Hagskýrslur um fiskveiðar

Issue

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.02.1925, Page 10

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.02.1925, Page 10
6 Fiskiskýrslur 1922 Meðalsfærð fiskiskipanna hefir verið svo sem hjer segir: 1913 1918 .... 43.8 lestir 1914 .... 67.6 — 1919 .... 45.4 — 1915 .... 68.4 — • 1920 .... 72.4 — 1916 .... 57.1 — 1921 ... .. 72.o — 1917 .... 55.5 — 1922 .... 70.1 — 1915—18 fer meðalstærð skipanna síminkandi og stafar það af fjölgun mótorskipanna og sölu botnvörpunganna haustið 1917. Arið 1920 hækkar meðalstærðin aftur mjög mikið vegna þess að svo margir botn- vörpungar bætast þá við. Síðan hefur meðalstærðin aftur heldur minkað, einkum 1922 vegna þess að hinum smærri skipum fjölgaði þá miög mikið. Árið 1921 voru gerðir hjer út 28 botnvörpungar eða jafnmargir og næsta ár á undan. Af botnvörpungum þeim, sem hjer stunduðu veiðar árið 1920, gekk 1 eigi til fiskveiða árið 1921 (Helgi magrl) og 1 var seldur til útlanda (Snorri goði), en aftur á móti bættust við 2, sem báðir voru keyptir frá útlöndum (Baldur og Menja). Af þeim botnvörpuskipum, sem stunduðu hjer veiðar 1921 var 1 selt til útlanda (Ingólfur Arnarson), en 4 bættust við árið 1922, 2 sem áður höfðu stundað hjer veiðar (Helgi magri og íslendingur), og 2 sem keyptir voru frá útlöndum (Glaður og Gulltoppur). Voru þannig gerð hjer út 31 botnvörpuskip árið 1922. Með mótorskipum eru taldir mótorbátar, sem eru stærri en 12 lestir. Slíkum bátum hefur mjög fjölgað á síðari árum. Seglskipum hefur aftur á móti fækkað mjög, í sum hefur verið settur mótor, svo að þau flyljast yfir í mótorskipadálkinn, en önnur dottið úr sögunni. Árið 1922 fjölgaði þó seglskipum aftur nokkuð. Fyrir 1904 var allur þilskipaflotinn seglskip, en nú eru þau ekki nema tæplega Vs af skipatölunni. Árið 1921 og 1922 skiftist fiskiflotinn þannig hlutfallslega eftir tegundum skipanna. 1921 1922 Tals Lestir Tals Lesfir Seglskip 17.7 o/o 7.0 % 18.8 O/o 8 7 o/o Mótorskip .... 66.7 -- 25.8 — 64.2 — 25.9 — Botnvörpuskip. 15.1 — 66 3 — 14.2 — 62.4 — 0nnur gufuskip 0.5 — 0.9 — 2.8 — 3.0 — Samtals lOO.o % lOO.o % lOO.o o/o lOO.o o/o Svo sem sjá má af töflu I (bls. 1) er Iangmest fiskiskipaútgerð frá Reykjavík. Árið 1922 gengu þaðan 35 skip eða um Vð hluti fiskiskip- anna, en 59 °/o af lestarúmi fiskiskipanna kom á Reykjavíkurskipin, enda eru Iangflestir botnvörpungarnir gerðir þar út. Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig skipin skiftast árið 1921 og 1922 eftir því hvaða veiði þau stunduðu.

x

Hagskýrslur um fiskveiðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um fiskveiðar
https://timarit.is/publication/1127

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.