Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1982, Side 39
Verslunarskýrslur 1981
37*
neytið, sjávarútvegsráðuneytið og iðnaðarráðuneytið, og auk þess var flokkun
þessi borin undir þær stofnanir hinna þriggja aðalatvinnuvega, sem hér eiga lilut
að máli. — Frá og með árinu 1977 er lagmeti (nr. 18 í töflu III) flokkað með
iðnaðarvörum, en ekki sjávarvörum. Hafa tölur 6. yfirlits um útfluttar afurðir af
fiskveiðum og af iðnaði verið færðar til samræmis við þessa breytingu árin
1971—76, en eldri tölur yfirlitsins eru látnar standa óbreyttar.
í 7. yfirliti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutnings 1981 skiptist á
mánuði.
Vörusala íslensks markaðar h.f. íslenskur markaður h.f. hóf í ágúst 1970
verslun með íslenskan varning í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Stærstu hlut-
hafar í þessu fyrirtæki eru Samband ísl. samvinnufélaga (28,6%) og Álafoss h.f.
(24,3%). Glit h.f., Osta- og smjörsalan og Sláturfélag Suðurlands eiga hvert um
sig 10% hlutafjárins, en aðrir hluthafar, um 20 talsins, eru aðallega framleiðendur
iðnaðarvöru. Áðalviðskiptamenn íslensks markaðar eru flugfarþegar, sem eru á
förum úr landi, en auk þess er nokkuð um, að kaupendur panti vörur og fái þær
sendar í pósti. Hvorki vörusala á staðnum né póstsending til útlanda er tekin í
útflutningsskýrslur. Að meðaltali hefur um 90% sölunnar verið í erlendum
gjaldeyri, og hefur sú sala numið sem hér segir (í þús. nkr.). 1971: 692,7, 1972:
721,9, 1973: 827,3, 1974: 880,2, 1975: 1 587,8, 1976: 2 268,3, 1977: 3 145,4,
1978: 6 081,4, 1979: 8 319,8, 1980: 8 947,4. og 1981: 12 186,7
Sundurgreining söluandvirðis eftir vörutegundum 1979—81 fer hér á eftir, í
þús nkr. Númer samkvæmt flokkunarskrá útflutnings (sjá töflu V) er tilgreint í
sviga:
1979 1980 1981
Grásleppuhrogn niöurlögö (18.31) 120,6 145,8 203,4
Annaö lagmeti úr sjávarafurðum 67,6 81,8 114,1
Reyktur fiskur ót. a. (49.29) 15,8 19,0 26,6
Kindakjöt fryst (51.10) 62,5 75,6 105,5
Ostur (57.10) 78,0 94,4 131,6
Aðrar landbúnaöarafurðir 13,1 15,9 22,2
Reyktur lax (79.41) 76,0 92,0 128,3
Vörur úr loðskinnum (80.10) 135,7 129,1 211,4
Gærur fullsútaöar (81.10) 133,9 102,8 106,4
Ullarteppi (83.10) 616,0 627,4 810.9
Vettlingar, húfur, treflar ofl., prjónaö (84.10, 84.50) 1081,3 1 161,0 1 532,8
Peysur prjónaðar (84.40) 1 987,7 2 067,1 2 866,1
Ytri fatnaður, prjónaður og ofinn (84.50 og 88.20) 2 491,8 2 625,8 3 423,7
Skrautmunir og húsbúnaður úr postulíni (89.58) 326,3 316,2 431,2
Silfur- og gullsmíðavörur (89.80.10) 339,4 301,4 349,4
íslenskar iðnaðarvörur ót. a 248,9 277,3 438,3
Ýmsar vörur 525,2 814,8 1 284,8
Alls 8 319,8 8 947,4 12 186,7