Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1930, Blaðsíða 14
12
Fiskiskýrslur 1928
í 4. yfirliti er sýnd þyngd aflans árið 1928 miðað við nýjan
flattan fisk. Þilskipaaflanum, sem gefinn hefur verið upp í öðru ástandi,
hefur því verið breytt í nýjan fisk flattan og afhöfðaðan eftir þeim hlut-
föllum, sem skýrt er frá í Fiskiskýrslum 1915, bls. 9*. Nýi fiskurinn,
sem getið er um í skýrslum botnvörpunga, mun hvorki vera flattur né
afhöfðaður, og hefur honum því (að undanskildu heilagfiski, skötu og
öðrum fisktegundum) verið breytt í nýjan fisk flattan, með því að draga
þriðjung frá þyngd hans. Því af bátaaflanum, sem gefið hefur verið upp
í tölu, hefur einnig verið breytt í þyngd samkvæmt hlutföllum þeim, sem
tilfærð eru í Fiskiskýrslum 1913, bls. 11*—12*, í sambandi við hlutföllin
milli fullverkaðs fisks og nýs.
Þyngd aflans 1928 hefur þannig orðið 154 miljón kg eða um 20
miljón kg meiri heldur en árið 1927, og I8V2 milj. kg meiri heldur en
1925, en það ár hefur þyngdin verið 'hæst áður. Aflinn skiftist þannig
hlutfallslega eftir þyngdinni niður á þilskipin og bátana síðustu árin:
1924 1925 1926 1927 1928
Botnvörpuskip 52.3 0/0 56.4 0/0 46 1 % 52.6 % 47.6 0/0
Onnur þilskip 19.6 — 17.7 — 24.1 — 18.2 — 22.5 —
Mótorbátar (minni en 12 tonna) 19.2 — 17.2 — 20.6 — 22.4 — 24.7 —
Róðrarbátar 89 — 8.7 — 9.2 — 6.8 — 5.2 —
Samtals lOO.o % lOO.o % lOO.o «/o lOO.o 0/0 lOO.o %
Hlutdeild þilskipanna í aflanum hefur verið rúml. 70°/o af aflanum
síðustu árin.
Eftirfarandi hlutfallstölur sýna, hvernig aflinn 1928 skiftist hlutfalls-
lega eftir þyngdinni á einstakar tegundir fiska á botnvörpuskipum, öðrum
þilskipum, mótorbátum og róðrarbátum.
Botnvörpuskip Onnur þilskip Mótorbátar Róörarbátar
Þorskur............... 46.3 % 79.7 % 55.3 °/o 42.0 °/o
Smáfiskur............. 16.6 — 13.8 — 32,7 — 43.1 —
Vsa.................... 3.5 — 4.4 — 6.3 — 10.9 —
Ufsi ................. 30.8 — 0.4 — 0.5 — 0.7 —
Langa.......'...... 0.8 — l.o — 0.7 — 0.1 —
Keila.................. O.i -— 0.5 — l.o — 0.2 —
Heilagfiski........ 0.3 — O.o — 0.3 — 0.2 —
Koli .................. 0.8 — O.i — O.o — O.o —
Steinbítur............. 0.3 — 0.1 — 2.8 — 2.2 —
Skata.................. O.i — O.o — O.i — O.i —
Aðrar fiskitegundir 0.4 — » — 0.3 — 0.5 —
Samtals 100,0 °'o 100.0 % lOO.o °/o lOO.o %
Svo að segja allur sá afli, sem hér um ræðir, er þorskur og aðrir
fiskar þorskakyns. A bátunum hefur þó 3 —4°/o verið annarskonar fiskur
(mest steinbítur), á botnvörpungunum 2°/o (mest koli), en á öðrum þil-