Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2008, Side 12
miðvikudagur 1. október 200812 Fréttir
Greip byssukúlu með tönnunum
Króatískur karlmaður lifði af skot-
árás með undraverðum hætti þeg-
ar hann greip byssukúluna sem
skotið var að honum og eiginkonu
hans með fölsku tönnunum sín-
um. Eftir að skotið reið af straukst
kúlan við kinnbein eiginkonunnar
og hafnaði í fölsku tönnunum sem
maðurinn skyrpti síðan út úr sér.
Rannsóknarmenn segja að dreg-
ið hafi úr hraða kúlunnar við að
lenda á kinnbeini konunnar og því
lifði maðurinn af. Árásarmaðurinn
flúði af vettvangi hálfundrandi en
var handsamaður af lögreglunni
skömmu síðar.
Faldi lík barnanna í Frystinum
Renee Bowman, 43 ára, hefur viður-
kennt fyrir lögreglunni í smábænum
Lusby í Maryland í Bandaríkjunum
að líkamsleifar tveggja barna sem
fundust í frystikistu á heimili henn-
ar séu af tveimur ættleiddum dætr-
um hennar. Lögreglan telur Bowman
hafa drepið dætur sínar.
Lögreglan í Maryland var kölluð
að heimili Bowman til að rannsaka
ásakanir um vanrækslu á hendur
henni þegar þeir fundu lík barnanna
í frystikistu í kjallaranum. Við yfir-
heyrslur viðurkenndi konan að börn-
in hefðu verið á heimili hennar í að
minnsta kosti sjö mánuði og málið
sem hófst sem rannsókn á vanrækslu
barna snerist á augabragði upp í
morðrannsókn.
Krufning á enn eftir að fara fram
áður en lögreglan getur sagt með
vissu að líkamsleifarnar í frystinum
séu af stúlkunum, sem ættu að vera
9 og 11 ára. Þriðju dóttur Bowman,
sem er sjö ára og sætti líkamlegu of-
beldi af hendi móður sinnar, hefur
verið komið í hendur yfirvalda.
Barin með háhæluðum skó
Tildrög málsins eru þau að lögregl-
an vitjaði Renee Bowman á afskekktu
og látlausu heimili hennar í smábæn-
um Lusby í Maryland-fylki Banda-
ríkjanna á laugardaginn var. Var
lögreglan með undir höndum leitar-
heimild til að rannsaka misnotkun og
vanrækslu á sjö ára stúlku sem hafði
strokið að heiman og bar ummerki
hrottafengins ofbeldis og vanrækslu.
Hún fannst ráfandi um nágrenni
heimilis síns einungis íklædd nær-
bol sem var gegnsósa af blóði og saur.
Bowman var handtekin í kjölfarið þar
sem hún viðurkenndi að hafa meðal
annars lamið stúlkuna með háhæl-
uðum skó. Stúlkan strauk úr læstu
herbergi sínu með því að stökkva út
um glugga þess og ráfaði um þang-
að til nágrannar hennar fundu hana
illa leikna í hverfinu sem hún hafði
leitað til. Það var nágranni Bowman,
maður að nafni Philip Garrett, sem
fann stúlkuna og færði hana til ann-
ars nágranna þeirra, hringdi í neyð-
arlínuna og pantaði handa henni pit-
su þar sem hún tjáði honum að hún
hefði ekki borðað í nokkra daga. Gar-
rett minntist þess við lögreglu að hafa
hitt Renee Bowman einu sinni og að
hann hafi greint að hún væri ekki
með öllum mjalla.
Hrottafengnir áverkar
Samkvæmt ákærunni voru áverk-
ar stúlkunnar umtalsverðir og hrotta-
fengnir. Hún var með opin sár og
skurði víðs vegar um líkamann, á
hálsi hennar voru brunasár eftir reipi
eða snæri auk þess sem hún var illa
marin á handleggjum og andliti. Hún
sagði við lögreglu að móðir henn-
ar hefði veitt henni áverkana og hún
hafi gripið til þess ráðs í örvæntingu
sinni að stökkva út um gluggann til
að „losna undan linnulausum bar-
smíðum móður sinnar“. Stúlkan er
nú í umsjá barnaverndaryfirvalda í
Maryland.
Flutti með frosin lík
Þegar í ljós kom að Bowman átti
stærri og óhugnanlegri leyndarmál
sem hún faldi á heimilinu gengu
rannsóknarmenn á hana. Í ljós kom
að líklegast hafi morðin ekki átt sér
stað í Lusby. Hún viðurkenndi við yf-
irheyrslur að hún hefði flutt líkams-
leifarnar með sér þegar hún flutti
til bæjarins frá Rockville í febrúar á
þessu ári. Verður nú rannsakað hvort
morðin hafi átt sér stað í Rockville.
Enn er allt á huldu með hvernig dauð-
daga stúlknanna bar að en réttarrann-
sóknarmenn í Baltimore munu rann-
saka frystikistuna og innihald hennar
í framhaldinu til að ganga úr skugga
um hvort um dætur Bowman sé að
ræða. Enn sem komið er hefur hún
ekki verið ákærð vegna morðanna,
aðeins vegna ofbeldis gegn 7 ára dótt-
ur sinni.
Ættleiddi börnin þrjú
Yfirvöld segja að Renee Bowman
hafi verið fósturmóður barnanna þar
til hún ættleiddi þau. Hún á kærasta
sem lögreglan segir að vinni með
rannsóknarmönnum í þágu málsins
og sé í öllu afar samvinnufús. Lög-
regluyfirvöld vildu þó ekki staðfesta
hvort hann væri grunaður vegna
málsins. Í ljós hefur komið að hann
býr ekki á heimili Bowman þar sem
voðaverkin voru framin. Hvorugt
þeirra hefur áður komið inn á borð
hjá barnaverndaryfirvöldum, en yf-
irvöld hafa óskað eftir upplýsingum
um þau mál þvert yfir Bandaríkin.
Íbúar smábæjarins í sjokki
Lusby er rólegur smábær í suð-
urhluta Maryland-fylkis í Bandaríkj-
unum. Samkvæmt upplýsingum um
íbúafjölda í Bandaríkjunum frá árinu
2000 bjuggu aðeins 1.666 manns í Lus-
by. Íbúar í bænum eru felmtri slegn-
ir vegna fregna af hrottafenginni mis-
notkun og hugsanlegra morða Renee
Bowman á börnum sínum. Rannsókn
málsins mun halda áfram og ljóst er
að ekki eru öll kurl komin til grafar
í þessu ógnvænlega máli sem vakið
hefur óhug um gervöll Bandaríkin.
Sómalskir sjóræningjar sem í
síðustu viku rændu úkraínsku fragt-
skipi með 33 skriðdreka innanborðs
eru byrjaðir að berjast innbyrðis.
Til skotbardaga kom þeirra í mill-
um og herma fyrstu fregnir að í það
minnsta þrír þeirra hafi látið lífið í
átökunum.
Umrætt sjórán er það stærsta
af fjölmörgum sem af er ári undan
ströndum Sómalíu. Sjóræningjar
tóku úkraínska skipið MV Faina fyr-
ir viku og krefjast tæplega 200 millj-
óna króna í lausnargjald. Bandaríski
sjóherinn fylgist grannt með skip-
inu, en nú virðist sem ósamkomu-
lag milli glæpamannanna um hvert
næsta skref í aðgerðunum eigi að
vera hafi leitt til uppþots.
Talið er að um 50 sjóræningjar
séu um borð en á meðal þess sem
úkraínska skipið flytur er á fjórða
tug T-72-skriðdreka, sprengjuvörp-
ur og skotfæri sem talið er að hafi
átt að fara til Súdan í gegnum Ken-
íu. Slík sending myndi á hinn bóg-
inn brjóta gegn friðarsamkomulagi
sem Súdan og Kenía skrifuðu undir
árið 2005. Yfirvöld í Keníu segja að
hergögnin séu fyrir keníska herinn.
Sómalskir sjóræningjar hafa nýtt
sér stjórnleysið í heimalandinu und-
anfarin tvö ár og farið mikinn í iðju
sinni. Það sem af er ári hefur yfir 30
skipum verið rænt og ráðist hefur
verið á mun fleiri. Sjórán eru orðin
afar arðbær ólögleg starfsemi sem
veltir hundruðum milljóna króna.
Gagnrýnt hefur verið að alþjóða-
samfélagið virðist skella skollaeyr-
um við ástandinu í Sómalíu, sem
elur af sér glæpi á höfum úti. Talið
er að nauðsynlegt sé að koma jafn-
vægi á borgarastyrjöldina í land-
inu, en lítið hafi verið gert hingað til
annað en að borga uppsett lausnar-
gjald. En sérfræðingar segja að slíkt
fóðri aðeins hringrás þessara glæpa
og ofbeldis á höfum úti.
mikael@dv.is
Sigurður Mikael jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
renee Bowman hefur verið handtekin í smábænum Lusby í Maryland eftir að líkamsleifar
tveggja barna fundust í frystikistu á heimili hennar. Talið er að líkin séu af tveimur ætt-
leiddum dætrum hennar. Líkin fundust fyrir tilviljun þegar lögreglan rannsakaði hrotta-
fengið ofbeldi Bowman gagnvart þriðju ættleiddu dóttur sinni.
Áverkar stúlkunnar voru umtalsverðir og
hrottafengnir. Hún var með opin sár og skurði
víðs vegar um líkamann, á hálsi hennar voru
brunasár eftir reipi eða snæri auk þess sem hún
var illa marin á handleggjum og andliti.
MarYlanD
PennSYlVania
n
eW
je
rS
eY
D
el
aW
ar
e
Virginia
norður-karólÍna
Suður-
karólÍna
neW York
ConneCTiCuT
rólegur smábær Lusby er rólegur
smábær í suðurhluta maryland-fylkis. Íbúar
hans eru skelfingu lostnir vegna málsins.
Sjóræningjar sem rændu úkraínsku fragtskipi snúast gegn hver öðrum:
Sómalskir sjóræningjar í skotbardaga
Í höndum sjóræningja Úkraínska fragtskipið mv Faina er í höndum sjóræningja
hlaðið skriðdrekum og vopnum. MYnD aFP