öðrum innflutningi, enda var útflutningur áls, er hófst á
hausti 1969, tekinn með öðrum útflutningi. Innflutningi þessa aðila á fjárfest-
ingarvörum varhins vegarfram að 1977 sleppt í öllum töflum Verslunarskýrslna,
en frá og með 1977 er þessi innflutningur með talinn í öllum töflum V'erslunar-
skýrslna. Til 1976 var í sérstöku yfirliti í inngangi Verslunarskýrslna birt sundur-
greining á innflutningi íslenska álfélagsins annars vegar á rekstrarvörum og hins
vegar á fjárfestingarvörum, en frá og með Verslunarskýrslum 1977 er slík skipting
ekki sýnd í þessu yfirliti. — Þess skal getið, að svo nefndar „verktakavörur“ hafa
aldrei verið teknar á skýrslu og því ekki meðtaldar í yfirliti því, sem hér fer á eftir.
Er hér um að ræða tæki (þar með áhöld og verkfæri, svo og fylgi- og varahluti) til
mannvirkjagerðar o. fl., sem ísl. álfélagið hyggst flytja úr landi, þegar þar að
kemur. Ef slíkar vörur eru síðar seldar eða afhentar til innlends aðila, eru þær
teknar í innflutningsskýrslur, en þá ekki sem innflutningur íslenska álfélagsins. —
Innflutningur til þessa fyrirtækis á árinu 1981 nam alls 529,3 millj. kr. Þar af voru
86,6 millj. kr. fjárfestingarvörur, til uppsetningar hreinsitækja, sem lokið var við í
maí 1982..
Ríkisstjórnin gerði á árinu 1975 samning við bandaríska fyrirtækið Union
Carbide Corporation um stofnun hlutafélags til byggingar og rekstrar járnblendi-
verksmiðju á Grundartanga í Skilmannahreppi í Borgarfjarðarsýslu, sbr. lög nr.
10 26. apríl 1975. Voru á því ári hafnar framkvæmdir til undirbúnings mann-
virkjagerð á Grundartanga, en með samningi 9. júlí 1976 gekk bandaríska fyrir-
tækið úr Járnblendifélaginu og framseldi hlutabréf sín í því til ríkisstjórnarinnar.
Var þá framkvæmdum hætt í bili. Jafnframt fóru fram viðræður við Elkem-
Spigerverket A/S í Osló, og leiddu þær til samningsgerðar — sem þó var ekki
endanleg— hinn 8. desember 1976. Gerðist þetta fyrirtæki hluthafi í íslenska