Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1982, Page 37
Verslunarskýrslur 1981
35*
áranna 1977—81. Er hér um að ræða sérstaka flokkun útflutnings, sem gerð hefur
verið ársfjórðungslega frá og með ársbyrjun 1970. Hefur þessi flokkun verið birt í
Hagtíðindum fyrir hvern ársfjórðung, en í verslunarskýrslum er hún aðeins birt
fyrir heil ár.
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verslunarskýrsl-
um talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) í þeirri
höfn, er þær fara fyrst frá samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla getur
ekki átt við ísfisk, sem íslensk skip selja í erlendum höfnum, og gilda því um
verðákvörðun hans í verslunarskýrslum sérstakar reglur. Til ársloka 1967 var,
auk löndunar- og sölukostnaðar o. fl., dregin frá brúttósöluandvirði ísfisks
ákveðin fjárhæð á tonn fyrir flutningskostnaði, en þessu var hætt frá og með
ársbyrjun 1968. Á árinu 1980 fylgdi Fiskifélag íslands þessum reglum við út-
reikning á fob-verði ísfisks (og kolmunna í bræðslu) út frá brúttósöluandvirði
hans, og var hann tekinn í útflutningsskýrslur samkvæmt því (hundraðstölur
tilgreindar hér á eftir miðast allar við brúttósöluandvirði):
Bretland og V-Þýskaland: Á öllum ísfiski nema ísaðri síld: Löndunarkostnaður
kr. 0,10 á kg, hafnargjöld o. fl. 5,3%, sölukostnaður 3% í Bretlandi en 2% í
V-Þýskalandi, tollur 2% á ísuðum karfa, 3,7% á ísuðum þorski, ýsu og ufsa og
15% á öðrum ísfiski. Fœreyjar: Á ísfiski: 5,0% hafnargjöld o. fl.
Það skal tekið fram, að fiskiskip, sem selja ísfisk erlendis, nota stóran hluta af
andvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl., svo og til greiðslu á skips-
hafnarpeningum, en slíkt er ekki innifalið í áður nefndum frádrætti til útreiknings
á fob-verðmæti. Skortir því mjög mikið á, að gjaldeyri svarandi til fob-verðs sé
skilað til bankanna.
Utflutningsverðmœti 5 skipa, sem seld voru úr landi 1981 (í nr.
93.20.00—93.40.00 í töflu V), nam alls 24 591 þús. kr., og fer hérá eftir skrá yfir
þau:
Rúmlestir Útflutn.verðm.
brúttó þús. kr.
Skaftá til Panama, farskip................................................. 499 3 795
Bifröst til Sameinuðu arabafurstadæmanna, farskip ......................... 975 5 502
Gunnar SU-139 til Noregs, fiskiskip ....................................... 249 2 453
Háifoss til Svíþjóðar, farskip ..................................... 1 599 12 450
Helga Jó VE-41 til Færeyja, fiskiskip .............................. 12 391
Samtals 3 334 24 591
3 fyrst töldu skipin eru talin með útflutningi júnímánaðar, hin 2 með útflutningi
desembermánaðar.
Á árinu 1981 voru 4 flugvélar seldar úr landi, að verðmæti alls 2 003 þús. kr.
Með útflutningi júnímánaðar er talin ein flugvél seld til Bandaríkjanna, að verð-
mæti 909 þús. kr., og ein flugvél seld til Noregs, að verðmæti 670 þús. kr. — 2
flugvélar seldar til Bandaríkjanna að verðmæti 424 þús. kr. eru taldar með
útflutningi desembermánaðar.
í 6. yfirliti er sýndhlutfallslegskipting á verðmæti útfluttra afurða eftir uppruna,
þ. e. í meginatriðum eftir atvinnuvegum. Frá ársbyrjun 1970 kom til framkvæmda
endurskoðuð og bætt flokkun á útfluttum afurðum eftir uppruna. Hafa niður-
stöður hennar verið birtar í 6. yfirliti í Verslunarskýrslum síðustu ára, ásamt með
tölum samkvæmt eldri flokkuninni allt aftur til aldamóta, enda voru þær sæmilega
sambærilegar innbyrðis að því er varðar afurðir sjávarútvegs og landbúnaðar, en
útfluttar iðnaðarvörur komu ekki sérstaklega fram í eldri flokkuninni, heldur