Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1930, Blaðsíða 8
6*
Fiskiskýrslur 1928
Meðalstærð fiskiskipanna hefur verið svo sem hér segir:
1919 1924
1920 . ... 72.4 — 1925 .... 78.2 —
1921 .'... 72.0 — 1926 . .. . 88.4 —
1922 .... 70,i — 1927 . . . . 88.3 —
1923 .... 73.5 — 1928 . . . . 85.6 —
Árið 1920 hækkar meðalstærðin mjög mikið vegna þess að svo
margir botnvörpungar bætast þá við. Síðan breyttist, meðalstærðin lítið
þangað til 1925 og 1926, að hún hefur hækkað töluvert.
Árið 1928 voru gerðir hér út 47 botnvörpungar eða einum fleiri
en næsta ár á undan. Af botnvörpuskipum þeim, sem gerð voru út árið
1927, strönduðu tvö á því ári (Austri og Eiríkur rauði), en 3 voru aftur
á móti keypt frá útlöndum árið 1928 (Bragi, Gullfoppur og Sviði). Auk
botnvörpunganna var hér aðeins gert út 1 fiskigufuskip árið 1921. En
þessum skipum hefur fjölgað svo, að 1924 voru þau orðin 21, en 29
árið 1927. Aftur á móti voru þau ekki nema 19 árið 1928. Eru það
síldveiðaskip og línuveiðaskip. Með móforskipum eru taldir mótorbátar,
sem eru stærri en 12 lestir. Slíkum báfum hefur mjög fjölgað á síðari
árum. Flestir voru þeir 1925 rúml. 200, en tæpl. 200 árið 1928. Segl-
skipum hefur aftur á móti fækkað mjög, í sum hefur verið settur mótor,
svo að þau flytjast yfir í mótorskipadálkinn, en önnur alveg dottið úr
sögunni. Fyrir 1904 var allur þilskipaflotinn seglskip, en 1926 og 1927
var aðeins gert út 1 seglskip og 1928 ekkert. Árin 1927 og 1928 skift-
ist fiskiflotinn þannig hlutfallslega eftir tegundum skipanna.
1927 1928
Tals Lestir Tals Lestir
Seglskip 0.4 % 0.2 % » % » %
Mótorskip .... 70.9 — 20.8 — 75.0 — 22 8 —
Botnvörpuskip. 17.6 — 66.0 — 17.8 — 68.6 —
Onnur gufuskip 11.1 - 13.0 — 7.2 — 8.6 —
100.0 % lOO.o % lOO.o % lOO.o %
Svo sem sjá má á töflu I (bls. 1) er mest fiskiskipaútgerð frá
Reykjavík. Árið 1928 gengu þaðan 44 skip eða >/g hluti fiskiskipanna,
en 46°/o af lestarrúmi skipanna kom á Reykjavíkurskipin, enda eru flestir
botnvörpungarnir gerðir þar út. Vestmannaeyjar voru að vísu töluvert
hærri að skipatölu (60 skip), en skipin eru þar svo miklu minni, að lestar-
rúm þeirra nemur ekki nema rúml. Vío af lestarrúmi Reykjavíkurskipanna.
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig skipin skiftast árið 1928 eftir því
hvaða veiði þau stunda.
Á undanförnum árum hefur tala íslenzkra skipa, sem stunduðu
þorskveiði, síldveiði eða hákarlaveiði, verið þessi;