Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1929, Qupperneq 8
6*
Fiskiskýrslur 1927
Meðalstærð fiskiskipanna hefir verið svo sem hjer segir:
1918 1923
1919 . . . . 45.4 — 1924 .... 73 6 —
1920 . . . . 72.4 — 1925 . . . . 78.2 —
1921 . . . . 72.0 — 1926 . . . . 88.4 —
1922 . . . . 70.1 — 1927 .... 88 3 —
Árið 1920 hækkar meðalsfærðin mjög mikið vegna þess að svo
margir botnvörpungar bætast þá við. Síðan hefur meðalstærðin lítið breyst,
þangað til 1925 og 1926, að hún hefur hækkað töluvert.
Árið 1927 voru gerðir hjer út 46 botnvörpungar eða jafnmargir
eins og næsta ár á undan. Voru það alt sömu skipin, nema 2 af ensku
skipunum, sem gengu frá Hafnarfirði árið á undan, gengu úr, en 2 önnur
komu í þeirra stað. Auk botnvörpunganna var hjer aðeins gert út 1 fiski-
gufuskip árið 1921. En þessum skipum hefur fjölgað svo síðustu árin
að 1924 voru þau orðin 21, en 29 árið 1927. Eru það síldveiðaskip og
línuveiðaskip. Með mótorskipum eru taldir mótorbátar, sem eru stærri en
12 lestir. Slíkum bátum hefur mjög fjölgað á síðari árum. Flestir voru
þeir 1925 rúml. 200, en 185 árið 1927. Seglskipum hefur aftur á móti
fækkað mjög, í sum hefur verið settur mótor, svo að þau flytjast yfir í
mótorskipadálkinn, en önnur dottið úr sögunni. Fyrir 1904 var allur þil-
skipaflotinn seglskip, en 1926 og 1927 var aðeins gert út 1 seglskip. Árin 1926
og 1927 skiftist fiskiflotinn þannig hlutfallslega eftir tegundum skipanna.
1926 1927
Seglskip Tals 0.4 % Lestir 0.1 0/6 Tals 0.4 % Lestir 0.2 °/0
Mótorskip .... 71.3 — 20.6 — 70.9 — 20.8 —
Botnvörpuskip. 17.8 — 67.2 — 17.6 — 66 o —
Onnur gufuskip 10.5 — 12.1 — ll.i — 13.0 —
Samtals lOO.o o/o 100 o % lOO.o % lOO.o %
Svo sem sjá má á töflu I (bls. 1) er mest fiskiskipaútgerð frá
Reykjavík. Árið 1927 gengu þaðan 50 skip eða rúml. J/5 hluti fiskiskip-
anna, en 46°/o af lestarrúmi skipanna kom á Reykjavíkurskipin, enda eru
flestir botnvörpungarnir gerðir þar út. Vestmannaeyjar voru að vísu hærri
að skipatölu, en skipin eru þar svo miklu minni, að lestarrúm þeirra
nemur ekki J/io af lestarrúmi Reykjavíkurskipanna.
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig skipin skiftast árið 1927 eftir því
hvaða veiði þau stunda.
Á undanförnum árum hefur tala íslenskra skipa, sem stunduðu
þorskveiði, síldveiði eða hákarlaveiði, verið þessi: