Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2008, Qupperneq 15
miðvikudagur 1. október 2008 15Umræða
Frjálshyggjumenn úti um allan
heim standa nú fyrir því að þjóðnýta
banka og lána þeim almannafé til að
forðast gjaldþrot og hrun í fjármála-
kerfinu. Þegar á hólminn var kom-
ið treystu þeir ekki hinni ósýnilegu
hönd markaðarins. Þessir atburðir
sýna að það sem frjálshyggjumenn
kalla frjálst markaðshagkerfi er ekki
frjálst heldur háð stuðningi ríkisins –
almennings – og gæti aldrei þrifist án
þess. Hagkerfi án seðlabanka, gjald-
eyrisvaraforða, fjármálaeftirlits, við-
unandi lagaumhverfis og svo fram-
vegis er hvergi til. Ríkið styður því við
fjármálalífið alveg eins og það styð-
ur við aðra atvinnustarfsemi, lífeyr-
isþega, velferðarkerfið og svo fram-
vegis.
Nú er hinn svokallaði frjálsi
markaður, skilgetið afkvæmi frjáls-
hyggjunnar, tekinn að ráðast að for-
eldrum sínum. Þegar allt lék í lyndi
rökstuddu frjálshyggjumenn lægri
skatta og minni ríkisafskipti með því
að ekki megi skerða frelsi einstakl-
inga og fyrirtækja til að eiga í við-
skiptum sín á milli svo fremi sem það
skaðar ekki aðra. Sífellt kemur betur í
ljós að þessi rök byggjast á sandi.
Í fyrsta lagi eru ákveðin ríkisaf-
skipti alltaf forsenda þess að við-
skipti geti átt sér stað – ef ekki væri
fyrir lagaumhverfið, seðlabankann,
opinbera eftirlitsaðila og svo fram-
vegis væru viðskipti sannarlega af
skornum skammti. Þess vegna er
ekki lengur hægt að rökstyðja skatta-
lækkanir og aðra bitlinga til stórfyr-
irtækja og hátekjufólks með frösum
á borð við að ríkið eigi ekki að skipta
sér af frjálsum markaði. Sérstaða
frjálshyggjumanna er að þeir vilja að
ríkisafskiptin komi alltaf fyrirtækjum
og eigendum þeirra til góða, en ekki
okkur hinum.
Í öðru lagi hefur kenningin um að
frjáls viðskipti geti ekki valdið öðrum
skaða endanlega verið afsönnuð á síð-
astliðnum mánuðum. Venjulegt fólk,
bændur og skrifstofufólk sem aldrei
keypti hlutabréf í bönkunum, vaknar
nú allt í einu upp við það að lífskjör
þess skerðast stórlega vegna þess að
forstjórar erlendra fjárfestingarbanka
eins og Lehman Brothers tóku vond-
ar ákvarðanir. Afkomu fjölda fólks
sem gerði ekkert af sér er nú skyndi-
lega stefnt í hættu vegna ákvarðana
allt annars fólks í allt öðrum löndum.
Frjálshyggjumenn geta því ekki leng-
ur haldið því fram að viðskipti á frjáls-
um markaði komi öðru fólki ekki við
og valdi því ekki skaða.
Að lokum ættu ýmsir þeir sem
talað hafa hvað mest fyrir „mark-
aðslausnum“ á undanförnum
árum að hugsa sinn gang í ljósi
atburða undanfarinna mánaða.
Hvað ef frjálshyggjumenn hefðu
fengið sínu fram og fjárfestingar-
félög væru nú komin að verulegu
leyti inn í heilbrigðisstofnanir, far-
in að reka skóla eða sjá heimilum
fyrir heitu vatni og rafmagni? Það
skiptir kannski almenning ekki svo
miklu máli hvort tískuvörubúðir
verði gjaldþrota og loki sjoppunni
– en hvað ef hið sama gerðist í heil-
brigðiskerfinu, skólakerfinu eða
orkufyrirtækjum?
Hver er maðurinn? „Jón magnús-
son.“
Hvað drífur þig áfram? „Pólítískur
áhugi hefur drifið mig áfram frá því
ég var unglingur. og er óhætt að
segja að ekki hafi dregið úr þeim
áhuga með árunum.“
Af hverju ertu stoltastur?
„börnunum mínum.“
Hvar líður þér best? „Heima.“
Hafði þig lengi dreymt um þetta
starf/embætti? „mig dreymdi
sérstaklega mikið um það sem ungur
maður, en ekki mjög ákveðið í seinni
tíð. Þetta kom í raun mjög á óvart.“
Má eiga von á einhvers konar
áherslubreytingum innan
þingflokksins í kjölfar þess að
þú ert tekinn við formennsk-
unni? „Ég reikna með því.“
Heldurðu að innanbúðarátök
innan Frjálslynda flokksins séu
nú liðin tíð? „Ég get engu lofað um
það. Það koma vissulega ýmsir að því
en ég mun gera mitt til að svo verði.“
Heldurðu að Kristinn H.
Gunnarsson sé að fara að skipta
um stjórnmálaflokk enn eina
ferðina? „Ég get ekki svarað því.“
Hvort styður þú Obama eða
McCain? „Ég bloggaði um það áður
en kosningarnar hófust að mínir
draumaframbjóðendur yrðu þeir
obama og mcCain. Ég er þó
bjartsýnni á að obama eigi
möguleika á að öðlast virðingu
bandaríkjamanna en það er nokkuð
sem bush hefur gjörsamlega glatað á
sínum forsetaferli.“
Hvernig nennirðu að standa í
pólitík? Er ekki miklu skemmti-
legra að vera lögmaður? „Það
hefur allt sína kosti. Ég er búinn að
vera lögmaður í áratugi og kann það
eflaust miklu betur. Ég sakna þess
helst að hafa ekki meiri ráð yfir tíma
mínum en þannig er það nú bara að
þegar þú gefur kost á þér og ert
kosinn hefurðu ákveðnum skyldum
að gegna. mér finnst að menn sem
eru kosnir til að gegna opinberum
embættum ættu að taka því með
auðmýkt og rækja sitt starf af heilum
hug.“
Lífið er? „Yndislegt og það er um að
gera að hafa gaman að því jafnvel
þótt það séu ekkert sérstaklega
bjartir tímar fram undan. gerum eins
gott úr lífinu og mögulegt er.“
Þegar markaðurinn drap frjálshyggjuna
GEFur FuGLunuM Sigurður elías Þorsteinsson, gjarnan nefndur Siggi dúfa vega brennandi áhuga á dúfum, gaf sér tíma til að gefa fuglunum við tjörnina um helgina.
dúfurnar gerðu sér lítið fyrir og tylltu sér á Sigurð milli þess sem þær gæddu sér á brauðinu. Mynd: GunnAr GunnArssOn
Er Davíð að hEfna sín?
„Já, ég myndi segja það.“
HiLMAr KristóFEr HjArtArsOn,
19 ára afgreiðSlumaður
„Nei, það held ég ekki.“
ÁsGEir óLAFssOn,
30 ára NámSmaður
„alveg klárlega.“
LEiFur GuðLAuGssOn,
20 ára afgreiðSlumaður
„Já, klárlega.“
dAGur óLAFssOn,
21 árS aðStoðarmaður
Dómstóll götunnar
jón MAGnússOn
er nýkjörinn formaður þingflokks
frjálslynda flokksins.
Kom á óvart
„Nú veit ég ekki, það er erfitt að segja.“
HELGi HéðinssOn,
20 ára HáSkólaNemi
kjallari
mynDin maður Dagsins
Ég sendi höfundarmynd á umbrot og pix - gat ekki vistað það niður sjálfur
08092901_sedlab_52_2.jpg
Finnur dELLsén
heimspekingur skrifar.
„Nú er hinn svokallaði frjálsi markaður, skilgetið afkvæmi frjálshyggjunnar, tek-
inn að ráðast að foreldrum sínum.“
Finnur dELLsén
heimspekingur skrifar.
„Nú er hinn svokall-
aði frjálsi markaður,
skilgetið afkvæmi
frjálshyggjunnar,
tekinn að ráðast að
foreldrum sínum.“