Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1933, Side 14
10
Fiskiskýrslur 1931
II. Sjávaraflinn.
Resultats des péches maritimes.
A. Þorskveiðarnar.
Resultats de la péche de la morue.
Um skýrslufyrirkomulagið sjá Fiskiskýrslur 1912, bls. 11 —12, Fiski-
skýrslur 1913, bls. 11 — 12* og Fiskiskýrslur 1915, bls. 9*.
4. yfirlit (bls. 11*) sýnir árangur þorskveiðanna á þilskip og báta
sér í lagi og samtals árið 1931 samanborið við afla undanfarandi ára.
Fram til 1912 var aflinn einungis gefinn upp í fiskatölu og er saman-
burðurinn í yfirlitinu miðaður við það. Hefur því þilskipaaflanum árin
1912 — 31 og því af bátaaflanum 1913—31, sem gefið hefur verið upp í
þyngd, verið breytt í tölu eftir hlutföllum þeim, sem skýrt er frá í Fiski-
skýrslum 1913, bls. 11*—12*, sbr. Fiskiskýrslur 1915, bls. 9*. Þó hefur
kolinn. sem aflaðist á botnvörpunga 1912—31 ekki verið tekinn með í
yfirlitið, og líklegast þykir, að koli sá, sem aflast hefur árin þar á und-
an, hafi að mestu eða öllu fallið úr skýrslum þá.
Árið 1931 hefur afli sá, sem yfirlitið nær yfir, orðið tæpl. 76 milj.
fiska á þilskip og báta alls. Er það tæpl. 9 milj. fiskum minna en 1930
er aflinn varð mestur, en 13 milj. fiskum meira en meðalafli áranna
1926-30.
I 5. yfirliti (bls. 12*) er sýnd þyngd aflans árið 1931 miðað við
nýjan flattan fisk. Þilskipaaflanum, sem gefinn hefur verið upp í öðru
ástandi, hefur því verið breytt í nýjan fisk flattan og afhöfðaðan eftir
þeim hlutföllum, sem skýrt er frá í Fiskiskýrslum 1915, bls. 9*. Nýi
fiskurinn, sem getið er um í skýrslum botnvörpunga, mun hvorki vera
flattur né afhöfðaður, og hefur honum því (að undanskildu heilagfiski,
skötu og öðrum fisktegundum) verið breytt í nýjan fisk flattan, með því
að draga þriðjung frá þyngd hans. Því af bátaaflanum, sem gefið hefur
verið upp í tölu, hefur einnig verið breytt í þyngd samkvæmt hlutföll-
um þeim, sem tilfærð eru í Fiskiskýrslum 1913, bls. 11* —12*, í sam-
bandi við hlutföllin milli fullverkaðs fisks og nýs.
Þyngd aflans 1931 hefur þannig verið alls 162 milj. kg eða um 32
milj. kg minni heldur en árið 1930, en tæpum 2 milj. kg meiri heldur en
1929. Aflinn skiftist þannig hlutfallslega eftir þyngdinni niður á þilskipin
og bátana síðustu árin:
1927 1928 1929 1930 1931
Botnvörpuskip 52.6 «/o 47.6 % 38.7 °/o 37.3 % 40.3 %
Onnur skip 18.2 — 22.5 — 32.3 - 37.9 — 33.9 —
Mótorbátar (minni en 12 tonna) 22.4 — 24.7 — 27.2 —
RóÖrarbátar 6.8 — 5.2 — 1.8 — j 24.8 — 25.8 —
Samtals lOO.o % lOO.o % lOO.o % 100,o % 100 o %