Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1934, Blaðsíða 14
10'
Piskiskýrslur 1932
II. Sjávaraflinn.
Resultaís des péches maritimes.
A. Þorskveiðarnar.
Resultats de ta péche de la morue.
Um skýrslufyrirkomulagið sjá Fiskiskýrslur 1912, bls. 11 — 12, Fiski-
skýrslur 1913, bls. 11 — 12* og Fiskiskýrslur 1915, bls. 9*.
4. yfirlit (bls. 11*) sýnir árangur borskveiðanna á þilskip og báta
sér í lagi og samtals árið 1932 samanborið við afla undanfarandi ára.
Fram til 1912 var aflinn einungis gefinn upp í fiskatölu og er saman-
burðurinn í yfirlitinu miðaður við það. Hefur því þilskipaaflanum árin
1912—32 og því af bátaaflanum 1913 — 32, sem gefið hefur verið upp í
þyngd, verið breytt í tölu eftir hlutföllum þeim, sem skýrt er frá í Fiski-
skýrslum 1913, bls. 11* —12*, sbr. Fiskiskýrslur 1915, bls. 9*. Þó hefur
kolinn, sem aflaðist á botnvörpunga 1912 — 1932 ekki verið tekinn með í
yfirlitið, og líklegast þykir, að koli sá, sem aflast hefur árin þar á und-
an, hafi að mestu eða öllu fallið úr skýrslum þá.
Arið 1932 hefur afli sá, sem yfirlitið nær yfir, orðið 66 milj. fiska
á þilskip og báta alls. Er það 93/4 milj. fiskum minna en 1931, en 3V4
milj. fiskum meira en meðalafli áranna 1926—30.
í 5. yfirliti (bls. 12* ) er sýnd þyngd aflans árið 1932 miðað við
nýjan flattan fisk. Þilskipaaflanum, sem gefinn hefur verið upp í öðru
ástandi hefur því verið breytt í nýjan fisk flaftan og afhöfðaðan eftir
þeim hlutföllum, sem skýrt er frá í Fiskiskýrslum 1915, bls. 9*. Nýi fisk-
urinn, sem getið er um í skýrslunum mun hvorki vera flatlur né afhöfð-
aður, og hefur honum því (að undanskildu heilagfiski, skötu og öðrum
fisktegundum) verið breyft í nýjan fisk flattan, með því að draga þriðj-
ung frá þyngd hans. Því af bátaaflanum, sem gefið hefur verið upp í
tölu, hefur einnig verið breyft í þyngd samkvæmt hlutföllum þeim, sem
tilfærð eru í Fiskiskýrslum 1913, bls. 11*—12*, í sambandi við hlutföllin
milli fullverkaðs fisks og nýs.
Þyngd aflans 1932 hefur þannig verið alls 149 milj. kg eða rúml.
13 milj. kg minni heldur en árið 1931, og 46 milj, kg minni heldur en
1930. Aflinn skiftist þannig hlutfallslega eftir þyngdinni niður á þilskipin
og bátana síðustu árin:
1928
Botnvörpuskip ................. 47.6 %
Onnur þilskip ................. 22.5 —
Mótorbátar (minni en 12 tonna) 24.7 —
Róðrarbátar .................... 5.2 —
Samtals lOO.o %
1929 1930 1931 1932
38.7 o/o 37.3 o/o 40.3 o/o 33 s o/o
32.3 — 37.9 — 33.9 — 38.4 —
27.2 — i
> 24 8 — 25.8 — 27.8 —
1.8 — )
00.o o/o lOO.o o/o lOO.o o/o lOO.o %