Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Blaðsíða 6
mánudagur 3. nóvember 20086 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Tilboð á barnamyndatökum Góð mynd er falleg jólagjöf! Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 www.ljosmynd.is „Ég var á leiðinni út úr húsi, nýbúin að klæða mig í kápuna og var á leið- inni í verkefni þegar ég var kölluð á fund,“ segir Lára Ómarsdóttir sem var heima hjá sér í faðmi fjölskyld- unnar þegar blaðamaður DV hafði upp á henni um helgina. Lára var einn af þeim 26 starfs- mönnum Morgunblaðsins sem var sagt upp fyrirvaralaust á föstudag- inn en samkvæmt heimildum DV voru þeir allir beðnir um að hætta samstundis. Í þessum hópi voru nokkrir af reyndustu starfsmönnum blaðsins. Á ritstjórninni er andrúms- loftið kvíðaþrungið, enda horfðu gamalreyndir starfsmenn Morgun- blaðsins á vini og samstarfsmenn til fjölda ára pakka saman föggum sín- um og yfirgefa vinnustaðinn. Fréttaskýringar í vaskinn „Ætli ég taki mér ekki bara vetr- arfrí,“ segir Lára, sem ekki mun vinna uppsagnarfrestinn. Hún, eins og aðrir sem sagt var upp fyrir helgi, pakkaði saman föggum sínum á rit- stjórninni fyrir helgina. „Þess var óskað að ég myndi hætta samstundis. Ég var með þrjár fréttaskýringar í undirbúningi sem ég hafði byrjað á deginum fyr- ir uppsögnina. Fréttaskýringar sem verða ekki neinar fréttaskýringar úr þessu,“ segir Lára, augljóslega óánægð vegna þeirrar vinnu sem unnin hefur verið til einskis. Á annað þúsund uppsagnir Uppsagnirnar á Morgunblað- inu fyrir mánaðamót voru fjarri því einsdæmi. Þegar tveir dagar voru eftir af síðasta mánuði reiknaðist DV til að 1.200 manns hefði verið sagt upp í hópuppsögnum og öðr- um uppsögnum sem greint hafði verið frá opinberlega. Síðustu tveir dagarnir voru dökkir og nokkur dæmi þess að fyrirtæki segðu upp tugum starfsmanna, bæðu fólk um að taka á sig launalækkun eða lækk- að starfshlutfall. Alls voru uppsagnir því vel á annað þúsund og því fleiri en greint hafði verið frá fyrstu níu mánuði ársins samanlagt. Heimavinnandi húsmóðir Lára segir fjölskyldulífið ganga sinn vanagang en að börnin henn- ar séu ánægð með breytinguna. „Ég held að krakkarnir verði ánægð- ir með að ég verði eitthvað heima,“ segir Lára og hlær en hún á fjögur börn með eiginmanni sínum Sig- urði Hauki Olavssyni. Það er því deginum ljósara að ef ekkert breytist til hins betra í efna- hagsmálum hér á landi mun Lára verða heimavinnandi húsmóðir næstu vikurnar. Hún er ekki bjartsýn á að hoppa inn í aðra vinnu miðað við núverandi ástand. „Ég sé ekki fram á að ég fái vinnu eftir helgi. Ég slæ nú samt ekkert hendinni á móti því ef einhver býður mér vinnu,“ segir Lára sem lét gott af sér leiða í síðustu viku og aðstoðaði starfsbróður sinn frá Japan. „Já, ég fór í viðtal hjá japönskum blaðamanni. Hann var hingað kom- inn til að fjalla um ástandið á Íslandi og vildi heyra hvernig fólkið í land- inu hefði það.“ Umdeild setning Lára hefur gengið í gegnum margt á þessu ári en rússíbanareið hennar hófst í apríl þegar hún lýsti mótmælum vörubílstjóra á Suður- landsvegi. Kveikt var á hljóðnema hennar þegar hún heyrðist segja við samstarfsmann sinn hvort ekki væri hægt að fá einhvern til að kasta eggj- um í lögregluna „læv“. Ummælin vöktu gríðarleg við- brögð en Lára sagði orð sín hafa fall- ið í hálfkæringi. „Enginn sem þekkir mig lætur sér detta í hug að mér hafi verið alvara,“ sagði hún í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér þegar mesta fárviðrið gekk yfir. Niðurstaðan var þó sú að hún lét af störfum. Lára var þó ekki lengi að landa öðru starfi því aðeins nokkrum dögum eftir að hafa sagt upp á Stöð 2 var hún kom- in með vinnu hjá Iceland Express. Þar gegndi hún starfi upplýsinga- fulltrúa. Blaðamennskan kallaði og í september hætti Lára hjá Iceland Express og gekk til liðs við 24 stund- ir. Þar starfaði hún í tæpan mánuð eða þar til 24 stundir var lagt niður. Lára missti þó ekki vinnuna held- ur fékk starf innan Morgunblaðsins þar sem henni var síðan sagt upp á föstudaginn, eftir aðeins tvær vikur í starfi. En þrátt fyrir allt sem á undan er gengið er engan bilbug á Láru að finna. „Maður krossleggur bara fingur og vonar að ástandið batni einhvern tímann.“ AtvinnulAus á erfiðum tímum Láru Ómarsdóttur var sagt upp störfum á Morgunblaðinu á föstudaginn. Hún og rúm- lega tuttugu kollegar hennar þurftu að pakka saman og fara heim fyrir helgi. Nærveru reyndra blaðamanna Morgunblaðsins var ekki frekar þörf. Uppsagnir á Morgunblað- inu komu fyrirvaralaust og þar með horfa starfsmenn á vini og samstarfsmenn til margra ára verða kreppunni að bráð. Fjöldauppsagnir eru daglegt brauð. „ég held að krakkarnir verði ánægðir með að ég verði eitthvað heima.“ AtLi MÁr GyLFAson blaðamaður skrifar: atli@dv.is Margir missa vinnuna Hópuppsagn- ir í október voru fleiri en þær höfðu verið fyrstu níu mánuði ársins samtals. meðal þeirra sem misstu vinnuna voru margir starfsmenn fríblaðsins 24 stunda sem lagt var niður. Mynd HeiðA „Þetta er langstærsti samning- ur sem við höfum gert og skiptir okkur mjög miklu máli,“ segir Her- mann Kristjánsson, framkvæmda- stjóri Vaka. Fyrirtækið gerði nýlega samning við fyrirtækið Marine Har- vest að verðmæti tvö hundruð millj- ónir króna. Vaki er íslenskt fyrirtæki sem hefur síðustu tvo áratugina leitt þróun hátæknibúnaðar fyrir fisk- eldi í heiminum. „Þetta tryggir okk- ur tekjur næstu fjögur árin og hugs- anlega til lengri tíma, það eru miklir möguleikar innan þessa fyrirtækis sem við vorum að gera samninginn við. Heildarvelta Vaka á þessu ári er nálægt sjö hundruð milljónum og þessi samningur er töluvert hár mið- að við þá veltu og áttatíu prósent af okkar tekjum verða eftir í íslensku hagkerfi,“ segir Hermann. Ólafur Ragnar Grímsson for- seti segir að það sé gott að sjá fyrir- tæki gera samninga við erlend fyr- irtæki á þessum síðustu og verstu tímum. „Þetta er fyrst og fremst við- urkenning á því að rannsóknir og hugvit geta skapað hér öflug sókn- arfæri. Mér finnst þessi samningur vera vitnisburður um að þrátt fyrir erfiðleikana eru hér fjölmargir aðilar sem hafa skemmtileg og spennandi sóknarfæri,“ segir Ólafur og bendir á að bankarnir hafi verið ansi frekir á kunnáttufólk. „Bankarnir hóuðu til sín tæknifólki, stærðfræðingum, hug- búnaðarfólki og hönnuðum, hundr- uðum saman, og afleiðingin var sú að fjölmörg fyrirtæki sem höfðu mikla sóknarmöguleika gátu ekki nýtt sér þessa möguleika vegna þess að þau fengu ekki fólk til þess.“ Að sögn talsmanna Vaka er erfitt að stunda fiskeldi hér við Íslandsstrend- ur þar sem hitastigið er alltof lágt fyrir fiskinn og dýpið ekki nægilega mikið við strendurnar og firðina. Í Noregi er sagan önnur þar sem hitastig er hæfi- legt og dýpið í fjörðunum er nægilega mikið fyrir eldið enda eru Norðmenn gríðarlega stórir í þessum geira. bodi@dv.is Vaki gerði 200 milljóna króna samning við fiskeldisfyrirtæki í Noregi: Bankarnir tóku fólk frá öðrum stærsti samningurinn í sögu fyrirtækisins Hermann Kristjánsson og benedikt Hálfdánar- son ræða hér við ólaf ragnar forseta. Mynd Kristinn Reglusamar rjúpnaskyttur Ef frá eru talin þrjú óhöpp á laugardaginn ber lögreglu- mönnum víðs vegar um landið saman um að rjúpna- veiðitímabilið hafi farið vel af stað. Engar tilkynning- ar höfðu borist um veiðar á ólöglegum svæðum og þeir sem lögreglan höfðu afskipti af höfðu öll tilskilin leyfi til veiðanna. Gærdagurinn var yfir höfuð rólegur á landinu að sögn lögreglunnar um allt land. Einn veiðimaður sat fastur á bíl sínum í grennd við Patreksfjörð en lögreglan kom honum til aðstoðar. Drengurinn mikið slasaður Björgunarsveitir Slysavarna- félagsins Landsbjargar sóttu á laugardag tvo slasaða einstakl- inga, einn í Hnappsdal og annan í Svínadal í Reyðarfirði. Í Svínadal féll drengur, sem var á veiðum með fullorðnum manni, fram af klettabrún í grjót og slasaðist töluvert. Talið er að fallið hafi verið um 8 til 10 metr- ar. Björgunarsveitin Ársól fór á staðinn og sótti drenginn, sem var með takmarkaða meðvitund, og kom honum í sjúkrabíl. Þær upplýsingar fengust í gærkvöldi að hann væri enn á gjörgæslu- deild og væri mikið slasaður. Bílvelta á sandgerðisvegi Um klukkan tíu í gærmorg- un fékk lögreglan á Suðurnesj- um tilkynningu um bílveltu á Sandgerðisvegi. Þá var hins vegar nokkuð liðið frá því bíll- inn valt því það gerðist, að sögn lögreglunnar, á milli klukkan sex og sjö. Tveir voru í bílnum en annar þeirra hafði verið fluttur á sjúkrahús með höfuðáverka. Einmitt þess vegna fékk lögregl- an tilkynninguna. Hún segist ekki útiloka að um ölvunarakst- ur hafi verið að ræða en bifreið- in er talin ónýt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.