Hagskýrslur um landbúnað

Útgáva

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1941, Síða 18

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1941, Síða 18
16 Búnaðarskýrslur 1940 Samkvæmt II. k a fl a jarðræktarlaganna veitist styrkur úr ríkissjóði til byggingar áburðarhúsa, til tún- og garðrækt- ar (þar með talið framræslu og girðinga) og til hlöðubygginga. Styrkurinn nemur ákveðinni upphæð fyrir ákveðið magn jarðabóta og húsabóta. Þetta gildir þó aðeins um þau býli, sem fengið hafa síðan 1923 samtals 1 000—4 000 kr. í jarðabótastyrk. Ef þau hafa fengið rninna en 1 000 kr., greiðist 20 % hærri styrkur, en ef þau hafa fengið yfir 4 000 kr., greiðist 20 % minni styrkur fyrir hvert verk, og ef þau hafa fengið 5 000 kr„ greiðist enginn styrkur. Undantekning frá styrklækkun er þó gerð um nýbýli, sem reist eru áður en nýbýlalögin frá 1936 gengu í gildi, og há- markið fyrir þau fært upp í 7 000 kr. Af styrk hvers jarðarbótamanns skal leggja 5 % í sjóð þess búnaðarfélags, sem hann er meðlimur í. Styrk- urinn fyrir jarðabætur 1940, miðað við verkið án hækkunar eða lækkunar, var alls 258 þús. kr„ þar af 17 þúsund til áburðarhúsa, 223 þúsund til túnræktar og garðræktar, og 18 þúsund til hlöðubygginga. En vegna ákvæðanna um áður fenginn styrk, var styrkupphæðin hækkuð um 20 þús. kr„ en lækkuð um 1 þús. kr„ svo að greiddur styrkur varð alls 577 þús. kr. Af þessari upphæð runnu svo 28 þús. kr. til búnaðarfélaganna. Hvernig tala styrkþega og styrkupphæðin skiftist á sýslurnar, sést á 3. yfirliti, sem gert hefur verið af Búnaðarfélagi íslands. í jarðræktarlögunum er svo ákveðið, að Ieiguliðar á þ j ó ð j ö r ð u m og kirkjujörðum megi vinna af sér jarðarafgjaldið með jarða- bótum á leigujörð sinni. Eftirfarandi yfirlit, sem gert er af Búnaðarfé- laginu, sýnir hve margir búendur í hverri sýslu notuðu sér þessi ákvæði árið 1940 og hve mikil upphæð gekk á þann hátt til landskuldargreiðslu. I.andskuldar- Tala býla greiðsla Gullbringu- og Kjósarsýsla................. 13 1 924 kr. Borgarfjarðarsýsla.......................... 5 904 — Mýrasýsla .................................. 2 126 — Snœfellsness- og Hnappadalssýsla....... 28 1 454 — Dalasýsla .................................. 3 335 —. Barðastrandarsýsla .................... 1 1 383 — ísafjarðarsýsla ............................ 3 434 — Strandasýsla ............................... 2 259 — Húnavatnssýsla ............................. 4 180 Skagafjarðarsýsla........................... 9 1 096 Eyjafjarðarsýsla........................... 13 2 029 Suður-Þingeyjarsýsla....................... 19 1 741 — N'orður-Múlasýsla.......................... 12 1 086 — Suður-Múlasýsla........................... 40 2 280 — Austur-Skaftafellssýsla .................... 6 647 -— Vestur-Skaftafellssýsla ................... 25 1 773 — llangárvallasýsla ......................... 29 4 060 Árnessýsla................................. 33 3 578 — Samtals 1940 257 24 289 kr. 1939 280 29 558 1938 291 33 381 — 1937 321 30 527 — 1936 365 53 458

x

Hagskýrslur um landbúnað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.