Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1993, Side 15
3. Innfluttar vörur
Imports
Verslunarskýrslur 1992
13
Megintöflur innflutnings í verslunarskýrslum eru fjórar.
Tafla I sýnir þyngd og verðmæti innflutnings eftir vöru-
deildum vöruskrárhagstofu Sameinuðu þjóðanna, þ.e. tveggja
stafa SITC-flokkun.
Tafla II sýnir þyngd og verðmæti innflutnings eftir helstu
viðskiptalöndum og eftir vöruflokkum, þ.e. þriggja stafa
SITC-flokkun.
Tafla V sýnir magn og verðmæti innfluttrar vöru eftir
tollskrárnúmerum og löndum. í tengslum við þessa töflu skal
á það bent að í verslunarskýrslum 1992 þarf innflutningur frá
landi að nema minnst 500 þús. kr. til þess að hann sé
tilgreindur sérstaklega, nema þegar svo stendur á að einungis
sé um að ræða innflutning fráeinu landi. Þá skal þess getið að
textarerubirtirviðeinstöktollskrámúmeríverslunarskýrslum.
Tekið skal fram að hér er um að ræða styttingar á textum
tollskrár en ekki nákvæmur texti hennar. í viðauka erjafnframt
birt ágrip af atriðisorðaskrá tollskrár. Þar eru tilgreind öll
helstu vöruheiti sem fram koma í tollskrá með tilvísunum til
viðeigandi tollskrámúmera.
Tafla VII sýnir loks innflutning eftir hagrænum flokkum,
þ.e. notkunarflokkum, og markaðssvæðum.
I þessum kafla em birt ýmis samandregin yfirlit um
vöruinnflutninginn á árinu 1992.
8. y firlit sýnir verðmæti innfluttrar vöm eftir mánuðum og
vörudeildum og er þetta hliðstæð tafla og áður hefur birst í
verslunarskýrslum.
9. yfírlit sýnir innflutning á skipum á árinu 1992. Tölur
þessarar töflu em nokkm hærri en þær sem fram koma í 3.
yfirliti og stafar það af því að hér em öll skip og allir bátar
meðtaldir en í 3. yfirliti eru bátar undir 10 rúmlestum ekki
meðtaldir. Með skipainnflutningi em meðtaldar endurbætur
á fiskiskipum erlendis en tölur um þær eru teknar ársfjórð-
ungslega eftir upplýsingum Seðlabankans og byggjast þær á
gögnum um veitt lán til þessara endurbóta.
Sundurliðun á flugvélakaupum er sýnd í 10. yfirliti.
Fróðlegt er að athuga hvernig hlutfall fob-verðs og cif-
verðs hefur þróast undanfarin ár. Árið 1992 nam heildar-
verðmæti innflutningsins cif 96.895,4 millj. kr. en fob-
verðmæti hans 88.223,7 millj. kr. eða sem nam 91,1 % af cif-
verðmætinu. Sambærilegt hlutfall var91,0% árið 1991. Að
undanskildum skipum og flugvélum, en á þeim fer fob- og
cif-verð að mestu saman, var hlutfall fob-verðmætis af cif-
verðmæti innflutnings 90,4% árið 1992 samanborið við
90,5% árið 1991,90,7% árið 1990 og 89,1 -89,9% árin 1984-
1989.
Innflutningur varnarliðseigna Imports of surplus goods
from the Defence Force. Við lok heimsstyrjaldarinnar var
sett á fót nefnd, er keypti fyrir hönd ríkissjóðs ýmsar eignir
setuliðanna tveggja, sem þau fluttu ekki úr landi. Nefndin sá
og um sölu slíkra eigna til innlendra aðila. Árið 1951 hófust
sams konar kaup af bandaríska liðinu, sem kom til landsins
samkvæmt vamarsamningi fslands og Bandaríkjanna í maí
1951. Síðar hafa hér bæst við kaup á bílum o.fl. frá einstökum
varnarliðsmönnum, svo og kaup frá íslenskum aðalverktökum
á tækjum o.fl., sem þeir hafa flutt inn tollfrjálst vegna
verkefna fyrir varnarliðið. Þessi kaup eru meðtalin í tölum
11. yfirlits. Vömr þær, sem hér um ræðir, em ekki toll-
afgreiddar eins og aðrar innfluttar vömr, og er þar af leiðandi
ógerlegt að telja þær með innflutningi í verslunarskýrslum.
Af þessum sökum er íl 1. yfirliti gerð grein fyrir innflutningi
varnarliðseigna eftir vöruflokkum árin 1990-1992.
Að lokum skal það tekið fram að innflutningur til
vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli, til verktakastarfsemi í
þágu þess svo og innflutningur til Fríhafnarinnar á Kefla-
víkurflugvelli telst ekki vera innflutningur til landsins og
kemur því ekki á verslunarskýrslur.