Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1941, Blaðsíða 18
16
Búnaðarskýrslur 1940
Samkvæmt II. k a fl a jarðræktarlaganna veitist styrkur
úr ríkissjóði til byggingar áburðarhúsa, til tún- og garðrækt-
ar (þar með talið framræslu og girðinga) og til hlöðubygginga.
Styrkurinn nemur ákveðinni upphæð fyrir ákveðið magn jarðabóta og
húsabóta. Þetta gildir þó aðeins um þau býli, sem fengið hafa síðan 1923
samtals 1 000—4 000 kr. í jarðabótastyrk. Ef þau hafa fengið rninna en
1 000 kr., greiðist 20 % hærri styrkur, en ef þau hafa fengið yfir 4 000 kr.,
greiðist 20 % minni styrkur fyrir hvert verk, og ef þau hafa fengið 5 000
kr„ greiðist enginn styrkur. Undantekning frá styrklækkun er þó gerð um
nýbýli, sem reist eru áður en nýbýlalögin frá 1936 gengu í gildi, og há-
markið fyrir þau fært upp í 7 000 kr. Af styrk hvers jarðarbótamanns
skal leggja 5 % í sjóð þess búnaðarfélags, sem hann er meðlimur í. Styrk-
urinn fyrir jarðabætur 1940, miðað við verkið án hækkunar eða lækkunar,
var alls 258 þús. kr„ þar af 17 þúsund til áburðarhúsa, 223 þúsund til
túnræktar og garðræktar, og 18 þúsund til hlöðubygginga. En vegna
ákvæðanna um áður fenginn styrk, var styrkupphæðin hækkuð um 20 þús.
kr„ en lækkuð um 1 þús. kr„ svo að greiddur styrkur varð alls 577 þús.
kr. Af þessari upphæð runnu svo 28 þús. kr. til búnaðarfélaganna. Hvernig
tala styrkþega og styrkupphæðin skiftist á sýslurnar, sést á 3. yfirliti, sem
gert hefur verið af Búnaðarfélagi íslands.
í jarðræktarlögunum er svo ákveðið, að Ieiguliðar á þ j ó ð j ö r ð u m
og kirkjujörðum megi vinna af sér jarðarafgjaldið með jarða-
bótum á leigujörð sinni. Eftirfarandi yfirlit, sem gert er af Búnaðarfé-
laginu, sýnir hve margir búendur í hverri sýslu notuðu sér þessi ákvæði
árið 1940 og hve mikil upphæð gekk á þann hátt til landskuldargreiðslu.
I.andskuldar-
Tala býla greiðsla
Gullbringu- og Kjósarsýsla................. 13 1 924 kr.
Borgarfjarðarsýsla.......................... 5 904 —
Mýrasýsla .................................. 2 126 —
Snœfellsness- og Hnappadalssýsla....... 28 1 454 —
Dalasýsla .................................. 3 335 —.
Barðastrandarsýsla .................... 1 1 383 —
ísafjarðarsýsla ............................ 3 434 —
Strandasýsla ............................... 2 259 —
Húnavatnssýsla ............................. 4 180
Skagafjarðarsýsla........................... 9 1 096
Eyjafjarðarsýsla........................... 13 2 029
Suður-Þingeyjarsýsla....................... 19 1 741 —
N'orður-Múlasýsla.......................... 12 1 086 —
Suður-Múlasýsla........................... 40 2 280 —
Austur-Skaftafellssýsla .................... 6 647 -—
Vestur-Skaftafellssýsla ................... 25 1 773 —
llangárvallasýsla ......................... 29 4 060
Árnessýsla................................. 33 3 578 —
Samtals 1940 257 24 289 kr.
1939 280 29 558
1938 291 33 381 —
1937 321 30 527 —
1936 365 53 458