Hagskýrslur um fiskveiðar

Eksemplar

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1927, Side 14

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1927, Side 14
12 Fisldskýrslur 1924 því þilskipaaflanum árin 1912—24 og því af bátaaflanum 1913—24, sem gefið hefur verið upp í þyngd, verið breytt í tölu eftir hlutföllum þeim, sem skýrt er frá í fiskiskýrslum 1913, bls. 11* —12, sbr. Fiskiskýrslur 1915, bls. 9*. Þó hefur kolinn sem aflaðist á botnvörpunga 1912—24 ekki verið tekinn með í yfirlitið, enda þykir líklegast, að koli sá, sem aflast hefur árin þar á undan, hafi að mestu eða öllu fallið úr skýrslum þá. Árið 1923 og 1924 hefur afli sá, sem yfirlitið nær yfir, orðið meiri en nokkru sinni áður, 37 milj. fiska árið 1923 og 52 milj. fiska árið 1924 á þilskip og báta alls. Miðað við meðalaflatölu áranna 1919 — 23 hefur aflinn 1923 orðið um 5'/2 milj. fiskum meiri, en aflinn 1924 um 203/4 milj. fiskum meiri heldur meðalafli þessara ára. Stafar þessi mikli munur að mestu leyti af því, hve þilskipaaflinn hefur aukist þessi ár. Að tölu til hefur hann orðið 27 °/o meiri árið 1923 heldur en með- alafli áranna 1919—23 og árið 1924 jafnvel rúml. tvöfaldur. í 4. yfirliti (bls. 11*) er sýnd þyngd aflans árið 1923 og 1924 miðað við nýjan flattan fisk. Þilskipaaflanum, sem gefinn hefur verið upp í öðru ástandi, hefur því verið breytt í nýjan fisk flattan og afhöfðaðan eftir þeim hlutföllum, sem skýrt er frá í fiskiskýrslum 1915, bls. 9*. Nýi fisk- urinn, sem getið er um í skýrslum botnvörpunga, mun hvorki vera flatíur nje afhöfðaður, og hefur honum því (að undanskildu heilagfiski, skötu og öðrum fisktegundum) verið breytt í nýjan fisk flattan, með því að draga þriðjung frá þyngd hans. Því af bátaaflanum, sem gefið hefur verið upp í tölu, hefur einnig verið breytt í þyngd samkvæmt hlutföllum þeim, sem tilfærð eru í Fiskiskýrslum 1913, bls. 11*—12*, í sambandi við hlutföllin milli fullverkaðs fisks og nýs. Þyngd aflans 1924 hefur þannig orðið 132 miljón kg eða um 44 miljón kg meiri heldur en árið 1923, er hann var 88 milj. kg. Aflinn skiftist þannig hlutfallslega niður á þilskipin og bátana síðustu árin: 1920 1921 1922 1923 1924 Botnvörpusliip 30.7 % 37.4 o/o 40.5 o/o 40.o % 52.3 % Onnur þilskip 19.6 — 21.2 — 21.4 — 21.4 — 19.6 — Mótorbátar (minni en 12 tonna) 30.5 — 27.0 — 25.4 — 27.0 — 19.2 — Róðrarbátar 19.2 — 14.4 — 12.7 — 11.6 — 8.9 — Samfals lOO.o »/o lOO.o »/o lOO.o o/o lOO.o o/o lOO.o o/o Hlutdeild botnvörpuskipanna í aflanum fer sívaxandi, var 1924 meir en helmingurinn. Aftur á móti fer hlutdeild bátanna mjög minkandi, einkum róðrarbátanna, enda þóft afli þeirra minki ekki. Eftirfarandi hlutfallstölur sýna, hvernig aflinn 1924 skiftist hlutfalls- lega eftir þyngdinni á einstakar tegundir fiska á botnvörpuskipum, öðrum þilskipum, mótorbátum og róðrarbátum.

x

Hagskýrslur um fiskveiðar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um fiskveiðar
https://timarit.is/publication/1127

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.