Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2011, Blaðsíða 23
Smáauglýsingar
smaar@dv.is
sími 512 7004
Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00
BÍLALIND.is - Funahöfða 1
110 Reykjavík - S: 580-8900
DODGE MAGNUM R/T 4X4 5,7
HEMI 10/2005, ekinn 85 Þ.km, fjór-
hjóladrifinn, sjálfskiptur, leður ofl.
Mjög gott verð 2.590.000. #192164
-Ameríski draumurinn er á staðnum!
SUBARU IMPREZA STI 03/2004, ek.
68 Þ. km, bensín, nýuppt. mótor (tjún-
aður), 6 gíra, ný dekk ofl. fallegt eintak.
Verð 3.590.000. #282598 - Er í salnum!
PORSCHE CAYENNE TURBO
Árgerð 2004, ekinn aðeins 82 Þ.km,
sjálfskiptur. Tilboðsverð 4.990.000.
#283119 - Jeppinn fallegi er í salnum!
M.BENZ E 200
KOMPRESSOR CLASSIC
09/2006, ekinn aðeins 63 Þ.km,
sjálfskiptur. Verð 3.590.000. #283871 -
Þýski fallegi fákurinn er í salnum!
M.BENZ C 320 AMG (útlit) 11/2005,
ekinn aðeins 64 Þ.km, sjálfskiptur, leður,
sóllúga ofl. Verð 3.650.000. #283747 -
Bensinn glæsilegi er í salnum!
DODGE RAM 2500 QUAD CAB
PICKUP
08/2007, ekinn 49 Þ.Mílur, dísel,
sjálfskiptur. Verð 5.490.000. #283717 -
Fallegi pallbíllinn er á staðnum!
n Raflagnir
n Tölvulagnir
n Loftnetslagnir
og uppsetningar
n Gervihnatta-
móttakarar
n Ljósleiðaralagnir
og tengingar
n Raflagnateikningar
n Lýsingarhönnun
og ráðgjöf
n Þjónustusamningar
Pétur Halldórsson
löggiltur rafverktaki
petur@electropol.is, 8560090
Tek að mér
ýmis smærri verkefni.
Upplýsingar í síma 847-8704
eða á manninn@hotmail.com
Til sölu Honda CRV
Árgerð 2007. Keyrður innan bæjar
55.000 km. Svartur, aðeins einn eigandi
og mjög vel farinn. Ásett verð 3.900.000
kr eða besta tilboð. Hann er á nýlegum
heilsársdekkjum. Abs bremsur,geisla-
diskaspilari, leðurklædd sæti. Aldrif og
enginn áhvílandi lán á bílnum. uppl. í
síma 891-9139
Fólk 23Miðvikudagur 14. desember 2011
ekki áfengi og borðar hollan mat og hlúir
að geðheilsunni. „Ég tek jónsmessu runna
við þungum og erfiðum hugsunum og
slæmum martröðum og mér finnst hann
hjálpa mikið. Þá tek ég magnesíum til að
slaka á, bæði í töflum og dufti, D-vítam-
ín og lýsi. Ég nota líka arnicu-olíu á sára
vöðva og fer reglulega í jóga með mömmu.“
Ástríðan kviknaði
Eftir ársfrí frá fimleikum ákvað Berglind
að fara í djassballett hjá Djassballettskóla
Báru. „Ég hafði alltaf haft svo mikið að gera
og ég saknaði þess. Ég sagði við mömmu
að ég vildi fara í djassballett eins og syst-
ir mín. Styrkleiki minn í fimleikunum var
alltaf gólfæfingar, dansinn átti því einkar
vel við mig. Ég naut mín vel í náminu.
Fann þó fljótt að ég vildi gera meira af ball-
ettæfingum. Á þessum tíma voru áhersl-
urnar aðrar en þær eru í dag í Djassball-
ettskóla Báru. Þegar ég fór í menntaskóla
fór ég því í Listdansskólann. Það voru afar
skemmtileg ár. Ég fór á æfingar snemma
á morgnana áður en skólinn hófst og eftir
skóla líka. Allur minn tími snerist um dans
og ég hafði mikla unun af því. Það má segja
að þarna hafi kviknað ástríða.“
Þegar menntaskólanum lauk ákvað
Berglind að halda áfram að mennta sig
í dansi. Systir hennar, leikkonan Andrea
Ösp Karlsdóttir, býr í Los Angeles og Berg-
lind sótti um inngöngu í hinn virta Irwine-
listdansskóla þar ytra. „Ég fékk inngöngu
en námið þar reyndist alltof dýrt. Þrjár
milljónir á ári er of stór biti. Ég hef alltaf
unnið líka með dansinum og hafði safnað
mér fyrir námi en ekki svo miklu. Ég sótti
því um í Listaháskólanum á dansbraut og
er hálfnuð með námið þar.“
Hún ætlar sér þó að nýta verðlaunaféð í
námið og mögulega fara út til systur sinnar.
„Hluti af náminu felst í skipti námi, að fara
út og sækja sér reynslu. Það væri auðvitað
gaman að komast út til systur minnar, þar
er mikið af vönduðu dansnámi í boði.“
Besta vinkonan Annie Mist
Fjölskylda Berglindar Ýrar er hæfileikarík.
Frænka hennar og besta vinkona er Annie
Mist Þórisdóttir, afrekskona í fitness. Móðir
Berglindar er jógakennari og kennir power-
jóga og golf-jóga í eigin stúdíói í Garðabæ.
Þangað fer Berglind einmitt að sækja sér
innri styrk. Bróðir Berglindar er 15 ára og
æfir samkvæmisdans. „Hann mátti ekki
taka þátt í ár, kannski gerir hann það á
næsta ári þegar hann er kominn með aldur
til,“ segir hún og hlær.
Foreldrar Berglindar skildu þegar hún
var níu ára. Sama ár og hún fór í hjartaupp-
skurðinn. Þau halda góðu sambandi og
Berglind segir frá því að faðir hennar hafi
reyndar í fyrsta sinn séð hana dansa þeg-
ar hún dansaði fyrir þjóðina í Dans, dans,
dans. „Pabbi sá mig dansa í fyrsta sinn. Það
er ekki vegna þess að hann hafi ekki viljað
það, það gafst einfaldlega ekki tækifæri til
þess. Honum fannst það að sjálfsögðu afar
mikil upplifun,“ segir hún og hlær.
Berglind Ýr þakkaði móður sinni og
allri fjölskyldu fyrir stuðninginn. „Fyrst og
fremst þakka ég þjóðinni fyrir að styðja mig
alla leið. Ég er þakklátari en nokkur orð fá
lýst. Þetta ár hefur reynst mér gott. Sann-
kallað kraftaverkaár.“
Á næsta ári er einnig bjart fram undan.
„Ég trúlofaði mig í febrúar á Valentínusar-
daginn og við ætlum að gifta okkur í sumar,“
segir þessi fallega og heila stúlka og brosir
breitt.
„Pabbi sá mig dansa
í fyrsta sinn“„Ég skammast mín ekki fyrir örið. Ég þekki fólk með svipuð ör sem finnst erfitt að fara í sund.
Bjart fram undan hjá Berglindi Berglind Ýr hefur unnið hjörtu þjóðarinnar. Hún hefur um árabil glímt við veikindi eftir hjartaaðgerð.
Mynd sigtryggur Ari jóhAnnsson
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
Þrotlaus vinna Berglind segir að það sé mikil-
vægt að stoppa aldrei. „Ef maður gefst upp sér
maður ekki alla þá möguleika sem til eru,“ segir
hún.