Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1935, Blaðsíða 17
Búnaðarskýrslur 1933
15
Samkvæmt lögum nr. 40 frá 7. maí 1928 uin breytingu á jarðræktar-
lögunum frá 1923 skal styrkur úr ríkissjóði til hreppsbúnaðarfélaga
nema 10 au. fyrir hvert unnið dagsverk, og skiftisl milli félaganna eftir
tölu jarðabótamanna i hverju félagi. Stvrk þennan skal leggja í sjóð, sem
nefnist verkfærakaupasjóður, sem á að létta undir með hændum að
eignast hestaverkfæri til járðræktar, og leggur ríkissjóður auk þess 20
þús. kr. á ári í þennan sjóð. Þessar slyrkveitingar til verkfærakaupa-
sjóðs hafa verið feldar niður um stundarsakir vegna kreppunnar, fyrst
1933 miðað við jarðabætur 1932.
Samkvæmt II. kafla jarðræktarlaganna (með breytingu frá
1928) veitist sérstakur styrkur til áburðarhúsa, tún- og garð-
ræktar og h 1 öðu byggi n ga , kr. 1.50 á dagsverk til áburðarhúsa,
1 kr. á dagsverk til túnræktar og garðræktar og 50 au. á dagsverk til að
gera vothevstóftir og þurheyshlöður. Af styrk hvers jarðabótamanns
samkvæmt II. kafla jarðræktarlaganna skal leggja 5% i sjóð þess bún-
aðarfélags, sem hann er meðlimur í. Styrkurinn, sem veittur var sam-
kvæmt II. kafla jarðræktarlaganna fyrir jarðabætur 1933, var alls 475
þús. kr„ þar af 58 þúsund lil áburðarhúsa, 395 þúsund lil túnræktar og
garðrælctar, og 22 þús. til hlöðubygginga. En af þessum styrk rann 24
þús. kr. lil búnaðarfélaganna. Hvernig tala styrkþega, dagsverkatala við
þessar jarðabætur og styrksupphæðin skiftist á sýslurnar sést á 3. yfir-
liti (bls. 15), sem gert hefur verið af Búnaðarfélagi íslands.
1 jarðræktarlögunum er svo ákveðið, að leiguliðar á þjóðjörðum
og kirkjujörðum megi vinna af sér landsskuld og leigur með jarða-
bótum á Ieigujörð sinni og reiknast þá hvert dagsverk á 3 kr. Eftirfar-
andi yfirlit, sem gert er af Búnaðarfélaginu, sýnir hve margir búendur
i hverri sýslu notuðu sér þessi ákvæði árið 1933 og hve mörg dagsverk
gengu til landskuldagreiðslu og fvrir hve mikla upphæð.
'ala býla Dagsverk Landskuldar- greiðsla
(iullbringu- og Kjósarsvsla .... 28 946 2 838 kr.
B o rgarfj arða rs vsl a 9 1 269 3 807 —
Mvrasvsla 4 137 411
Snœfellsnessýsla 33 1 023 3 075 —
Dalasýsla 4 217 636 —
H a rð ast ra n d a rs ýs 1 a 11 436 1 308 -
Isafjarðarsýsla (i 242 726 —
Strandas}Tsla 2 97 291 —
Húnavatnssýsla 10 437 1 311 —
Skagafjarðarsýsla 20 1 004 3 012 —
ICyjafjarðarsýsla 18 1 176 3 528 -
Suður-Þingevjarsýsla 26 1 344 4 032 -
N orð ur-Þi nge vj arsýsla 7 635 1 905 -
Norður-Múlasýsla 12 1 219 3 657 —
Suður-Múlasýsla 42 921 2 763 -
Austur-Skaftafellssýsla 6 78 234 —
Vestur-Skaftafellssýsla 24 464 1 392 —