Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1980, Síða 7

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1980, Síða 7
INNGANGUR. Introduction. A. SÖFNUN OG ÚRVINNSLA GAGNA. Collection and processing of data. f þessu hagskýrsluhefti eru töflur um fjármál sveitarfélaga árin 1975, 1976 og 1977, og er það framhald af fyrri ritum Hagstofunnar um þetta efni. Ná þasr skýrslur aftur til ársins 1952. Nasst á und- an þessu hefti komu út "Sveitarsjóðareikningar 1972-74" (ha^gskýrsluhefti II, 66), og er þetta hefti að öllu leyti beint framhald þeirrar hagskýrslu — form og numer á töflum er alveg eins f báðum heftunum. Þetta hefti er seint I ferðinni eins og fyrri hagstofurit jrm sama efni.Stafarþað sem áður ^aðal- lega af erfiðleikum við innheimtu á reikningum sveitarfélaga. Innheimtan hefur þó komistfbetra horf en áður.^vegna nýs ákvæðis f lögum um tekjustofna sveitarfélaga (sjá 2. gr. laga nr. 36/1973, um breyting á lögum nr. 8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga), sem er svo hljóðandi: 'TSIú em ekki gerð skil á arsreikningurn sveitarfélaga.sbr. 60.gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 58 29. mars 1961, og greiðist þvf sveitarfélagi þá ekki framlag samkvæmt l.mgr. fyrr en skil hafa verið gerð". Þessu ákvæði hefur verið beitt með nokkurri festu 1975 og 1976, til innheimtu á reikningum undangeng- inna ára, 1974 og 1975, og þá aðallega þannig, að við úthlutun úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 30. september ár hvert hafa sveitarfélög með vanskil ársreiknings ekkHengið greiðslu úr sjóðnum frá félagsmálaráðuneytinu fyrr en skil a honum til Hagstofunnar hafa átt ser stað. Töflur^þær,^ sem birtar eru f töfluhluta þessa heftis, eru byggðarjí ársreikningum, sem látnir hafa verið í té á skýrsluformi Hagstofunnar til reikningsskila sveitarfélaga. Svo er þó ekki um reikninga flestra kaupstaðanna og nokkurra stórra hreppsfélaga.^og varð þvf við skýrslugerðina að nota prentaða eða fjölritaða ársreikninga þeirra, eins og þeir lágu fyrir. Reikningar þeir.er hér um ræðir, voru á Hagstofunni færðir f samræmt form eyðublaðsins, eftir þvf sem unnt var, en þar sem þeir eru sinn með hverjum hætti og ósamrasmi þeirra innbyrðis mikið, verður slík samræming ekki nákvæm og f sumum tilvikum^ef til vill röng. Eins og áður hefur það valdið mestum erfiðleikum og drætti á skyrslugerð um fjármál sveitarfélaga, að kaupstaðirnir hafa ekki skilað reikningum^ srhum til Hagstofunnar á tilskyldum eyðublöðum. Hafa skýrslur þessar af þeim sökum minna upplýsingar- gildi en þær hefðu annars getað haft. Misræmi þetta f gerð kaupstaðarreikninga hefur farið vax- andi síðustu árin. Nú er raunar svo komið, að reikningar margra kaupstaðanna, eins og þeir eru gefnir út prentaðir eða fjölritaðir, eru með öllu ósambærilegir frá ári til árs vegna sífelldra form- breytinga. Þes's vegna hefur stöðugt orðið erfiðara að færa þá f hið samræmda skyrsluform, eins og það er í töflum þessa heftis, og er þvf sá fyrirvari gerður, að hér birtar tölur kaupstaðarreikninga geta verið villandi eða jafnvel rangar. Ögemingur er að gera grein fyrir öllum þeim vafaatriðum, sem hér hefur orðið að taka afstöðu til, og hefur þvf f flestum tilvikum verið sleppt að gera grein fyrir vandamálum af þessu tagi. Flestir hreppar skila ársreikningum á tilskyldu eyðublaði, enda nota þeir eyðublaðið til eigin reikningsskila. Hefur þvf eintak það, sem Haestofan hefur fengið af reikningum hvers hrepps, verið afrit af reikningunum eins og þeir hafa verið lagðir fram af sveitarstjórn. Frágangur á reikningum hreppanna hefur verið mjög misjafn, en meiri hluti þeirra hefur þó skilað viðhlftandi reikningum og margir ágætum. Segja má, að 20-30 hreppar skili svo illa frá- gengnum reikningum, að til verulegs b'aga sé við skyrslugerð. Nokkra hreppsreikninga þurfti að færa í samræmt form skýrslunnar, eins og áður segir, og um þa reikninga eildir sami fyrirvari og um kaupstaðarreikningana, sem greint er frá hér að framan. Einstaka reikningar voru jafnvelsvo ófull- komnir, að þeir voru tæpast nothæfir til skýrslugerðar. Áður en hin eiginlega úrvinnslahreppsreikn- inga hofst, þ.e. töflugerðin, fór Hajjstofan yfir reikninga hvers sveitarfélags og samræmdi þá eftir þvt sem tök voru á. Ekki reyndist þo unnt að lagfæra alla reikningsliði, sem bersýnilega eða að öllum líkindum voru rangir. Til þess hefði þurft tfmafrek bréfaviðskipti, sem fyrirsjáanlega hefðu ekki svarað kostnaði. Þeirri reglu var fylgt, að breyta ekki reikningsliðum, nema augljóst væri, að breytingin væri á rökum reist. Hinir prentuðu eða fjölrituðu reikningar kaupstaðanna em skýrir og vel sundurliðaðir.þó með einstaka undantekningum. Vandkvæðin a hagnýtingu þessara reikninga til skýrslugerðar stafa fyrst og fremst af þvf, að ósamræmi íuppsetningu þeirra er mikið. Samræmi vantar f flokkun á tekju-, gjalda- og eignaliðum. Beinn samanburður á niðurstöðutölum reikninganna hefur lftið gildi, og sama er að segja um samanburð niðurstöðutalna útgjaldaflokka, sem nefnast t.d. stjómarkostnaður, félagsmál, menntamál, fþróttamál o. s. frv., vegna þess að heimfærsla útgjalda undir slrka safn- flokka er varla eins hja neinum tveimur kaupstöðum. Enn minna gildir hefur samanburður á efna-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.