Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1933, Qupperneq 10
8
Búnaðarskýrslur 1930
Á síðari árum hefur skepnueign landsmanna samkvæmt búnaðar-
skýrslunum verið í heild sinni og samanborið við mannfjöldann svo sem
hér segir:
Á 100 manns
Sauöfé Naut Hross Sauðfé Naut Hross
1901 .... .. 482 189 25 674 43 199 614 33 55
1911 .... . . 574 053 25 982 43 879 671 31 51
1918 .... .. 644 971 24 311 53 218 702 26 58
1920 .... .. 578 768 23 497 50 645 611 25 54
1921 .... .. 553 900 23 733 49 320 582 25 52
1922 .... .. 571 248 26 103 51 042 600 27 53
1923 .... .. 550 190 25 853 50 429 563 26 52
1924 .... .. 583 180 26 949 51 009 593 27 52
1925 .... .. 565 695 26 281 51 524 566 26 52
1926 .... .. 590 037 27 857 52 868 580 27 52
1927 . . . . . . 499 947 28 912 53 085 581 28 51
1928 .... .. 627 140 30 023 52 245 598 29 50
1929 .... .. 640 031 30 070 50 657 604 28 48
1930 .... .. 690 178 30 083 48 939 642 28 46
sauðfjár hefur aldrei verið meiri en 1930, og nautgripatalan
var líka hæst þá (á fyrri hluta 18. aldar og eftir miðja 19. öld var hún
þó nokkru hærri), en hrossatalan hefur verið hæst 1918.
Um skepnufjölda landsmanna á umliðnum öldum er yfirlit í Búnað-
arskýrslum 1913, bls. 8*—10*, og vísast hér til þess. Þó skal þess getið
að í því er sú villa, að nautgripir 1904 eru taldir 30 498 í stað 25 498.
II. Ræktað land.
Terrain cultivé.
Samkvæmt lögum nr. 58, 3. nóv. 1915 átti að mæla upp öll tún og
matjurtagarða á landinu utan kaupstaða og átti því að vera lokið 1920.
Ummálsuppdrættir af hinum mældu túnum áttu að sendast Stjórnarráðinu
og fekk Hagstofan þá til afnota til þess að taka eftir þeim túnastærðina og
kálgarðastærðina í búnaðarskýrslurnar, og hefur hún svo staðið þar óbreytt
síðan. Að vísu dróst það allvíða fram yfir hinn tilsetta tíma, að mæling-
um yrði lokið, og í nokkrum hreppum virðast jafnvel túnmælingarnar
aldrei hafa verið framkvæmdar, eða að minnsta kosti hafa ekki ummáls-
uppdrættir af þeim verið sendir í Stjórnarráðið eins og tilskilið var. En
víðasthvar eru mælingarnar nú orðnar margra ára gamlar, svo að búast
má við, að stærðin hafi tekið nokkrum breytingum síðan. Til þess að
bæta úr þessu hefur nú verið farið eftir fasteignamatinu frá 1930. Átti