Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1937, Page 13
Búnaðarskýrslur 1936
11
Mótekja Hrísrif
1901 — 05 meöaltal ......... 209 166 hcstar 7 875 liestar
1906—10 — 204 362 — 6 905 —
1911 — 15 — 225 983 10 728 —
1916—20 — 370 240 19 189 —
1921—25 — 303 481 18 413 —
1926—30 — 225 723 — 17 198
1931—35 163 725 — 14 275
1935 ....................... 137 557 — 13 954 —
1936 ....................... 150 375 — 12 934 —
Mótekja var árið 1936 töluvert meiri en næsta ár á undan (19%
meiri). Hún var þó fyrir neðan meðaltal undanfarandi ára. Miðað við
meðaltal áranna 1931—1935 var hún 8% minni. Hrísrif var 7% minna en
árið á undan og 9% ininna en meðaltal áranna 1931—35.
IV. Jarðabætur.
Amélioralions fonciéres.
Trúnaðarmenn Búnaðarfélagsins mæla allar jarðabætur á land-
inu og eru VI.—VIII. tafla hér í skýrslunum (bls. 35—55) teknar eftir
skýrslum þeirra um þær mælingar. I skýrslum mælingamanna eru yfir-
leitt taldar allar jarðabætur, að svo miklu leyti sem um þær hefur
verið kunnugt eða til þeirra hefur náðst. En líklega má búast við, að
skýrslur um þær jarðabætur, sem ekki njóta styrks samkv. II. kafla
jarðræktarlaganna, séu ónákvæmari heldur en um styrkhæfu jarðabæt-
urnar. Yfirlitsskýrslurnar fyrir alt landið og sýslurnar (tafla VI—VII,
bls. 35—41) eru gerðar jafnnákvæmar og sundurliðaðar eins og skýrsl-
ur trúnaðarmanna Búnaðarfélagsins, en skýrslurnar um jarðabætur i
hverjum hreppi (tafla VIII, bls. 42—55) hafa verið dregnar nokkuð
saman, svo að þær eru ekki eins mikið sundurliðaðar.
Síðustu árin hefur tala h ú n a ð a r f é 1 a g a , tala j ar ð a b ó t a -
manna og tala dagsverka unnin af þeim við jarðabætur verið seni
hér se8ir: Dagsverk
Félög Jnrðabólamenii alls n mann
1931 .................. 216 4 960 760 þús. 153
1932 .................. 217 5 516 634 — 115
1933 .................. 216 5 098 524 — 103
1934 ............... 217 4 801 669 139
1935 .................. 216 4 977 705 — 142
1936 ............... 216 5 173 610 118
Tala jarðabótamanna hefur verið hæst 1932. Dagsverkatalan i
heild sinni og dagsverkatalan á mann var aftur á móti hæst 1931. Árið
1936 var tala jarðabótamanna hærri heldur en árið á undan, en dags-
verkatala alls og dagsverkatala á mann lægri.