Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.02.1925, Page 18
14
Fiskiskýrslur 1922
1920 1921 1922
Botnvörpuskip..... 768 þús. kg 987 þús. kg 1 210 þús. kg
Onnur þilskip..... 85 — — 109 — — 114 — —
Mótorbátar ........... 60 — — 59 — — 64 — —
Róðrarbátar .......... 13 — — 12 — — 13 — —
Samkvæmt þessu hafa allar tegundir skipa aflað betur árið 1922
heldur en næstu ár á undan. Róðrarbátar öfluðu þó eins vel 1920 og
betur 1919.
Frá útgerðarmönnum þilskipanna liggja fyrir upplýsingar um verð
þilskipaaflans auk þyngdarinnar og er þær að finna fyrir hvern útgerð-
arstað og landið í heild sinni í töflu VI hjer á eftir (bls. 16—17). Verð-
hæð þilskipaaflans á öllu landinu 1922, sem upp hefur verið gefinn, hefur
verið þessi:
Ðotnvörpuskip *Onnur þilskip Þilskip alls
Fullverkaður fiskur 8 812 þús. kr. 2 776 þús. kr. 11 588 þús. kr.
Hálfverkaður fiskur 507 — — 153 — — 660 — —
Saltaður fiskur ... 387 — — 2 677 — — 3 064 — —
Nyr fiskur........ 3 897 — — 158 — — 4 055 — —
Alls 1922 13 603 þús. kr. 5 764 þús. kr. 19 367 þús. kr.
1921 12 013 — — 5 012 — — 17 025 — —
1920 12 055 — — 5 424 — — 17 479 — —
1919 7 505 — — 6 667 — — 14 172 — —
1918 5 155 — — 4 663 — — 9 818 — —
Að vísu eru tölur þessar ekki fyllilega sambærilegar, þar sem
nokkur hluti aflans er verkaður, og því í verði hans innifalinn verkunar-
kostnaður, sem ekki er reiknaður með í verði hins hlutans af aflanum.
Mun mega gera ráð fyrir, að verkunarkostnaðurinn hafi alment verið 32
kr. á hvert skippund (eða 20 kr. á 100 kg) af fullverkuðum fiski árið
1921, en 30 kr. á skpd. (eða kr. 18.75 á 100 kg) árið 1922, og 25 °/o
minna á hálfverkuðum fiski. Nemur þá sá kostnaður 2 264 þús. kr. á
öllum fiskinum, sem gefinn er upp verkaður árið 1921, en 2622 þús. kr.
árið 1922, og verður því að draga þær fjárhæðir frá fiskverðinu, til þess
að finna verð aflans óverkaðs (nýs eða saltaðs). Afli þilskipanna af þorsk-
veiðunum eins og hann kemur frá hendi fiskimannanna (nýr eða saltaður)
verður samkvæmt því árið 1921 14.8 miljóna króna virði, þar af
afli botnvörpunga 10.4 milj. kr., og afli annara þilskipa 4.4 milj. kr., en
árið 1922 1 6.7 miljóna krónavirði, þar af afli botnvörpuskipa
11.6 milj. kr. og afli annara þilskipa 5.1 milj. kr.
Um verð bátaaflans eru engar skýrslur, en ef bátaaflanum er öll-
um breytt í fisk upp úr salti og gert ráð fyrir sama verði á honum sem
á þilskipafiski upp úr salti, þá verður niðurstaðan sú, að þorskafli bát-