Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2013, Blaðsíða 23
Menning 23Mánudagur 23. september 2013
Listaverk sem þú
færð ekki nóg af
H
ann kostaði yfir 30 millj-
arða króna í framleiðslu, hef-
ur verið líkt við James Bond,
William Shakespeare og jafn-
vel Bítlana. Við erum að tala
um nýjasta afsprengi tölvuleikjafyrir-
tækisins Rockstar, sjálfan Grand Theft
Auto V (GTA V) sem kom út í liðinni
viku. Óhætt er að segja að spennan og
eftirvæntingin eftir einum tölvuleik
hafi sjaldan eða aldrei verið jafn mik-
il – eftir fimm ára bið er GTA V loksins
kominn út.
Trúverðugar sögupersónur
Eins og í fyrri leikjum þessarar
margrómuðu seríu er GTA V eins kon-
ar blanda af aksturs-, byssu- og þriðju
persónu hasarleik og er rauði þráður-
inn í honum undirheimar tiltekinnar
stórborgar, í þessu tilfelli Los Santos
sem er í raun skrumskæling á stór-
borginni Los Angeles. Söguþráðurinn
spinnst í kringum þrjár aðalpersón-
ur sem þú spilar til skiptis; Micha-
el, Trevor og Franklin sem allir eru
krimmar en misjafnlega kaldrifjaðir.
Michael er fyrrverandi bankaræningi á
fimmtugsaldri sem býr í Rockford Hills
(Beverly Hills) með fjölskyldu sinni á
meðan Trevor er fyrrverandi kollegi
hans úr undirheimunum. Trevor
þessi er athyglisverður og mjög svo
ógeðfelldur karakter sem hefur tekj-
ur af metamfetamínframleiðslu. Svo
er það smákrimminn Franklin sem
vinnur sem vörslusviptingamaður hjá
vafasömum bílasala og hefur aldrei
kynnst undirheimunum alvarlega. Það
er ekki fyrr en hann kynnist Michael að
hjólin í glæpadeildinni fara að snúast.
Með þeim tekst góður vinskapur og
Michael kennir Franklin að fóta sig í
heimi glæpa og ofbeldis.
Sögusviðið er sem fyrr segir Los
Santos, borg sem má muna sinn fífil
fegurri og heyja margir íbúar harða
lífskjarabaráttu. Félagarnir Micha-
el, Trevor og Franklin eru þar engin
undantekning og taka þeir í samein-
ingu að sér vægast sagt vafasöm verk-
efni til að eiga fyrir salti í grautinn.
Ótakmarkað frelsi
Sextán ár eru liðin síðan fyrsti leik-
urinn í GTA-seríunni leit dagsins
ljós og er óhætt að segja að sá leikur
hafi að mörgu leyti rutt brautina fyr-
ir komandi kynslóðir leikja og leikja-
tölva. Þetta var einn fyrsti leikur sinn-
ar tegundar sem gaf spilurum tækifæri
á að ferðast nánast óhindrað um götur
borgarinnar og að sjálfsögðu var þessu
fram haldið í næstu GTA-leikjum. GTA
5 tekur enn eitt skrefið fram á við og
er óhætt að segja að undirritaður hafi
aldrei spilað jafn stóran leik með jafn
ótrúlegu umhverfi. Leikur á borð við
Red Dead Redemption – sem þótti
gríðarlega stór þegar hann kom út árið
2010 – bliknar í samanburði við heim
GTA 5 sem er hvorki meira né minna
en fimm sinnum stærri.
Fjölbreytt verkefni
Það er augljóst að mikil vinna hefur
verið lögð í hvert og eitt einasta smá-
atriði; í leiknum eru þúsundir húsa,
trjáa, bíla og gangandi vegfarenda og
útlitið á þessu öllu er allt að því full-
komið. Svo er gatnakerfið eitthvað sem
Reykjavíkurborg gæti tekið sér til fyrir-
myndar og ljóst að ótrúleg vinna hefur
verið lögð í að gera það stórborgarlegt.
Þú getur tekið hvaða farartæki sem er,
flugvélar og báta líka, og farið hvert
sem er sem gefur manni ótakmarkað
frelsi. Þú ert ekki í fyrirfram mótuðum
skorðum eins og í svo mörgum leikj-
um heldur geturðu gert það sem þú
vilt, þegar þú vilt.
Verkefnin fyrir utan hið hefð-
bundna sögusvið leiksins eru ótrúlega
mörg að það er ekki möguleiki að telja
þau öll upp hér. Til að nefna dæmi get-
urðu tekið þátt í götukappakstri, bjarg-
að óbreyttum borgurum frá krimmum,
tekið þátt í hlutabréfamarkaðnum, far-
ið í klippingu eða á skotæfingarsvæði
og svo mætti lengi telja. Stóru verk-
efnin eru svo sér kapítuli út af fyrir sig
og flæðir adrenalínið oftar en ekki um
æðarnar þegar þeyst er um götur borg-
arinnar í æsilegum eltingarleik við
óþokka eða á flótta undan lögreglunni.
Ofbeldi, dóp og kvenfyrirlitning
Eins og söguþráður leiksins gefur til
kynna er hann afar ofbeldisfullur. Það
væri ekkert nema ábyrgðarleysi að lof-
syngja ofbeldið í leiknum sem þú getur
stundað nær takmarkalaust. Það er að
vísu ekkert nýtt í GTA-seríunni að geta
buffað saklausa vegfarendur eða ekið
þá niður. Á köflum finnst manni þó of-
beldið vera óþarflega mikið. Hver er til
dæmis tilgangurinn með að skjóta 25
sveitaskarfa (e. rednecks) til bana eins
og eitt verkefnið gengur út á? Hver er
tilgangurinn með að geta keypt sér
einkadans á súlustað og geta káfað á
líkama naktrar konu eins og hægt er að
gera? Hver er tilgangurinn með að geta
fengið sér gras endrum og eins? Mögu-
lega til að skilgreina hvaða karakter
persónurnar hafa að geyma og gefa
þeim um leið meiri dýpt. Gott og vel.
Hvað sem því líður er ástæða fyrir því
að leikurinn er stranglega bannaður
innan 18 ára.
Þú hefur stjórnina
Ef horft er framhjá öllu ofbeldinu sem
alltaf hefur verið hluti af GTA-leikjun-
um er hér um býsna magnaðan leik
að ræða, þrekvirki raunar. Verkefnin
sem þeir Michael, Trevor og Franklin
taka sér fyrir hendur eru mörg og sum
þeirra ótrúlega vel úr garði gerð. Stund-
um þarftu að ráða aukamannskap til
að taka þátt í þeim, tölvuhakkara sem
dæmi, og ef þú vilt að verkefnið takist
fullkomlega þarftu að borga góðum
mönnum vel, ella eiga á hættu að ver-
kefnið mistakist. Takist verkefnið öðl-
ast aukamennirnir ákveðna reynslu
sem nýtist í næsta verkefni. Þetta gefur
þér þá tilfinningu að þú hafir stjórnina
frá a-ö. Í sumum verkefnunum ertu í
hlutverki allra sögupersónanna sem
gefur þessu öllu meiri dýpt og hvenær
sem er í leiknum, milli verkefna, get-
urðu sjálfur skipt um sögupersónu og
farið til dæmis úr hlutverki Michaels í
hlutverk Franklins eða Trevors. Þó að
þessar þrjár sögupersónur eigi margt
sameiginlegt, einna helst áhuga sinn
á glæpum, eru þær æði ólíkar og með
ólíkan bakgrunn. Þrátt fyrir dimman
undirtón í leiknum og vafasama gjörn-
inga er hann sprenghlægilegur á köfl-
um og er það ekki síst vel skrifuðum
karakterum að þakka sem ávallt hafa
munninn fyrir neðan nefið og kunna
að svara fyrir sig.
Listaverk
Í byrjun greinarinnar var minnst á
samlíkingu á GTA V og James Bond og
Bítlunum meðal annars. Þessar afurð-
ir, ef svo má segja, koma frá Bretlandi,
og allar hafa þær haft sín áhrif; á kvik-
myndaiðnaðinn, tónlistar iðnaðinn og
tölvuleikjaiðnaðinn – og það engin
smá áhrif. Í framhjáhlaupi má nefna
að GTA-serían hefur selt fleiri eintök
en hin goðsagnakennda breska sveit
The Who hefur gert á áratugalöngum
ferli sínum. „Menningaráhrifin og list-
ræn gæði leiksins sýna hversu langt
tölvuleikir eru komnir,“ sagði Richard
Wilson, yfirmaður Tiga, sambands
tölvuleikjaframleiðanda í Bretlandi,
við BBC fyrir skemmstu. Óhætt er að
segja að Wilson hitti naglann á höf-
uðið. Þó að auðvelt sé að stimpla GTA
V sem ofbeldisfullan tölvuleik hefur
hann svo margt annað að bjóða. Þetta
snýst ekki eingöngu um að keyra bíl og
ræna skartgripaverslanir. Þetta er heill
heimur sem hefur að geyma meiri
dýpt en nokkur tölvuleikur til dagsins
í dag býður upp á – listaverk sem þú
færð eiginlega ekki nóg af. Rockstar
hefur sett nýtt viðmið í tölvuleikja-
heiminum. n
Tölvuleikur
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Grand Theft Auto V
Tegund: Hasarleikur, bílaleikur, skotleikur
Spilast á: PC og Xbox 360
Óþokkar Ofbeldi hefur alltaf verið hluti af GTA-seríunni og er GTA V engin undantekning. Trevor er sem dæmi sérlega illa þokkaður náungi.
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu,
jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri
hversdagsins.