Hagskýrslur um landbúnað - 01.02.1933, Qupperneq 13
BúnaÖarskýrslur 1931
11
verið kunnugt eða til þeirra hefur náðst. Vfirlitsskýrslurnar fyrir allt landið
og sýslurnar (tafla VI.—VII., bls. 19—27) eru gerðar jafnnákvæmar
sundurliðaðar eins og skýrslur trúnaðarmanna Búnaðarfélagsíns, en skýrsl-
urnar um jarðabætur í hverjum hreppi (tafla VIII., bls. 28 — 41) hafa
verið dregnar nokkuð saman, svo að þær eru ekki eins mikið sund-
urliðaðar.
Jarðabæturnar voru fyrst ekki mældar fyr en árið eftir að þær
voru unnar, og þess vegna gátu jarðabótaskýrslurnar ekki fylgst með
búnaðarskýrslunum fyrir sama árið, heldur urðu samferða árinu á eftir,
en á þessu hefur verið gerð sú breyting, að þær eiga að mælast sama
árið sem þær eru unnar. Fyrst er breytingin komst á, voru því tveggja ára
jarðabætur mældar í einu. Var það sumstaðar gert 1929 (fyrir 1928 og
1929), en víðast hvar 1930 (fyrir 1929 og 1930), og teljast því jarða-
bótaskýrslur þær, sem fylgja búnaðarskýrslunum 1930, fyrir árin 1929 og
1930. Tölurnar eru þó heldur of lágar sem tveggja ára tölur, en 1928
aftur á móti heldur of háar sem eins árs tölur.
Skýrslurnar fyrir 1931 eru í nokkuð breyttu formi frá því sem
áður var. Aðalbreytingin er sú, að þær jarðabætur, sem heyra undir II.
kafla jarðræktarlaganna, og styrks njóta úr landssjóði samkvæmt hon-
um, eru teknar sérstaklega fyrst, en aðrar jarðabætur þar á eftir. Þá
eru líka sumar jarðabætur sundurliðaðar nokkuð nánar eða öðruvísi
heldur en áður.
Síðustu árin hefur tala búnaðarfélaga, tala jarðabótamanna
og tala dagsverka unnin af þeim við jarðbætur verið sem hér segir:
Dagsverk
Félög laröabótamenn alls á mann
1925 ................. 176
1926 ................. 196
1927 ................. 204
1928 . . . .:......... 214
1929—30 ............... 214
1931 ................ 216
2 797 354 000 127
3 365 426 000 126
3 939 503 000 128
5 238 698 000 133
4 985 746 000 149 (75)
4 960 760 000 153
Frá því jarðræktarlögin komu til framkvæmda var mikil aukning á
tölu jarðabótamanna fram til 1928. Dagsverkatalan hefur líka farið vax-
andi, en aðgætandi er, að talan fyrir 1929—30 gildir fyrir 2 ár og að
nokkru leyti talan 1928 líka. Meðaldagsverkatala á hvern jarðabótamann
var hérumbil óbreytt árin 1925—27 (126—128), 1928—30 var hún ekki
nema 95 að meðaltali, en 1931 aftur á móti langhæst, 153.
Safnþrær og áburðarhús, sem gerð voru 1931, voru alls
10 720 teningsmetrar að rúmmáli. Er það heldur meira en meðaltal
þriggja næstu áranna á undan, en minna heldur en árin þar á undan.