Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1933, Side 11
Búnaðarskýrslur 1930
9'
þar að tilgreina stærð túna og kálgarða og hefur hún verið tekin upp í
Fasteignabókina, þar sem hún hefur verið tilgreind. Eftir þessum upp-
lýsingum, það sem þær ná, hefur verið farið í Búnaðarskýrslunum að
þessu sinni. En við marga bæi eru eyður í Fasteignabókinni í þessum
dálkum. Hefur þá verið farið eftir mælingunum fyrir þá bæi og bætt
þar við því sem jarðabótaskýrslur telja nýrækt á þeim bæjum samtals
síðan mæling fór fram. Fyrir kauptúnin eru ekki upplýsingar um þessi
efni í Fasteignabókinni, en Hagstofan hefur fengið upplýsingar um sum
þeirra hjá Búnaðarfélaginu, en um nokkur eru aðeins eldri tölur eða
ófullkomnar áætlanir að öllu eða nokkru leyti. Þar sem svo er ástatt er
talan merkt með *.
Samkvæmt skýrslunum, eins og þær birtast hér nú, er túnstærðin
alls á landinu 26 184 hektarar, en matjurtagarðar 455 hektarar. Hefur
þá túnstærðiu við leiðrétfingar þær, sem gerðar hafa verið, hækkað um
3388 ha eða um 15 °/o frá því sem áður var talið, en kálgarðastærðin
minnkað um 33 ha eða um 7 °/o. Ef talin er saman öll nýrækt samkv.
jarðabótaskýrslunum í hverjum hreppi síðan mæling fór þar fram og til
1930, þá verður það alls 4537 ha eða þriðjungi hærra heldur en við-
bótin, sem gerð hefur verið samkvæmt því sem áður segir, enda var
búist við, að of mikið væri að bæta við allri nýrækt samkvæmt jarða-
bótaskýrslunum.
III. Jarðargróði.
Produits des récoltes.
í búnaðarskýrslunum er bæði hey, mór og hrís gefið upp í hestum.
En hesfurinn af hverju þessu er misþungur og einnig er töðuhesfurinn,
útheyshesturinn o. s. frv. misþungur á ýmsum stöðum. Fer það nokkuð
eftir landshlutum, en þó getur munað töluverðu á nágrannahreppum og
jafnvel á bæjum í sama hreppi. Á búnaðarskýrslueyðublöðunum hefur
því síðustu árin þess verið óskað, að tilgreind væri venjuleg þyngd í
hreppnum á hestinum af hverri tegund. Þetta hefur verið gert allvíða,
en mikið vantar samt á, að það hafi verið gert allsstaðar. Samkvæmt
þessum upplýsingum hefur nú í fyrsta sinn hestum af öllum tegundum
allsstaðar verið breytt í 100 kg hesta, en þar sem upplýsingar hefur
vantað um hestþyngdina hefur verið farið eftir upplýsingunum fyrir ná-
grannahreppa eða þá sem næstir voru með slíkar upplýsingar. Eftirfar-
andi yfirlit sýnir hestatöluna eins og hún er í skýrslunum og eins og
hún verður breytt í 100 kg hesta, en þar af sést aftur meðalhestþyngdin
í skýrslunum.