Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Qupperneq 4
mánudagur 3. nóvember 20084 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
„Það var árvökul afgreiðslustúlka
sem áttaði sig á þessu,“ segir söng-
konan Ragnheiður Gröndal sem
lenti í löggudólgnum Má Ívari
Henryssyni sem var dæmdur í
þriggja ára óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir brot þar sem ákærur voru
í nítján liðum og spanna allt frá því
að stela grænum tetöflum upp í að
sparka í sköflunginn á lögreglu-
þjóni.
Söngkonan síkáta varð fyrir
barðinu á Má Ívari í janúar síðast-
liðnum þegar veski hennar hvarf
ásamt greiðslukorti. Þá reyndi
hann að svíkja út vörur fyrir tut-
tugu þúsund krónur. Honum tókst
það ekki vegna þess að Ragnheið-
ur má teljast landsþekkt og athug-
ul afgreiðslukona áttaði sig á yfir-
vofandi svikum.
Vissi hver mamma var
„Þetta var bara rosaleg heppni,“
segir Ragnheiður sem brást skjótt
við þjófnaðinum og kærði til lög-
reglunnar. Hún lét loka kortinu
um leið og hún áttaði sig á
hvernig í pottinn væri
búið.
Már fór á bens-
ínstöð í Hafn-
arfirði þar sem
hann var í slag-
togi með tveim-
ur konum. Hann
og önnur konan
týndu til vörur, að-
allega sígarettur og
samlokur fyrir tut-
tugu þúsund krónur
auk bensíns.
Afgreiðslu-
konunni
þótti
þetta
undar-
legt en
þegar
Már
rétti henni kortið kannaðist hún
við söngkonuna geðþekku, en í
héraðsdómi sagðist hún þekkja til
móður hennar.
Ólíkleg skýring
„Ég var mjög heppin,“ seg-
ir Ragnheiður sem tapaði engu á
kortaþjófinum Má Ívari en hann
fór í burtu í fússi af bensínstöðinni
þegar upp um hann komst. Áður
en hann fór heimtaði afgreiðslu-
stúlkan eitthvað í pant vegna bens-
íns sem hann hafði tekið og úr
varð að ein kvennanna skildi eftir
farsímann sinn. Einn gestanna á
bensínstöðinni náði einnig núm-
eri bílsins sem hann ók á.
Sjálfur sagði Már fyrir rétti að
honum hefði bara verið rétt kortið
og hann ekki vitað að það væri ekki
í eigu stúlkunnar sem rétti honum
það. Héraðsdómi Reykjavíkur þótti
sú skýring sérlega ólíkleg.
Frækinn hjólreiðaflótti
Auk þess að svíkja söngkonuna
er Már Ívar einnig dæmdur fyrir að
hafa bitið lögregluþjón auk þess
að sparka í sköflunginn á öðrum
og hóta þeim þriðja. Það var eftir
að lögreglan hafði afskipti af hon-
um dauðadrukknum á reið-
hjóli. Már Ívar gat vart stað-
ið í fæturna samkvæmt
frásögn lögreglunnar og
var mjög árásarhneigð-
ur. Þegar lögreglan
spurði hann um skilríki
reyndi hann að flýja
hjólandi. Lögreglan
hljóp á eftir hinum
drukkna hjólreiða-
manni en að henn-
ar sögn átti hann
mjög erfitt með að
halda jafnvægi
á flóttanum.
Að lok-
um tókst
lög-
reglu-
þjóni
að
grípa
í Má Ívar þannig hann missti jafn-
vægið og datt af hjólinu. Í kjölfarið
var ákveðið að handtaka hann og
færa í fangageymslu.
Stal ilmvatni og
skemmdi rafmagnskassa
Már Ívar var dæmdur í þriggja
ára fangelsi en frá dómnum dregst
gæsluvarðhald sem hann hefur
sætt síðan í byrjun ágúst. Að auki
þarf hann að greiða skaðabætur
til Hagkaupa, þar sem hann stal
Armani-ilmvatni og grænum te-
töflum, og einnig þarf hann að
greiða Orkuveitu Reykjavíkur fyr-
ir skemmdir á rafmagnskassa sem
hann sparkaði í.
Viðskiptablaðið
heldur velli
„Já, við höldum velli, eins og
staðan er í dag,“ segir Harald-
ur Flosi Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Viðskiptablaðs-
ins. Mikið umrót hefur verið á
fjölmiðlamarkaði og hagræð-
ingar víða undanfarna daga. Þar
er skemmst að minnast þess að
starfsmönnum 365 var tilkynnt
um uppsagnir og launalækkanir
fyrir helgi. „Við höfum ekki sagt
neinum upp og höfum bara ver-
ið að byggja blaðið upp,“ segir
Haraldur Flosi hóflega bjart-
sýnn.
1 Neitað um kynlíf,
pissaði á hundinn
2 Nýr endir og nýtt upphaf
3 Ásdís Rán glæsileg í
Búlgaríu (myndband)
4 Brjóstsykursjól í kreppunni
5 Drengur og rjúpnaskytta
slösuðust illa
6 Vann 33 milljónir í Lottó
7 Límdur við klósettið
mest lesið á dv.is
LöggudóLgur
sVíkur söngdíVu
Löggudólgurinn Már Ívar Henrysson var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjölmörg
brot en hann stal greiðslukorti söngkonunnar Ragnheiðar Gröndal og reyndi að nota
það til að kaupa samloku og sígarettur. Að auki sparkaði hann í sköflunginn á lög-
regluþjóni eftir að hafa reynt að flýja undan réttvísinni sauðdrukkinn á reiðhjóli.
„Þetta var
bara rosaleg
heppni.“
VaLuR GRettiSSoN
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Már Ívar Henrysson gaf puttann í héraðs-
dómi þegar mál hans var þingfest en hann var
dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að níðast á
lögregluþjónum og stela grænum tetöflum.
Samþykkt var á stjórnarfundi 365
hf. í gær að selja alla fjölmiðla út úr
fyrirtækinu til félags í eigu Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar. Með í kaupunum fylg-
ir 36,5% hlutur í Árvakri, útgáfufélagi
Morgunblaðsins. 365 hf. hefur verið
eigandi að þremur rekstrarfélögum,
365 miðlum, Senu og EFG. Undir 365
miðla heyrir rekstur Stöðvar 2, Bylgj-
unnar, Fréttablaðsins og fleiri miðla.
Stjórn 365 samþykkti tilboðið með
öllum greiddum atkvæðum nema
einu. Árni Hauksson greiddi atkvæði
gegn tillögunum og sagði sig úr stjórn
365 í kjölfarið. Árni, fráfarandi stjórn-
armaður í 365, vildi ekkert tjá sig um
söluna þegar eftir því var leitað. Hann
vildi heldur ekki tjá sig um ástæður
þess að hann greiddi atkvæði gegn
sölunni. Eftir því sem DV kemst næst
mun hann ekki hafa verið alls kostar
sáttur við söluna á fjölmiðlunum til
stærsta hluthafans í 365.
Ari Edwald, forstjóri 365, mun
áfram gegna starfi forstjóra 365 miðla
og forstjóra 365 hf. „Við sjáum þetta í
rauninni sem nokkurs konar útfærslu
á hlutafjáraukningu. Markmið er fyrst
og fremst að styrkja fjárhag félagsins
með því að fá inn þennan nýja pen-
ing,“ segir Ari. Aðspurður um ástæður
þess að Árni sagði sig úr stjórn félags-
ins segir Ari það vera eðlilegt. „Hann
var hluthafi í félaginu en hefur verið
að minnka sinn hlut og seldi sig end-
anlega úr félaginu í ágúst þegar það
var afskráð. Það er rökrétt framhald
af því að hann sé ekki lengur í stjórn,“
segir Ari. Hann segir söluandvirðið
vera 1500 milljónir króna, skuldayf-
irtakan sé að minnsta kosti 4,4 millj-
arðar en 3,5 til 4 milljarðar af skuldum
séu eftir hjá 365 hf.
jonbjarki@dv.is
Árni Hauksson sagður ósáttur við sölu stærsta hlutans úr 365:
Jón Ásgeir keypti fjölmiðlana
Árétting
Í upptalningardálki með
umfjöllun um ítrekaðar
ósannar fullyrðingar Geirs
H. Haarde forsætisráðherra í
helgarblaði DV var fyrir mis-
tök sett í yfirskrift að ellefu
ósannindi væru talin upp í
dálknum. Þarna voru hins
vegar aðeins talin upp sjö til-
felli þess að ráðherrann segði
þjóðinni ósatt, en fjögur upp-
talin atriði til viðbótar áttu
við um atriði sem hann neit-
aði að ræða eða raunverulega
stöðu mála sem braut í bága
við fyrri fullyrðingar hans.
Ragnheiður Gröndal Söngfuglinn
ragnheiður lenti í löggudólgi sem reyndi
að kaupa sígarettur og samlokur með því
að nota greiðslukort hennar.
Bátar brunnu í
Hafnarfirði
Slökkviliðið á höfuðborgar-
svæðinu var um kvöldmatar-
leytið í gær kallað að Bátasmiðju
Guðmundar við Hvaleyrar-
braut í Hafnarfirði. Þar logaði
eldur í báti auk þess sem eldur
var byrjaður að læðast í annan
nærstæðan bát. Bátarnir voru í
smíðum. Greiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins en um tölu-
vert bál var að ræða.
Stefán Eiríksson, lögreglu-
stjóri á höfuðborgarsvæðinu,
mætti á vettvang í gærkvöld.
Hann sagði að grunur léki á að
kveikt hefði verið í bátunum en
til nokkurra ungmenna sást á
svæðinu skömmu áður.
Kaupir 365 miðla
Félag Jóns ásgeirs Jóhannes-
sonar, rauðsól ehf., hefur
keypt 365 miðla út úr 365 hf.