Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.01.1983, Blaðsíða 5
Formáli.
1 þessu 25. hefti atvinnuvegaskýrslna Þjóóhagsstofnunar
birtast niöurstöður athugana á byggingariðnaði, þjónustu og
samgöngum árið 1978. I skýrslunni er að finna niðurstöður
athugana á rekstri og efnahag þessara greina á árinu 1978 og
eru athuganirnar byggðar á úrtaksathugun úr skattframtölum og
ársreikningum fyrirtækja viðsvegar að af landinu. Auk áætlaðra
rekstrar- og efnahagsyfirlita árió 1978 er i skýrslunni aó finna
ýmsar yfirlitstölur um hag þessara greina á árunum 1973/1974 -
1978.
Þá eru i skýrslunni birtar ýmsar hagtölur um vinnuafl
og stæróardreifingu fyrirtækja, áætlaða hlutdeild einstakra
greina i þjóðarframleiðslu, veltutölur þjónustugreina samkvæmt
söluskattsframtölum o.fl.
Skýrsla þessi er sú þriðja sinnar tegundar er Þjóðhagsstofnun
gefur út um hverja þessara atvinnugreina um sig en áður hafa verið
gefnar út atvinnuvegaskýrslur nr. 9., 10., 19., 20. og 22. og
sýndu þær nióurstöður athugana á byggingariónaói, samgöngum og
þjónustu árin 1972 - 1977.
Á vegum Þjóðhagsstofnunar hefur Ásdis Kristinsdóttir einkum
unnið að gerð þessarar skýrslu, tekið saman talnaefnið og samið
skýringar. Þjóðhagsstofnun hefur notió góórar aóstoðar og fyrir-
greióslu margra aðila við öflun gagna og úrvinnslu þeirra og
þakkar Hagstofu Islands, rikisskattstjóra, skattstofunum, rikis-
endurskoðun, Landssambandi iðnaðarmanna, flugfélögum og skipa-
félögum og ýmsum öðrum stofnunum og fyrirtækjum fyrir góða sam-
vinnu.
Áformaó er, aö þær atvinnuvegaskýrslur, sem út koma á næstunni
og lýsa rekstri, efnahag og ýmsum hagtölum ársins 1979 og sióari
ára verói meö nokkuð öóru sniði en verið hefur undanfarin ár.
Þannig er nú ætlunin að breyta formi rekstraryfirlitanna jafn-
framt þvi sem skilgreiningum ýmissa hugtaka eins og aðfanga og
vinnsluviróis verður breytt til samræmis við þá endurskipulagningu
þjóóhagsreikningageróarinnar, sem nú er unnið aó i Þjóóhagsstofnun.
Jafnframt er áformað að út komi reglulega i einni skýrslu yfirlit
um rekstur og efnahag flestra atvinnugreinanna fyrir hvert ár en
öðru hvoru og með lengra millibili verói siðan birt itarlegri
söguleg yfirlit um einstakar greinar.
ÞJÓÐHAGS3T0FNUN
i janúar 1933
Gamaliel Sveinsson